Fálkinn - 18.04.1966, Blaðsíða 39
á meðan hann treinir sér einn
einasta apéritif allar göturfram
að kvöldverði. Hann mun þó
ekki halda fast að þér hverju
glasinu á fætur öðru. Það er
þáttur í þjóðlegum metnaði
hans, að byggja ekki á aðstoð
áfengis í landvinningum sínum
— einkum ef hann þarf að
borga það.
Við kvöldverðinn
Hann mun bjóða þér til
kvöldverðar í litla, troðfulla
veitingastofu og færist nú allur
í aukana við andríka könnun á
sálardjúpum þínum. Þegarhann
hefur króað þig af við örsmátt
borð með bakið upp að vegg,
mun hann hlusta með ákefð á
frásagnir þínar um gleðisnauða
æsku, skilnaðinn frá eiginmann-
inum eða hina þrálátu tauga-
gigt (það er allt saman vatn
á hans myllu) á meðan hann
sporðrennir þegjandi hverjum
einasta bita af fimm rétta mál-
tíð. Með sjálfum sér er hann
að hæðast að vesaldarlegri
steikinni og salatinu hjá þér,
en mun ekki láta fyrirlitningu
sína í ljós.
Fram eftir nóttu
Eftir kvöldverðinn heldur
leikurinn áfram. Frakkinn fer
með þig í næturklúbb, enda
þótt honum leiðist þar og það
gangi í berhögg við sparsemis-
skyn hans. Þar mun hann dansa
við Jng af öryggi og kunnáttu,
BIRGÐASTÖÐ
sýnilega með öllu ósnortinn af
því að halda þér í fanginu. Síð-
armeir fer hann í kossaleik við
þig. Eg segi kossaleik vegna
þess, að Frakkinn kyssir þig
ekki — hann lætur þig kyssa
sig. En ekki alveg strax. Með
hálflukt augu horfir hann á þig
færast nær og svo, þegar þú
ert í þann veginn að taka dýf-
una — þá kveikir hann sér í
sígarettu. Nokkrar lotur af þess-
um rómantísku útúrdúrum er
nóg fyrir hvaða taugar sem er,
og þegar þínar eru að því komn-
ar að bresta eins og ofþaninn
bogastrengur, lætur annað
hvort ykkar undan. Morgun-
inn eftir verðurðu enn að
brjóta heilann um, hvort ykkar
það var.
Og allt til æviloka
Ef Frakkinn kvænist þér,
verður það ekki af ást, heldur
vegna þess að honum fellur
vel v$ þig. Eins og ítalinn mun
hann halda fram hjá þér, en á
hinn bóginn mun hann ekki
meina þér að krydda lífið með
sjálfstæðum ástarævintýrum,
svo framarlega sem þú gengur
að því með virðuleik og varúð.
Sú saga er sögð af de Richelieu
hertoga, að hann hafi eitt kvöld
komið konu sinni að óvörum
með öðrum manni. Hann var
upptendraður af réttlátri
gremju. „Reynið að ímynda
ykkur hvað hefði gerzt,“ hróp-
aði hann, ,,ef einhver annar
hefði komið að ykkur en ég.“
• Líf og heilsa
Framh. af bls. 21.
eftir fæðingu. Hvot barn, sem
framkvæmd eru á blóðskipti
strax eftir fæðinguna verður
vanþroska fer eftir því hve
langt sjúkdómurinn er geng-
inn áður en hægt er að stöðva
hann. Ef hann var ekki búinn
að valda skemmdum fyrir blóð-
skiptin verður barnið eðlilegt.
Til þess að sjúkdómur þessi
geti átt sér stað þarf 1. móðirin
að vera af O-flokki, en faðirinn
af A, B eða AB-flokki, 2. þar
sem móðirin er Rh en faðir-
inn Rh +. Þessir flokkar skipt-
ast svo í undirflokka, sem
hafa mismikil áhrif hvað við-
víkur sjúkdóminum. Mjög lítil
hætta er á að fyrsta barn for-
eldra með ósamstæða blóðflokka
fái þessa veiki, en hættan áger-
ist með hverju barni úr því.
Þó sleppa langflestir foreldrar
með ósamstæða blóðflokka við
að eignast böi’n haldin þessum
sjúkdómi því hann kemur ekki
fyrir nema hjá færri en 4% þess-
ara foreldra og þeir eru aftur
ekki meira en ca. 15% allra for-
eldra, svo sjúkdómurinn er því
fremur fátíður.
Ráð við sjúkdóminum: 1. bezt
væri að fólk af ósamstæðum
blóðflokkum eignaðist aldrei af-
kvæmi, því þákæmisjúkdómur-
inn aldrei fyrir, 2. ef fólk treyst-
ir sér ekki til að forðast þetta
ættu allar konur, sem geta eign-
ast börn að láta rannsaka blóð
sitt, hvort þær tilheyri O-flokki
eða séu Rh 3. ef þessar kon-
ur verða barnshafandi þarf að
rannsaka blóðflokk föðurins og
ef hann er óheppilegur þá að
láta fylgjast með blóði konunn-
ar og henni sjálfri. Eins og mál-
um nú er háttað væri bezt að
sérfræðingur við blóðbankann í
Reykjavík sæi um þetta, að kon-
an eyddi ca. 4 síðustu mánuðum
meðgöngutímans í Reykjavík og
æli barn sitt þar. Þessar ráð-
stafanir gætu leitt til þess að
flýtt yrði fæðingu og með því
reynt að bjarga lifi og heilbrigði
barnsins. Hvort sem barnið
fæddist fyrir tímann eða full-
ArshAtíðir
BRtJÐKAUPSVEIZLUR
FERMIN G ARVEIZLUR
TJARNARBLD
SÍMI
19000
ODDFELLOWHUSINU
SÍMI
19100
SÍÐDEGISDRYKKJUR
FUNDARHÖLD
FÉLAGSSKEMMTANIR
FALKINN
39