Fálkinn - 17.01.1966, Side 29
jstrœti hefur sinn „undraspöl,, kveikti sér 1 vindlingnum. „Þu
eins og Missionstræti. Enginn átt eftir að skemmta þér vel í
hefur uppgötvað hann nema ég. Kearnystræti. Þessi gata efnir
Hittumst eftir fimmtán mínút- meira en hún lofar. Hún er yfir-
ur “ lætislaus og algjör andstæða Al-
Herra Liu kom nokkrum mín- þjóðanýlendunnar, hérna rétt
útum of seint. Hann var horaður hjá. Þar eru Ijósin bjartari, háv-
maður og toginleitur, klæddur aðinn meiri og auglýsingarnar
snjáðum tweed-fötum og hafði stærri, en maður fer þaðan.
Chiang aldrei séð hann í öðru. alltaf vonsvikinn. Kearnystræti
Aldur hans varð ekki ráðinn af lætur ekki mikið yfir sér; það
útlitinu; hann gat verið um er eins og róleg kona, sem hirð-
fimmtugt en hann gat eins vel ir ekki um að brosa við þér, en
verið á fertugsaldri. Chiang mun ef rétt er farið að henni,
hafði skilist, að hann fengist við veita þér meiri gleði og fyllri
ritstörf og hefði selt nokkrar ánægju en skrautgjörn og háv-
smásögur í amerisk blöð; að aðasöm daðurdrós, eins og Al-
minnsta kosti kallaði hann sig þjóðanýlendan.
rithöfund. Hann minnti Chiang
á söguprófessor, sem hann hafði
þekkt við lýðháskóla í suðvestur
Kina í heimstyrjöldinni síðari.
„Hefurðu beðið lengi?“ spurði
herra Liu.
„Nei, aðeins fáeinar minútur,"
sagði Chiang.
„Prýðilegt. Ég fann ekki skóna
mína. Lagskona mín á hund,
sem hefur þann kynlega ávana,
að fela fyrir manni skóna. Hún
skyldi þó aldrei hafa vanið hann
á það? Ef svo er, þá er ég feg-
inn meðan henni dettur ekki í
hug, að kenna honum að fela
buxurnar."
„Er hún spönsk?“
„Hún er Sameinuðu þjóðirnar.
Ég er löngu hættur að brjóta
heilann um, hverrar þjóðar hún
sé. Hún talar ensku með spönsk-
uni'hreim, en hefur rautt hár
og dökk augu. Hún er alin upp
í Shanghai hjá Hvít-Rússnesk-
um hjónum, en giftist Filipsey-
ing, sem var drepinn í siðasta
stríði. Ég_ hitti hana á Filipsey-
inga-dansleik, sem haldinn var
hérna í Kearny stræti. Þess
vegna er mér svo vel við Kearny
stræti, þar sem eitt atvik getur
leitt af öðru á hinn furðuleg-
asta hátt og allt saman hafnað
í sambúð við fallega konu. Það
getur að vísu einnig hafnað í
tukthúsi- með hnífstungu í mág-
anum."
„Ætlarðu að kvænast henni?"
„Ég ætla að kvænast henni
samstundis og hún verður blönk.
Ég vil ekki að fólk geti dregið
þð ályktun, að ég kvænist henni
vegna peninganna. Sjáðu, hérna
byrjar „undraspölurinn" í Kear-
ny stræti. Stattu kyrr og virtu
hann vel fyrir þér.“
Chiang nam staðar og horfði
á gamla rykuga götuna, klunna-
leg húsin og óhreinar gangstétt-
arnar. Þarna voru vínstofur,
matvöruverzlanir, kaffistofur lít-
il gistihús og veðíárarabúðir.
Ekkert var þar óvenjulegt að
sjá. nema einfaldar ljósaauglýs-
ingar. sem gáfu til kynna lágt
efnahagsstig götunnar. Herra
Liu dró upp vindling og festi
hann i einkennilegt munnstykki,
éins konar hring á haldi, sem
llktist mest tennisspaða
..Sérðu nokknð óveniulegt?"
spurði hann
„Nei " svaraði 'Jhiarig
„Fínt,“ sagði herra Liu og
„Ertu að skrifa grein um
Kearnystræti," spurði Chiang og
brosti.
„Ég ætla að skrifa bók tím
Kearnystræti. Það verður falleg
saga; bókmenntalegt snilldar-
verk. Er þér kunnugt, að það
leynast rithöfundar meðal gleði-
kvenna?“
„Nei, það vissi ég ekki.“
„Það er staðreynd. Þú munt
fá að kynnast þeim í Kearny-
stræti. Við skulum koma hingað
inn og fá okkur bjór.“ Hann
hratt upp litilli, óhreinni hurð
og þeir gengu inn í langa, mjóa
kaffistofu, sem var eins og öng-
stræti. Við afgreiðsluborð fram-
arlega i öngstrætinu voru seldir
gosdrykkir og bjór, innar var
skeifulagað borð, þar sem selt
var kaffi. Þarna inni var fjöldi
sjóliða og einstakra karlmanna,
sem sátu við bæði borðin og
drukku, töluðu og hlógu og virtu
fyrir sér framreiðslustúlkurnar
tvær, sem gengu um fyrir innan
borðin. Báðar voru ljóshærðar,
klæddar í hvítar treyjur og
þröng pils. önnur þeirra var
mjög fögur og vel vaxin. Herra
Liu settist á stól beint íyrir
framan hana og bað um tvö
bjórglös. „Þessi stúlka ætti
aldrei að opna munninn að nauð-
synjalausu," sagði hann í trún-
aði við Chiang, sem fékk sér
sæti á stólnum við hlið hans.
„Hún er til þess gerð af náttúr-
unnarhendi, að hafa af henni
augnagaman, það er að segja á
meðan hún opnar ekki munn-
inn.“
„Hvað áttu við með því?“
„Það skal ég sýna þér.“
Þegar þernan kom með bjór-
inn spurði herra Liu hana, hvort
móðir hennar hefði skánað liða-
gigtin. „Ég á enga móður, sem
hefur liðagigt," sagði stúlkan
hrjúfri röddu og brosti lítið eitt,
svo sást í tvær skakkar, niko-
tínlitaðar framtennur. „Þetta
verða fimmtíu sent, takk.“
„Fyrirgefðu," sagði Liu og
greiddi fyrir bjórinn. Þegar
stúlkan var farin hvíslaði hann
að Chiang: „Þarna sérðu, hún
gefur Marilyn Monroe ekkert
eftir á meðan hún opnar ekki
munninn. Sérðu hina stúlkuna?
Hún er að gera sér ferð inn á
snyrtiherbergið við enda skál-
Framh. á bls. 37.
BASAMtÆG UPPGOTVUAÍ
VELJIÐ LENGD AUGNAHARANNA
EFTIR EIGIN GEÐÞÓTTA
Ultra* Lash er fyrsti augnahdramassinn sem undra-
mjúkt lengir augnahárin og gerir þau þykkari án þess
að þau stífni. Þér eruð laus við öll óþœgindi — þurfið
ekki að gera annað en smyrja Ultra* Lash á augna-
hárin með hinum undraverða DUO-TAPER bursta, sem
silkimjúkt lengir sérhvert augnahár og litar það óað-
finnanlega um leið. Það er þœgilegt, vatnsekta og
smitar ekki. Þér hreinsið hárin á augabragði með
Maybelline Mascara Remover. Þér getið valið um þrjá
töfrandi liti: VELVET BLACK (flauelssvart), SABLE
BROWN (safalabrúnt) og MIDNIGHT BLUE (mið-
nœturblátt).
FALKINN