Fálkinn - 06.06.1966, Síða 11
KNUTUR MAGNÚSSON leikari
og steinsmiður tók okkur með eins
elskulegu brosi og hægt er að ætlast
til af manni með alskegg. Kannski
hefur hann misst af byrjun seinni
hluta myndarinnar af okkar völdurn,
vegna þess að hann vandaði vel til
svaranna:
1. Góðum myndum.
2. Afar jákvætt fyrir Hafnfirð-
inga.
3. Luther nokkur Adler hefur
aldrei brugðizt mér.
4. Chaplin o. s. frv. o. s. frv...
5. Mér er sama hvaðan gott ltem-
ur, jafnvel frá Japan.
6. Viðkvæmustu hluti er hægt
að gera bæði fallega og ljóta.
7. Hér vantar mig þekkingu, en
ég hef það á tilfinningunni að
það séu ekki Islendingar, —
þótt miðað sé við mannf jölda.
8. Aldrei er góð vísa of oft kveð-
in.
9. Hér brestur mig vit.
10. Nei, nei og aftur nei!
HYAÐ VILL FÓLKID SJÁ ?
HLÉIÐ I TÓNABÍÓI varð of stutt
til að við gætum fengið fullnægj-
andi þverskurð af kvikmyndasmekk
Reykvíkinga. Því brugðum við okk-
ur niður að Nýja Bíói, þar sem ver-
ið var að sýna Manninn með járn-
grímuna í síðasta sinn. Þar var ekki
marg-t um manninn, en inni í gang-
inum hitturn við stöllurnar GUÐ-
RUNU ANTONSDÓTTUR, sem vinn-
ur í banka og SIGRUNU RICHTER
skrifstofustúlku hjá Sambandi ís-
Ienzkra samvinnufélaga. Þær svör-
uðu spurningunum í sameiningu á
þessa leið:
1. Sannsögulegum léttum mynd-
um.
2. Kvikmyndahúsin í Reykjavík
eru að vísu fleiri, en í Hafnar-
firði er sýnt meira af góðum
dönskum myndum með Dirch
Passer.
3. Sophia Loren.
4. Sá sem stjómaði fyrri hlutan-
um af West Side Story.
5. Það er nú ýmist.
6. Það má ekki fara út í öfgar.
7. Frakkar og Bandaríkjamenn.
8. Það er ekki nógu mikið gert
af því að endursýna góðar
myndir eins og t. d. South
Pacific og Porgy and Bess og
svo mætti endursýna meira af
myndum með Dirch Passer.
9. Nei.
10. Nei.
HVAÐ VILL FÓLKIÐ SJÁ?
EYJÓLFUR MELSTED stud. phil.
stóð frammi á fremri gangi og hon-
um varð létt um svör:
1. Góðum glæpamyndumu
2. Yfir höfuð lélegt.
3. Enginn sérstakur.
4. Ditto.
5. Evrópskar.
6. Yfirleitt eru þau „humbug“-
7. Frakkar.
8. Nei.
9. Nei.
10. Ég hef ekkert út á barna-
myndirnar að setja.
Rétt er að taka fram til frekari
glöggvunar að við völdum okkur
fórnarlömb yfir unglingsaldri. Fimm
eru líklega á aldrinum 20 til 30 ára
og einn er á fertugsaldri. Fólkið var
spurt undirbúningslaust og án þess
að því gæfist tóm til að setja sig í
stellingar gagnvart spyrlinum. Svo
vonum við að svörin gefi nokkra
hugmynd um smekk almennings á
kvikmyndum yfirleitt, þó kannski
megi segja að hægt hefði verið að
fá fyllri mynd með því að spyrja
fleiri.
HVAÐ VILL FÓLKIÐ SJÁ ?
FÁLKINN
11