Fálkinn - 17.01.1966, Blaðsíða 25
„DON CAMILLO Í MOSKVU"
FYKIR TÍIJ áruin, eða svo hlógu nienn sig máttlausa af
erjum þeirra Don CamiIIo hins æruverðuga sveitaprests og
Peppones, sem var rauður eins og flugnahöfðinginn í eigin
persónu. Fernandel hinn franski og landi hans Gino Cervi,
urðu báðir heimsfrægir fyrir þessar persónur sínar. Og nú
er von á nýrri mynd um erjur þeirra félaga og þá er skúrk-
urinn Peppone búinn að tæla Don CaniiIIo með sér austur í
þá rauðu Rússiá í einhverri virðulegri sendinefnd. Myndin
heitir „Don Camillo í Moskvu“. Fýsir eflaust marga að sjá
hvernig hinum samvizkulipra Drottins þjóni reiðir af austur
þar. Fyrir rúmu ári birtist í Fálkanum bráðskemmtileg fram-
haldssaga um Don Camillo og Peppone og veru þeirra í hinni
rauðu Rússíá.
LIÐIÐ ER á þriðja ár, síðan Kennedy Bandaríkjaforseti
var myrtur í Dallas og ekkja hans er farin að slá sér út á
góðgerðarböllum. Hér á myndinni sést hún við eití slíkt tæki-
færi í Boston í bleikrauðum kjól. Aðgöngumiðinn á ballið
kostaði 150 dali og þætti dýrt í Þórskaffi. Ekki vitum við
hverjir þessir glottaralegu herramenn eru, en trúlega eru
þeir af bostonískum háaðli, sem ku vera næstum eins fínn
og sá í Bretlandi. Jackie er dulítið eins og Mona Lisa, — fjar-
rænt bros út í bláinn.
n
MarylStewart
Geysispennandi ástarsaga
eftir ví&fræga brezka
skáldkonu
ij.t.
FALKINN
25