Fálkinn - 06.06.1966, Page 6
Fálkinn
21. tbl. — 39. árg. — 6. júní 1966.
E F IM I
SVARTHÖFÐI SEGIR ........................... 6— 7
ALLT OG SUMT ............................... 8—9
HVAÐ VILL FÓLKIÐ SJÁ? Fálkinn spyr nokkra
kvikmyndahúsagesti um álit þeirra .... 10—11
ER HÆGT AÐ AUKA GÁFUR MANNA? merkileg
grein ..........*......................... 12—13
LÍF OG HEILSA eftir Ófeig J. Ófeigsson lækni 13
KONUR HAFA GAMAN AF „STRIP-TEASE“,
grein frá næturklúbbum í París ........... 14—17
LEIÐIN TIL FJÁR OG FRAMA, rætt við Ottó A.
Michelsen ................................ 18—19
KONAN SEM PICASSO HATAR, grein um konu
sem Picasso bjó með og nú hefur skrifað bók
um hann .................................. 20—21
BRENNIMERKT. framhaldssaga eftir Erik Nor-
lander ................................... 22—24
UNDARLEGIR HLUTIR ............................ 25
FURÐUR HIMINS OG JARÐAR eftir Hjört Hall-
dórsson .................................. 26—27
SENDIBRÉF ÚR FORTÍÐINNI eftir Jón Helgason £8—31
ARFUR ÁN ERFINGJA, framhaldssaga eftir Eric
Ambler .................................. 32—34
STJÖRNUSPÁ ................................... 35
í SVIÐSLJÓSINU ............................ 36—37
BARNASAGA .................................... 47
FORSÍÐAN: Á RÓLUVELLINUM. Ljósm.: R. G.
Tekin upp trú á Grýlu
A FSTAÐNAR kosningar hafa engu breytt um stöðu ríkis-
stjórnarinnar. Var þó reynt til hins ýtrasta af stjórnar-
andstöðunni að láta kosningarnar snúast um stjórnarstefnuna.
Sjálfstæðisflokkurinn kom að vísu út úr kosningunum með
minni atkvæðafjölda en áður, en þess er að gæta, að hinn
stjórnarflokkurinn, Alþýðuflokkurinn bætti stórlega við sig.
Það má því segja að stjórnin hafi bæði tapað og unnið at-
kvæði í þessum slag. Einmitt þessi staðreynd sýnir, að stjórn-
arstefnan sjálf hefur haft lítil áhrif á úrslit kosninganna.
Sjálfar voru kosningarnar lítið spennandi nema helzt hér
í Reykjavík, á meðan á talningu stóð um nóttina, og Framsókn-
arflokkurinn fór jafnt og þétt að draga á undir lokin, svo að
litlu munaði að Sigríður Thorlacius felldi áttunda mann á
D-listanum. Auðvitað verður sú hætta, sem meirihlutinn komst
í að þessu sinni til þess að eggja sjálfstæðismenn lögeggjan
til að láta ekki slíkt henda aftur. Minnihlutaflokkarnir misstu
þarna af eina tækifærinu, sem þeir fá í bráð, til að fella
meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur. Meðlimir flokks,
sem áttu tíu menn í borgarstjórn fyrir tveimur kjörtímabil-
um, uggðu eðlilega ekki að sér. Varnaðarorðin frá tímum
yfirburða kosningasigra um tap og aftur tap, voru orðin
svo munntöm að enginn hlustaði lengur á þau. Nú er skipt
um skreið. Nú eru menn hræddir og nú geta sjálfstæðismenn
aftur farið að trúa á Grýlu. Það hefur alltaf verið þeim til
góðs, og reynzt haldbetra en guðsorðasnakkið í Mogganum
fyrir hverjar kosningar.
í ncesta klaði kennir margra grasa. Vi3
œtlum a3 segja Irá sœnskri ijölskyldu sem
er „bönnu3" eins og þa3 er kallaS. Hjón-
in reyndust vera systkini. ViS œtlum líka
a3 birta margar myndir meS grein um
þau Chaplin, Sophiu Loren og Marlon
Brando, en þau ver3a saman í nýrri
Chaplin-mynd, en þetta hölum vi3 leng-
i3 úr Stölsku bla3i. Þá verSur grein um
fyrsta kassabílstjórann á íslandi meS
skemmtilegum myndum úr skemmtiför sem
farin var á slikum bilum fyrir hálfum
fimmla tug ára. ASrar athyglisverSar
greinar i blaSinu verSa um lislina a3
hlusta; um draugaskip (eins og þa3 er
kalIaS), sem marar S hálfu kafi á Fugla-
sandi utan við Cuxhaven, en þar hefur
þa3 veriS í mörg ár; og grein í þœttinum
undarlegir hlutir um menn, sem eru bún-
ir afburSa minnishœfileika. Svo er Svart-
höfSi, FurSur himins og jarSar og Allt og
sumt eins og œvinlega.
Ritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson (áb.). Blaóamenn: Steinunn S.
Briem, Gretar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvœmdastjóri: Hrafn Þórisson. Auglýsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Útgefandi:
Vikublaðið Fálkinn h.f. AOsetur: Ritstjórn, afgreiösla og auglýs-
ingar: Grettisgötu 8, Reykjavík. Símar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð i lausasölu 30,00 kr. Askrift kostar 90,00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.í.
Prentun meginmáls: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
6 FÁLKINN
Söiigur í brjósti smáfuglsins
ENGINN hafði talið Alþýðuflokkinn vænlegan til sigurs
í þessum kosningum. Þetta fór þó á annan veg. Hann er
sá stjórnarflokkanna sem situr eftir með traustsyfirlýsingu
frá kjósendum. Löngum hefur Alþýðuflokknum verið núið
upp úr því að hann hefði löðurmannlegu hlutverki að geg ia
í stjórnarsamstarfinu. Nú geta þær raddir þagnað þreyttar og ,
saddar lífdaga. Alþýðuflokkurinn hefur risið upp, og sannað
að söngurinn í brjósti smáfuglsins er meira en tístið eitt.
Ræða Bárðar Daníelssonar í útvarpinu um skipulagsmálin
var kannski sterkasta framboðsræðan í kosningunum. Óefað
*
Islenzk handrit
ófundin ?
Herra ritstjóri!
Ég hef verið að lesa blað
yðar um handritin. Það eru
fróðlegar greinar, enda skrif-
aðar eftir færustu sérfræðinga.
En oft hef ég velt fyrir mér
einu atriði: Er útilokað að eitt-
hvað sé til af fornum bókum
islenzkum sem enginn veit nú
um? Sá möguleiki er auðvitað
afskaplega ótrúlegur að eitt-
hvað finnist hér. Við eigum
ekki rústir húsa eða gömul
söfn sem enginn þekkir eða
hefur kannað. En er fjarstæða
að ímynda sér að eitthvað
kunni að vera til í söfnum er-
lendis? Hvað t. d. um Vati-
kanið í Róm? Er ekki sagt að
þar séu einhver ósköp af bók-
um sem almenningur hafi
engan aðgang að? Hyað segja
fræðimenn um þetta?
Grúskari
Svar:
Þaö eru sáralitlar likur fyrir
því aö til séu lieil handrit is-
lenzk í söfnum erlendis, en ein-
lwerjar slitrur gcetu ef til vill
fundizt einhvers staöar, og ís-
ienzk pappírsliandrit frá síöari
öldum munu ekki sérlega óal-
geng og þá líklega óskráö sums
staöar. Um VatikaniÖ er ekki
vitaö annaö en þaö aö þar eru
aö likindum einhver skjöl sem
lsland varöa þótt liandrit, forn
og merk séu þar naumast. Þess-
ar upplýsingar eru frá Jónasi