Fálkinn - 17.01.1966, Page 41
8oo krónur £ verðl*
AF
Það var góð þátttaka í 10. umferð og samkeppnin hörð
um þrjú efstu sætin. Vonandi takið þið enn fleiri þátt í
næstu þraut, og munið, að þetta eykur orðaforðann og
hjálpar ykkur að rifja upp óvenjuleg orð.
Verðlaunin:
1. verðlaun, kr. 500.00, fær Helga Halldórsdóttir, Glerár-
götu 10, Akureyri, 342 stig.
Lausn Helgu: Katólsku — Akkur — Tuskar — Ólukkast
— Lukkast — Stakkur — Katólsku — Ukkar — Rukkast.
2. verðlaun, kr. 200.00, fær Bergur Þórðarson, Fellsbraut
7, Skagaströnd, 341 stig.
Lausn Bergs: Katólsku — Akkur — Trukka — Ólukkast
— Lukkast — Stakkur — Katólsku — Ukkar —- Rukkast.
SAWT-
X X X X X
X X X X
x X X Xj X X
X X X X
V X X X x^ X X
V X X X X
X X X
V X X X X X X
X X X X X X
X X X X X
3. verðlaun, kr. 100.00, fær Lilja Eiríksdóttir, Stigahlíð
10, Reykjavík, 328 stig.
Lausn Lilju: Katólsku — Akkur — Trukka — Ólukka
— Lukkast — Stakkur — Katólsku — Ukkar — Rukkast.
Samtals:
Nafn: .......................................
Heimilisfang: ..............................
Næsta þraut
Næsta lykilorð er ANDSNÚINN. Nýjum þátttakendum
skal bent á að aðalreglan er sú að aðeins má nota þá stafi
sem koma fyrir í lykilorðinu og ekki oftar í hverju orði en
þá er að finna í lykilorðinu.
Bannað er að nota persónuheiti eða staðaheiti, ennfremur
heimatilbúin orð eða orðskrípi. Rita skal orð eftir ríkjandi
réttritunarreglum.
Verðlaun:
Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 500,00.
200,00 og 100,00 Ef margir ná sama stigafjölda verðui
dregið um verðlaunin, Frestur til að skila lausnum ei
þrjár vikur. Merkið umslagið ORÐ AF ORÐI 2.
Utanáskriftin er- Vikublaðið Fálkinn, pósthólf 1411
• Aika
Framh. af bls. 37.
brúninni. „Um hvað ertu að
tala?“
Chiang rankaði við sér og
saup á glasi sínu. „Það er bara
kona, sem ég þekki," sagði hann
hljómlaust. „Væri þér sama þótt
við færum á einhvern stað þar
sem meiri hávaði er og fleira
fólk?“
„Ég skal fara með þig á veru-
lega fjörugan stað, sagði herra
Liu og drap í vindlingnum i tin-
bakka á borðinu. „Hver er
Aika?“
„Kona, sem ég ætla að reyna
að gleyma.“
i,Þú þarft ekki að segja mér
meira,“ sagði herra Liu og
renndi sér niður af stólnum.
„Þetta hlýtur að vera þrihyrn-
ingur. Otslitið efni, sem ég get
engan mat gert mér úr. En ég
setla að fara með þig á þennan
stað, sem ég talaði um, þar sem
við getum fengið ódýrt portvín.
Skarkalinn þar getur ef til vill
hjálpað þér að gleyma þessari
Aiku.“
Þeir fóru út úr kaffistofunni
og gengu suður Kearnystræti.
Þeir fóru framhjá upplýstum
áfengisverzlunum, knattborðs-
stofum troðfullum af fólki og
á kafi í tóbaksreyk, skuggaleg-
um litlum gistihúsum, þar sem
menn sátu í fordyrinu eins og
brúður í búðarglugga, rakara-
stofum, þar sem Filipseyingar
léku á fiðlur og gítara og herra
Liu hélt uppi látlausum umræð-
um um allt, sem fyrir augu bar.
Að lokum nam hann staðar og
sagði: „Hérna er það„ vinsæl-
asti samkomustaðurinn í Kearny-
stræti, paradís ævintýramann-
anna. Líttu vel í kringum þig,
áður en við förum inn.“
Þeir voru staddir fyrir framan
veitingahús með stórum glugg-
um á framhliðinni og gægðust
inn. Inni var allt fullt af reyk,
hvers konar happdrættisvélum,
litlum kringlóttum borðum og
karlmönnum, en um það bil
helmingur hinna síðastnefndu
voru sjóliðar frá Filipseyjum.
„Þessi staður er í senn klúbb-
ur, veitingastofa, vínstofa, veð-
hlaupaskrifstofa og lærdóms-
ríkur samkomustaður fyrir
félagsmálaráðunauta og uppþorn
aða rithöfunda, sem eru sísafn-
andi efni, en skrifa aldrei neitt,"
sagði herra Liu og ýtti upp hurð-
inni. „Dragðu djúpl andann og
komdu inn.“
Chiang fór inn og hávaðinn i
salnum minnti hann á skotæf-
ingar hjá Fort Ord. Saman við
háværa tónlistina úr sjálfsölu-
fóninum blönduðust hvellir og
skarkali í happdrættisvélunum,
sem gestirnir léku á og í einu
horninu sat maður, sem æfði
sig á maracas. „Hér verða menn
að kallast á ef þeir vilja tala
saman," kallaði herra Liu.
„Finnst þér hávaðinn nógur
hérna?“
„Já,“ hrópaði Chiang aftur til
hans.
„Gott og vel. Við dveljum hér
um stund, en ekki. of lengi.
Taugakerfi mitt er ekki úr stál-
vir.“
Framh. i næsta blaði.
-K
FALKINN
41