Fálkinn - 17.01.1966, Blaðsíða 11
Elizabeth Ruth Davis og hún hefur alla ævi leitað að
einhverjum draumaprinsi, manni sem er nógu gáfaður
og sterkur til að kúga hana til undirgefni. En hún hef-
ur aldrei fundið hann þrátt fyrir fjögur hjónabönd og
niðurstaða hennar er biturleg: Karlmenn eru veiklund-
aðir, þeir eru eyðilagðir af mæðrum sínum og dragast
þar af leiðandi að persónustyrkum konum og það getur
ekki endað með öðru en ósköpum. Og hún kann einnig
sitt hvað fyrir sér í kenningum Freuds gamla:
— Flestir karlmenn leita föðurs í þeim konum, sem
þeir ganga að eiga, en í því tilliti er ég sú lélegasta
sem hægt er að hugsa sér.
Samt sem áður varð hún snemma að taka að sér hlut-
verk föðurins í fjölskyldunni. Fyrsta orðið sem hún
lærði. var ,,pabbi“, en það hjálpaði henni ekki til að
vinna ást föðurins. Honum fannst Ruth Elizabeth og
Bobby systir hennar vera leiðinleg börn. Honum leidd-
ust allir hlutir. Hann var þungbrýnn ósanngjarn og
uppstökkur af velskum ættum'sem hægt var að rekja
allt aftur til strangtrúaðra mótmælenda og púrítana á
dögum Elísabetar I . Englandsdrottningar. Hann var
íhaldssamur á gamla siði. Börnin fengu ekki að borða
við sama borð og þeir fullorðnu og ef þau á annað borð
máttu láta sjá sig, máttu þau ekki fyrir nokkurn* mun
láta til sín heyra. Ruth Elizabet bar mikla virðingu
fyrir skörpum gáfum föður sins og þeim metnaði hans
að verða framúrskarandi lögfræðingur sem hann varð.
Framh. á bls. 26
MYNDIRNAR:
Lengst til vinstri: Bette Davis; næsta mynd: í hlutverki EHsabetar I.
í „Elskliugi drottningarinnar“. Gera þurfti sérstakan stól fyrir leik-
konuna, vegna hins fyrirferðarmikla húnings; myndin að ofan:
Appel Annie er eitt af stærstu og eftirminnilegustu hlutverkum,
sem Bette Davis hefur leikið á seinni árum.
FÁLKINN 11
t