Fálkinn - 17.01.1966, Síða 39
VEL SNYRT
HÖRUND ER
HVERRAR
KONU
PRÝÐi
1. Setjið þær plöntur, sem eiga við höruncísgcrðina
í fat, hellið sjóðandi vatni yfir.
2. Leggið handklæði yfir höfuðið og undir fatið, svo
að gufan sleppi ekki út.
3. Að gufubaðinu loknu er ísköld kompressa lögð yfir
andlitið. Hafi unnizt lími til að setja „maska“ á
andlitið er hann þveginn af með síuðu gufubaðs-
vatninu.
Byrjið strax í dag á því að
fara í andlitsgufubað, sem í
hefur verið sett 2—3 handfyjlir
af kamillutei, ef hörundið er
þurrt, eða 1—2 msk af timian
ef það er feitt og annað hvort
kamillute eða 1—2 msk. af
rosmarin ef hörundið er eðli-
legt. Sé hörundið þurrt, þarf
að bera á það þunnt lag af
lanolinsmyrsli, á undan gufu-
baðinu.
Strax að gufubaðinu loknu
er gott hreinsilyf borið á hör-
undið, þerrað af eftir nokkrar
mínútur með bréfdúk. Vindið
svo kompressu upp úr köldu
gufubaðsvatni (gott er að kæla
það með ísmolum), leggið hana
yfir andlitið, leggizt út af og
slakið fullkomlega af í 15—30
mínútur.
Nuddið daglega grófari hluta
hörundsins (t. d. kringum nef-
ið) með sítrónu eða tómat og
hrærið við og við eggjarauðu
með dálitlum ávaxtasafa og
oliu og dreifið henni síðan um
andlit, háls, hnakka, handleggi
og hendur. Eggjarauðan þvegin
af eftir nokkrar mínútur með
ylvolgu vatni.
*
FÁLKINN