Fálkinn


Fálkinn - 17.01.1966, Page 38

Fálkinn - 17.01.1966, Page 38
KYENÞJOÐIN RITSTJÖItl: KIIISTJANA STEHVGRÍMSDÓTTIR Réttir úr innmat Innmatur, þ. e. a. s. lifur, hjörtu og nýru eru eins og kjöt mjög eggjahvítuauðug, innihalda auk þess töluvert af A- og B-vitamínum, auk járns. Lifur er hollust og einnig dýrust, þó ekki dýrari en kjöt, en þá má einnig taka tillit til þess, a3 engin bein eru í henni. Innmatur þolir illa geymslu, þarf því að matreiðast eins fljótt og hœgt er. Hann á bœði að hafa ferska lykt og lit. Mest notum við lambalifur, nýru og hjörtu en engu síðri er það úr kálfi og svínum. FYLLT HJÖRTU 5—G lambshjörtu 10-12 sveskjur 1 epli 6 dl mjólk og vatn 50 g smjörlíki 50 g hveiti Salt, pipar Sósulitur. Hjörtun klippt upp, þveg- in vel og þerruð, fyllt með steinlausum sveskjum og eplabitum. Saumað fyrir op- ið. Hjörtun brúnuð í feiti á öllum hliðum, sjóðandi mjólkurblandi hellt yfir, kryddað. Soðið í 1-1% klst. Soðið jafnað með hveitijafn- ingi. Borið fram niðursneitt með alls konar soðnu græn- meti. STEIKT LIFUR MEÐ REYKTU FLESKI Vt kg lifur 8-10 sneiðar af reyktu fleski 3 msk. hveiti 1 tsk. salt % tsk. pipar Hrærðar kartöflur. Lifrin hreinsuð, skorin i þurinar sneiðar á ská. Flesk- ið steikt á heitri þurri pönnu, þar til það er stökkt. Lifrarsneiðunum velt upp úr krydduðu hveitinu í í bacon- feitinni. Steikt 2-3 mínútur á hvorri hlið. Raðað á heitt fat, baconsneiðunum raðað ofan á. Borið fram með hrærðum kartöflum. LIFRASMÁSTEIK. % kg lifur 2 laukar 4 msk. hveiti 1 tsk. salt % tsk. pipar % tsk. paprika 3-4 gulrætur 100 g smjörlíki 4 dl vatn og mjólk Sósulitur. Laukurinn hreinsaður og skorinn í þunnar sneiðar. Lifrin skorin í ferkantaða bita, einnig gulræturnar. Laukurinn steiktur í pottin- um í um % hluta smjörlíkis- ins, því næst lifrin og gul- ræturnar í afganginn af feit- inni, veltið hvoru tveggja fyrst upp úr hveitinu, sem í er blandað salti, pipar og papriku. Sjóðandi vatns- blandinu hellt yfir, látið sjóða 5—8 mínútur. Sósu- litur settur í eftir þörfum. Borðað með hráu salati og hrærðum kartöflum. LIFRARBOLLUR 400 g lifur 4-5 hráar kartöflur 1 tsk. salt V4 tsk. pipar 2 stórir laukar 2 msk. smjörlíki Rjómabland. Lifur og kartöflur saxað einu sinni í söxunarvél. Kryddað með salti og pipar. Framh. á bls. 42. Nýrnajafningur. 38 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.