Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 28

Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 28
 9. OKTÓBER 2009 FÖSTUDAGUR2 ● geðhjálp Sigursteinn Másson er nýr for- maður Geðhjálpar en hann gegndi embættinu áður á árunum 2001 til 2007. Hann kom fyrst inn í félag- ið árið 1999 eftir að hafa sjálf- ur glímt við alvarleg veikindi frá 1996 og komst að raun um það að besta leiðin til sjálfshjálpar er að hjálpa öðrum. „Það varð mér öðru fremur til hjálpar að byrja að starfa með fé- laginu,“ segir Sigursteinn. Hann segir ýmislegt hafa breyst til batn- aðar á undanförnum árum. „Þar ber helst að nefna átak í búsetu- málum geðfatlaðra, en með aukn- um fjárveitingum tókst að ráða bót á brýnum húsnæðisvanda þeirra. Þá hefur líka tekist að vinna gegn fordómum og opna umræðuna um geðheilbrigðismál en mér finnst við Íslendingar standa framar öðrum þjóðum sem ég þekki til í þeim efnum. Hér ríkir umburð- arlyndi og skilningur á málefn- um geðsjúkra, og geðsjúkdómum fylgir ekki eins mikil stimplun og áður.“ Sigursteinn segir það að verða fyrir því að fá geðsjúkdóm eða alvarlega geðröskun í langfæst- um tilfellum þýða einhvers konar endalok. „Ef rétt er haldið á málum er frekar um kaflaskipti að ræða og í sumum tilfellum nýtt upphaf. Í mínu tilfelli sköpuðu veikindin þegar upp var staðið ný tækifæri og nýjan skilning á lífið og tilveruna.“ Sigursteinn bendir á að geðsjúkdómar og geðraskan- ir hafi alltaf fylgt mannkyninu. „Í dag vitum við þó meira um þá en áður og gerum okkur betur grein fyrir því hvað virkar og hvað ekki. Við leggjum því áherslu á það við stjórnvöld að nú þurfi að hugsa velferðarmálin upp á nýtt og greina hvað hefur reynst vel og hvað ekki. Við vitum til dæmis að stofnanabúseta og gamaldags geð- sjúkrahús virka ekki sem skyldi. Við þurfum að einbeita okkur að því sem virkar vel, eins og sam- félags- og nærþjónustu, og finna nýjar leiðir á þeim sviðum þar sem gera má betur.“ Þrátt fyrir kreppu sér Sigur- steinn mörg sóknarfæri og finnst mikill skilningur ríkja bæði í stjórn- og heilbrigðiskerfinu. „Ég held því að jarðvegurinn til breyt- inga hafi aldrei verið betri, enda neyðir kreppan okkur til að hugsa hlutina upp á nýtt. Fyrir hönd málefnisins og félagsins er ég því mjög bjartsýnn.“ Sigursteinn sér þó líka ýmsa váboða á lofti og segir erfitt að þurfa að draga saman á versta tíma. „Aðsókn í ráðgjöf hjá okkur tvöfaldaðist til að mynda í sumar miðað við sama tíma í fyrra svo þörfin er ljós. En auk þess að þjónusta fólk sem leitar til félagsins leggjum við ríka áherslu á stefnumótun og að veita aðhald og eftirlit með þeirri þjónustu sem er veitt. Það skipt- ir miklu máli þegar staðan er eins og hún er að fólk sé vakandi fyrir rétti sínum og leiti þess réttar ef það telur á sér brotið. Sagan sýnir að í þeim löndum þar sem efna- hagskreppa ríkir eiga mannrétt- indi alltaf undir högg að sækja, og þá sér í lagi mannréttindi minni- hlutahópa. Ég tel að mælikvarði okkar á hvert siðferðis- og mennt- astig þjóðarinnar sé verði hvernig okkur tekst að gæta mannréttinda minnihlutahópa á meðan kreppan gengur yfir. Í dag milli fjögur og sex verð- ur efnt til afmælishófs í Iðnó til að fagna þrjátíu ára afmæli félags- ins. Þangað kemur fólk sem hefur komið að starfi félagsins í gegn- um árin og munum við ekki síst minnast þeirra framsýnu kvenna sem komu saman í Seljakirkju fyrir þrjátíu árum til að stofna þetta hagsmunafélag geðsjúkra, aðstandenda og áhugafólks. Án þeirra framlags er ekki gott að segja til um hvar við stæðum í dag.“ - ve Sóknarfæri þrátt fyrir kreppu Útgefandi: Geðhjálp l Heimilisfang: Túngötu 7, 101 Reykjavík Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Auður Styrkársdóttir Vefsíða: www.gedhjalp.is l Sími: 570 1700 Sigursteinn telur jarðveginn til breytinga sjaldan hafa verið betri enda neyði kreppan fólk til að hugsa hlutina upp á nýtt. Á hátíðarfundi í dag, 9. október, mun stjórn Geðhjálpar afhenda frumkvæðisverðlaun félagsins í fyrsta sinn, en þau eru veitt fyrir nýjungar í þjónustu við geðsjúka og úrræði sem eru til þess fallin að efla geðheilsu. Að þessu sinni renna verðlaunin til þriggja aðila. Norðlingaskóli í Reykjavík hlýtur verð- launin fyrir framúrskarandi forvarnar- starf með einstaklingsmiðuðu námi sem miðar að því að styðja nemendur í að finna og nýta styrkleika sína og hæfileika sem best. Að mati stjórnar Geðhjálpar er þessi áhersla líkleg til að stuðla að geðheilbrigði nemenda. Björgin – geðræktarmiðstöð Suðurnesja hlýtur frumkvæðisverðlaun Geðhjálpar fyrir að sinna með framsýnum hætti vald- eflingu geðfatlaðra og fyrir að hjálpa fólki að finna leiðir til að auka lífsgæði sín. Samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum og metnaður þeirra í verkefninu er að mati stjórnar Geðhjálpar til fyrirmyndar og eftirbreytni. Jóna Rut Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkur- borg, hlýtur frumkvæðisverðlaun Geðhjálpar vegna ötuls starfs að Straumhvarfaverkefninu – nýjum búsetuúrræðum fyrir geð- fatlaða – í Reykjavík. Geðhjálp hefur átt afar gott samstarf við Jónu Rut, sem hefur í störfum sínum sýnt góðan skilning á mannréttindum geðfatlaðra og á mikilvægi þess að þeir lifi sjálf- stæðu lífi og njóti fullrar virðingar í samfélaginu. Geðhjálp þakkar hér með ofantöldum aðilum störf þeirra í þágu geðsjúkra. Frumkvöðlaverðlaun veitt í fyrsta sinn Framúrskarandi forvarnarstarf hefur verið unnið í Norðlingaskóla í Reykjavík. Á síðasta aðalfundi Geðhjálpar 28. mars voru eftirfarandi kjörin í stjórn félagsins: Stjórn Geðhjálpar Aðalstjórn: Auður Styrkársdóttir, ritari Birna Dís Vilbertsdóttir Lárus R. Haraldsson, gjaldkeri Lena Hákonardóttir Sesselja Jörgensen, varaformaður Sigursteinn R. Másson, formaður Vala Lárusdóttir Varastjórn: Erna Arngrímsdóttir Garðar Sölvi Helgason Olly Sveinbjörg Aðalgeirsdóttir FR ÉT TA BL A Ð IÐ /G VA Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fjarðarkaup, Maður Lifandi, Lyfja, Laugarnesapótek, Lyfjaver og Árbæjarapótek. Segðu BLESS við depurð og tómleikatilfinningu. Finndu lífsorkuna á ný. – 100% náttúruleg formúla. Segðu BLESS við taugaóróa og stress. Upplifðu innri frið og skýrari fókus. – 100% náttúruleg formúla. Segðu BLESS við orkuleysi. Örvaðu orkuflæðið og einbeitinguna. – 100% náttúruleg formúla. Jóna Rut Guðmunds- dóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.