Fálkinn - 17.01.1966, Side 21
PRÓFESSOR í Zagreb,
Júgóslavíu og tíu stú-
dentar við Duke-háskólann í
Norður-Karólínu, Bandaríkj-
unum hafa samband sín á
milli með fjarhrifum ...
Maður festir mynd á vegg
f dagstofu í Cambridge, og
hópar fólks teikna skissur
eftir þeim í Edinborg, Norð-
ur-Karólínu og Hollandi. ..
Tvær stúlkur, hvor um sig
í læstu herbergi, draga upp
einkennileg tákn samtímis;
nákvæmlega eins, jafnvel
þótt þær séu í þrjú hundruð
sjötíu og fimm kílómetra
fjarlægð hvor frá annarri. ..
Þessar furðulegu tilraun-
ir eru dæmi um rannsóknir
þær sem nú eiga sér stað um
allan heim til að gan^a úr
skugga um hvort fjarhrif
séu afl er mögulegt sé að
virkja og ná stjórn á í þeim
tilgangi að hagnýta það líkt
og síma, útvarp og önnur
miðlunartæki.
HÆFILEIKINN til að
flytja hugsanir frá ein-
um huga til annars er í aug-
um alls þorra manna að-
eins skemmtiatriði á kaba-
rettsýningu. Og hugsana-
flutningur á sviði er venju-
lega að meira eða minna
leyti byggður á svikum. Dul-
mál, bendingar; ýmiss kon-
ar bragða er neytt, enda eru
mistök fátíð.
En rannsóknirnar sem fara
fram um heim allan á fjar-
hrifum, huglestri, hugsana-
flutningi og skyldum fyrir-
bærum eiga ekkert skylt við
tiltölulega meinlaus töfra-
brögð á kabarettsýningum.
Gífurlegar varúðarráðstaf-
anir eru viðhafðar til að
fyrirbyggja svik í nýrri vís-
indagrein sem getur átt
eftir að opna mannlegri vitn-
eskju dyr inn í nýja áður
ókunna heima.
Sönnunargögnin hlaðast
upp, rannsóknirnar eru
ríkisstyrktar, og vísinda-
menn mætast á ráðstefnum
til að ræða ESP (Extra-
Sensory Perception) sem er
hið fræðilega heiti fjarhrifa
eða hugsanaflutnings.
Á ráðstefnu um geimferð-
ir kom til umræðu að Þjálfa
væntanlega tunglfara í fjar-
hrifum, svo að þeir gætu
haldið sambandi við rann-
sóknastöðvar á jörðinni eftir
þeim leiðum.
Ef þetta er farið að minna
á vísindaskáldsögu má geta
þess, að fyrir nokkrum ár-
um birti franskt timarit þá
frétt, að fjarhrifasambandi
hefði verið haldið uppi milli
bandarísku flotastöðvarinn-
ar í Virginíu og kjarnorku-
knúna kafbátsins Nátílusar
sem þá var djúpt undir is-
hettu heimskautsins.
Að sjálfsögðu var fréttin
samstundis borin til baka af
yfirvöldum bandaríska sjó-
hersins, en hún var tekin til
athugunar í Kreml, og sov-
ézkar fjarhrifarannsóknir
voru auknar að mun. Ár-
angrinum hefur vitanlega
verið haldið stranglega
leyndum.
En að Rússar skyldu taka
ESP nógu alvarlega til að
hefja rækilegar rannsóknir
varð til þess, að bandaríski
herinn fór að dæmi þeirra.
Flugherinn leyndi því ekki,
að liður á kostnaðaráætlun
hans væri fjarhrifarann-
sóknir.
Ástæðurnar fyrir þessu
eru augljósar. Ef hægt er að
þjálfa menn í ESP eru
mörg vandamál úr sögunni.
Það er hægt að trufla út-
varps- og sjónvarpssending-
ar og stela bréfum og sím-
skeytum, en af rannsóknum
á ESP má ráða, að fjarhrifa-
samband sé algert einkamál
milli sendanda og viðtak-
anda og engir utanaðkom-
andi geti „legið á hleri“.
En þá kemur nýtt vanda-
mál til greina. Sumir þeirra
sem eru gæddir ESP hæfi-
leikum virðast geta lesið
hugsanir annarra án þess að
hinum sé það meðvitað. Á
þann hátt myndi njósnari
geta safnað upplýsingum án
þess að nokkuð væri sagt
eða skrifað.
Þetta álíta rannsókna-
mennirnir allfjarstæðu-
kenndan möguleika, en aft-
ur á móti er þeim ekki rótt
við tilhugsunina um, að upp-
drætti væri hægt að senda
eftir fjarhrifaleiðum.
FYRIR allmörgum árum
sendi dómari í Liver-
pool, Malcolm Guthrie að
nafni, sex teiknaðar myndir
yfir í huga stúlku sem sat
bak við tjald með bundið
fyrir augun. Hann horfði á
hverja mynd tvær eða þrjár
mínútur, síðan var -bindið
tekið frá augum stúlkunnar
og hún rissaði myndina á
blað. Myndirnar voru af
ýmsum hlutum, m. a. vín-
glasi og fiski, ennfremur
táknum sem höfðu enga sér-
staka merkingu, og öllum
þeirra náði stúlkan fullkom-
lega rétt.
Enginn núlifandi maður
hefur aðra eins þekkingu á
ESP rannsóknunum og dr.
J. B. Rhine, forstjóri Para-
sálfræðilegu rannsóknastofn-
unarinnar við Duke-háskól-
ann í N-Karolínu, Bandaríkj-
unum. Um meira en þrjátíu
ára skeið hefur hann unnið
að rannsóknum á hinum ó-
trúlegu möguleikum manns-
hugans. Nýjustu tilraunir
hans eru gerðar í samráði
við eitt austantjaldsland-
anna, og fara þær fram sam-
tímis í New York og Prag.
í þessum tilraunum eru
notuð spil er nefnast Zener-
spil, og eru tuttugu og fimm
í hverjum pakka, en áhverju
þeirra er eitt af fimm tákn-
um: hringur, kross, ferning-
ur, stjarna eða þrjár bylgj-
aðar línur. Með því að nota
þessi spil er tiltölulega auð-
velt að reikna út líkurnar
fyrir því hvort um ágizkun
sé að ræða eða raunverulega
ESP hæfileika.
Framh. á bls. 35
IIUGSANAFLIJTlVIftGIJR ER EKKI EIATÓM
IIJÁTRIJ, HELDLR MANNLEGLR
ILEFILEIKI SEM EKKI IIEFLR
VERIÐ MIKILL GALMLR
GEFIAA TIL ÞESSA
FALKINN
21