Fálkinn - 17.01.1966, Page 35
• Þjóðvegurinn
Framh. af bls. 13.
sporum. Kalt regnið rann niður
kinnar hans og eftir fingrum
hans og inn í vaðmálið á buxna-
skálmunum hans. Hann hélt
niðri í sér andanum og beið
með hverja taug spennta.
Hann horfði á þjóðveginn,
en þar var engin hreyfing
lengur. Hann efaðist um að
þar yrði nokkur hreyfing í
langan tíma.
Það stytti upp. Sólin braust
gegnum skýin. Eftir tíu mínút-
ur hafði storminn lægt. Hann
var farinn eins og vondur
draumur. Hægur andvari blés
ilmi frumskógarins upp til
hans. Hann heyrði ána renna
leiðar sinnar, stillt og rótt.
Frumskógurinn var ákaflega
grænn. Allt nýtt og ferskt.
Hann gekk yfir akurinn til
húss síns og tók plóginn. Með
hönd á honum leit hann til
himins, sem , brann af heitri
sól.
Konan hans kallaði frá verki
sínu:
— Hvað var þetta Hern-
ando?
— Það var ekkert, svaraði
hann.
Hann beindi plógnum í far-
ið og kallaði hátt til uxans:
— Hoooooó!
Og þeir gengu saman yfir
frjósaman akurinn, undir log-
andi himni á frjóu landi fram
með hinu djúpa fljóti.
— Heimurinn? Hvað skyldu
þeir eiga við með því, sagði
hann.
• Huglestur
Framh. af bls. 21.
Eitt sinn var háskólastúdent
að nafni Hubert Pearce próf-
aður, og hann gat rétt til eitt
þúsund átta hundruð og fimm-
tíu sinnum — sem sé: líkurn-
ar fyrir því, að um ágizkun
væri að ræða, voru einn á móti
100.000.000.000.
Það hefur verið athugað
hvort nautnalyf hafi áhrif á
ESP hæfileika fólks. Koffeín
reyndist verka örvandi á þá,
en önnur lyf yfirleitt ekki. Til-
raunirnar sem nú standa yfir
í Prag innifela dáleiðslu til að
leysa úr læðingi dulin öfl innra
með þátttakendunum. 1 Banda-
ríkjunum eru lygamælar tengd-
ir við þátttakendurna í því
skyni að hjálpa þeim til að
segja hvað þeim finnst skila-
boðin vera en ekki það sem
þeim finnst þeir ættu að segja.
Það er vitað, að margir, sem
hafa ESP hæfileika reyna að
bæla þá niður, vegna þess að
þeir trúa ekki, að þeir geti
haft við rök að styðjast.
Og svo einkennilega vill til,
að lélega gefið fólk nær oft
mjög góðum árangri við fjar-
hrif. Þýzk telpa sem var van-
gefin gat t. d. talað mörg er-
lend tungumál þegar kennari
hennar stóð fyrir aftan hana
og las orðin í bók án þess að
segja þau upphátt.
FRUMSTÆÐIR þjóðflokkar
nota fjarhrif mikið. Suð-
ur-amerískir Indíánar nota þau
eftir að þeir hafa drukkið
seyði úr kaktusplöntunni peyotl
sem inniheldur meskalín.
Frumbyggjar Ástralíu hafa
mjög þroskaða ESP hæfileika,
og sama er að segja um Eski-
móa og Lappa, þótt geta þeirra
fari dvínandi eftir því sem
þeir komast meira í samband
við siðmenninguna og alla
hennar tækni.
Margir álíta fjarhrif ekkert
annað en hjátrú eða svik. En
vísindamenn eru óðum að kom-
ast að annarri niðurstöðu.
Þrjátíu rannsóknastöðvar í
ýmsum löndum eru nú starf-
andi, og nafnkunnir vísinda-
menn sem margir hverjir voru
áður vantrúaðir á og jafnvel
andvígir öllum ESP rannsókn-
um starfa orðið ötullega að
þeim.
HVAÐ er hugsanaflutningur
í raun og veru? Enginn
hefur enn getað svarað því
vísindalega. En síðastliðinn
október gerðu tveir sérfræðing-
ar við læknadeild háskólans í
Fíladelfíu merkilegar uppgötv-
anir í sambandi við rannsókn-
ir á eineggja tvíburum. Þegar
vissum rafbylgjum var hleypt
inn í heila annars tvíburans
framkölluðu þær sams konar
rafbylgjur í heila hins sem var
hafður í einangruðum klefa á
öðrum stað. Það var rétt eins
og ósýnilegur þráður tengdi þá
saman.
Ef til vill verður þess ekki
langt að biða, að skýring
verði fundin á þeim dularfullu
hæfileikum mannshugans sem
nefndir eru ESP. ★ ★
HEILDSÖLUBIRGÐIR.
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
SÍMI 24120
(OlSSI l <OKTIl\A
bílalriga
mas<iiiiKar
skipli«»lii 21
símar: 21100-2ll«á
Haukur (juðmuhdáAcn
HKIMASIMI 21037
FALKINN
35