Fálkinn - 17.01.1966, Blaðsíða 5
*»<M
SKOÐANAKÖNNUN UM
EFNI ÞÁTTARINS
Þegar þáttur þessi hóf göngu sína, minntist ég
á, að ætlunin væri að hafa í honum fasta liði.
Ekki hefur orðið úr þessu og liggja til þess ýmsar
ástæður. En nú er ætlunin að láta til skarar skríða
í þessum efnum og koma eftirfarandi liðir til
greina:
ÆSKUFÓLK f LEIKARASTÉTT. Þar verða
kynntir leikarar af yngri kynslóðinni.
STUTT OG LAGOTT. Undir þessari yfirskrift
verða birtar stuttar og samanþjappaðar fréttir.
Þá er það liðurinn TOPPLÖGIN 1959. Birtur
verður listi yfir fimm vinsælustu lögin hér heima
og í Bretlandi umrætt ár.
En ég vil fá ykkar álit á þessum fyrirhuguðu
liðum og reyndar á öðru væntanlegu efni. Ef
meirihlutinn er mótfallinn einhverju sérstöku efni,
þá verður það EKKI tekið fyrir, því þetta er
þátturinn YKKAR.
Það hefur verið talað um það við mig, að ég
sé með of mikið efni eingöngu fyrir táningana, þar
sem þátturinn er ætlaður ungu fólki. Ætti að
vera þar efni fyrir aðra aldursflokka. Hvort breyt-
ingar verða hér á, veltur á úrslitum þessarar skoð-
anakönnunar.
Þar sem mér er það mikið kappsmál að fá sem
flest bréf, þá hefur verið ákveðið að draga úr
aðsendum bréfum og verðlaunin eru hin vandaða
bók Almenna Bókafélagsins, FRUMAN, en í henni
er gerð ýtarleg grein fyrir frumunni, grundvallar-
einingu alls lífs. Sagt er frá því, hvernig hún
myndar vefi og líffæri. Einnig er fjallað um það
í þessari stórmerku bók, hvernig þróun mannsins
og leit hans að betra lífi er m. a. komin undir
þekkingu hans á frumunni.
Til að hafa möguleika á að eignast þessa bók,
verðið þið að svara spurningunum hér að neðan.
Úrslitin verða gerð kunn eins
fljótt og mögulegt er, en gleym-
ið ekki eftirfarandi:
Það verður aðeins dregið úr
þeim bréfum, sem innihalda
listann og svör við öllum spum-
ingunum. Einnig er það skil-
yrði, að nafn, heimilisfang, ald-
ur og símanúmer fylgi. Þess-
um sex spurningum ætti að
vera fljótsvarað, þar sem við
þrjár þeirra þarf aðeins að
Framh. á bls. 37,
mm
UÚSINUi
BENEDIKT VIGGÓSSON
SKRIFAR FYRIR
UNGA FÓLKIÐ
SPURNINGARNAR:
1. Hvert er álit ykkar á fyrirhuguðum
liðum?
2. Hvaða erlendar hljómsveitir á að
kynna?
3. Á þátturinn að vera eingöngu fyrir
táningana? JÁ NEI (Strikið
yndir það sem við á)
4. Fleiri eða færri viðtöl?
5. Stuttar eða ýtarlegar greinar?
6. Hvaða annað efni á að birta?
Nafn ...............................
Heimilisf ang ......................
Aldur ..............................
Sími ...............................
Vinsamlegast klippið þetta úr blað-
inu. Utanáskriftin er:
FÁLKINN „í SVIÐSLJÓSINU“
BOX 1411.
Bréfin verða að berast fyrir 15.
febrúar næstkomandi.
ÞIÐ og VIÐ'
Fálki minn!
Ég á tveggja ára gamlan
dreng og er komin yfir tvitugt.
Faðir drengsins er giftur mað-
ur. Nú er ég ástfangin af ung-
um manni og hann virðist hafa
áhuga á mér og við erum búin
að vera dálitið saman. Hins
vegar er ég ekki búin að
gleyma föður drengsins. Það
er andstyggilegt að vera svona
á báðum áttum. Ef ég giftist
þessum unga manni, heldur þá
drengurinn áfram að minna
mig á hinn manninn? Ég er
svoleiðis gerö að ég vil að ailt
slíkt sé hreint og ákveðið.
Huldukona.
Svar:
Ef þú ert aO hugsa um
hjðnaband þá skiptir fyrsta
„skotið“ ekki mestu máli. Ham-
ingja hjðnabandsins vex upp af
gagnkvæmum trúnaOi og skiln-
ingi. Menn geta ekki losaö sig
viö fortíö sína, en þeir mega
ekki vera á vaidi hennar. Þú
munt alitaf muna hinn mann-
inn, en þú vex frá allri tilfinn-
ingasemi t hans garö, úr þvi
þetta varö ekki neitt. Gættu
þess aö þú breytist sjálf. Sú
„huldukona" sem eignaöist
barn meö giftum manni fyrir
tveimur árum, er ekki til leng-
ur, og þú átt eftir aö fjarlægj-
ast. hennar .sjónarmiö . enn
meira. Ef þessi ungi maður
vill þig og þú hann og þér
finnst aö ööru leyti skynsam-
legt aö giftast honum láttu þá
ekki fortíöina aftra þér.
Kæri Fálki!
Ég hef oft lent i deilum við
menn út af þvi hvort gera
eigi Island að ferðamannalandi
eða ekki. Mér finnst alveg
sjálfsagt að hæna ferðamenn
að. Það eru tekjur af því, og
það kynnir lsland erlendis, en
höfuðatriðið er, hygg ég, að
við sjálf verðum smátt og
smátt manneskjulegri, ef út-
lendingar eru hér mikið á ferð.
En það er satt að við höfum
fram á síðustu ár verið ósköp
útúrborulegt fólk. Ég hef ver-
ið töluvert erlendis og mér
finnst það. Hvað segir þú um
þetta?
Svar:
Þaö eru skiptar skoöanir um
þetta mál. Sumir eru sömu
skoöunar og þú, aðrir vilja
ekki gera landiö sviplaust og
friölaust meö þvi aö fylla állt
af erlendu feröafólki og elt-
ingaleik viö aö ná út úr því
erlendum gjaldeyri. Bæöi sjón-
armiöin hafa sín rök. Þaö er
engin hætta á því aö sá sem
býr á krossgötum veröi útúr-
borulegur, en þar reynir líka
meira á persónuleika hans. Ef
hann stenzt þá raun er víst
allt i lagi. Já, viö höfum veriö
svolítið útúrborulegir alveg
fram á þennan dag, eöa réttara
sagt eklci sérlega vel verseraö-
ir í heimsins brögöum. En á
móti kemur þaö aö viö erum
engar brúöur. enn a. m. k.
FÁLKINN 5