Fréttablaðið - 09.10.2009, Side 58
34 9. október 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Tveir eftirsóttustu leik-
menn landsins, Gunnleifur Gunn-
leifsson og Gunnar Már Guð-
mundsson, enduðu báðir í FH og
það fyrir lægri upphæð en margur
gæti haldið samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum Fréttablaðsins.
Kreppan hefur vafalítið áhrif á
lækkandi verð leikmanna en kaup
FH á Gunnari Má Guðmundssyni
hljóta að teljast einhver bestu kaup
síðari ára á íslenska leikmanna-
markaðnum.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Fréttablaðsins kostaði Gunn-
ar aðeins um 1,5 milljónir króna,
sem hlýtur að teljast gjafverð fyrir
mann í slíkum gæðaflokki. Gunn-
ar, sem er að verða 27 ára gam-
all, hefur verið orðaður við félög
erlendis. Hann er reyndur leik-
maður og klárlega á lista með betri
leikmönnum deildarinnar þó svo
að hann hafi átt erfitt uppdráttar
með Fjölni síðasta sumar.
Gunnleifur fór aftur á móti fyrir
um tvær milljónir króna til FH
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum. HK vildi í upphafi fá fimm
milljónir fyrir Gunnleif en það tók
FH aldrei í mál. Samningaviðræð-
ur FH og HK tóku talsvert lang-
an tíma enda voru HK-menn harð-
ákveðnir í að fá góðan pening fyrir
sinn mann. Tvær milljónir fyrir
besta markvörð landsins verða
samt að teljast mjög fín kaup hjá
meisturunum.
Bæði Gunnleifur og Gunnar
Már voru samningsbundnir sínum
félögum.
Pétur Stephensen, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar FH, vildi
ekki staðfesta þessar upphæðir en
sagðist vera sáttur. Hann viður-
kenndi þó að árangur væri aldrei
ókeypis og bætti við að FH-ingar
ætluðu sér enn stærri hluti næsta
sumar. Liður í að ná þeim árangri
væri að styrkja liðið.
Pétur staðfesti enn fremur að
það væri kristaltært að Tryggvi
Guðmundsson yrði áfram í her-
búðum félagsins næsta sumar en
þrálátur orðrómur hefur verið um
að hann sé á förum.
Tryggvi hefur fundað með þjálf-
ara liðsins, Heimi Guðjónssyni, og
eru engin vandræði á milli þeirra
tveggja. Öllum fyrirspurnum í
leikmanninn verður því vísað á
bug að sögn Péturs.
„Tryggvi er með samning við
FH og hann verður hér áfram.
Hann er mikilvægur leikmaður í
meistaraliði sem ætlar sér að vera
áfram á toppnum. Það kemur því
ekki til greina að sleppa honum,“
sagði Pétur.
henry@frettabladid.is
Gæðaleikmenn á gjafverði
Nýjustu liðsmenn FH-inga, þeir Gunnleifur Gunnleifsson og Gunnar Már Guð-
mundsson, kostuðu félagið aðeins um 3,5 milljónir króna. Ljóst er að Tryggvi
Guðmundsson mun klára samning sinn við félagið og spila áfram með FH.
GÓÐUR LIÐSAUKI FH hefur fengið þá Gunnleif Gunnleifsson og Gunnar Má
Guðmundsson í sínar raðir og það fyrir frekar lítinn pening. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM OG VALLI
> Enginn áhugi á leikmanni ársins
Atli Guðnason var stjarna Pepsi-deildarinnar í ár og
kjörinn leikmaður ársins á lokahófi KSÍ
sem og af helstu fjölmiðlum landsins.
Einhver gæti haldið að slík frammi-
staða myndi vekja áhuga erlendra liða
á leikmanninum en svo er nú aldeilis
ekki. Pétur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
FH, staðfesti við Fréttablaðið í gær
að engin fyrirspurn hefði borist
í leikmanninn frá erlendu félagi.
Pétur sagðist persónulega vera
undrandi á því enda hefði Atli
verið frábær í liði FH í sumar.
Mikið hefur verið rætt og skrifað um hvar meistaraflokkar Hauka í
karla- og kvennaflokki í fótbolta muni spila heimaleiki sína næsta
sumar en bæði liðin unnu sér í sumar sem kunnugt er þátt-
tökurétt til þess að spila í efstu deild. Haukar kölluðu í gær til
blaðamannafundar út af málinu og tilkynntu þá að félagið
hefði náð samkomulagi við Val um að karla- og kvenna-
lið félagsins spiluðu „stærstu“ heimaleiki sína á
Vodafonevellinum næsta sumar. Samningurinn
er reyndar til þriggja ára en verður tekinn til
endurskoðunar í lok hvers tímabils. Haukar
stefna svo í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ að
því að byggja stúku fyrir 500 áhorfendur við
gervigrasvöll félagsins fyrir komandi sumar
og fá undanþágu frá KSÍ til þess að leika
þar þá heimaleiki sem ekki verða fara
fram á Vodafonevellinum. Flestir bjuggust
við því að Haukar myndu leita á náðir
FH um að deila Kaplakrikavelli og Ágúst
Sindri Karlsson, formaður Hauka, sagði að
vissulega hefði verið rætt við FH og Hafnarfjarðarbæ en þar hefði
verið lítið um samstarfsvilja.
„Við höfðum samband við forráðamenn FH um möguleik-
ann á að spila heimaleiki okkar í Krikanum næsta sumar
en þeir komu til baka með þá skýringu að nú þegar væri of
mikið álag á vellinum og hann mætti ekki við því að spilaðir
yrðu tuttugu leikir þar í viðbót. Við buðum þeim þá að æfa að
Ásvöllum til þess að létta álagið en þeir höfnuðu því. Þeir komu
þá með tillögur um að farið yrði í framkvæmdir í Krikanum sem
myndu örugglega kosta hundruð milljóna eða einhvern pening
sem ekki er til. Við skynjuðum bara að það væri enginn vilji fyrir
hendi hjá FH og Hafnarfjarðarbæ og leituðum því á önnur mið,
meðal annars á Hlíðarenda, og Valsmenn tóku
okkur bara opnum örmum,“ segir Ágúst Sindri.
Haukar staðfestu einnig í gær að Guðmundur
Viðar Mete væri búinn að samþykkja tveggja
ára samning við félagið auk þess sem þjálfarinn
Andri Marteinsson skrifaði undir nýjan
tveggja ára samning við Hauka.
BLAÐAMANNAFUNDUR HJÁ HAUKUM: TILKYNNT UM SAMSTARF VIÐ VAL OG SAMNINGA VIÐ ÞJÁLFARA OG LEIKMENN
Valsmenn tóku okkur bara opnum örmum
Algjör steik
Nýtt á Ruby Tuesday!
Girnilegur steikarseðill
sem eykur matarlystina
– prófaðu alvöru steik.
HANDBOLTI Vilhelm Gauti Berg-
sveinsson átti góða endurkomu
á handboltavöllinn í gær þegar
hann tryggði HK flott stig gegn
FH. Lokatölur urðu 28-28 þar
sem Vilhelm jafnaði er tvær mín-
útur lifðu leiks með hörkumarki.
Leikurinn var annars æsispenn-
andi og lengstum jafn. Bæði lið
hefðu getað stolið sigrinum en
jafntefli var líklega sanngjörn
niðurstaða.
„Ég er virkilega ánægður með
að byrja tímabilið með því að ná
stigi gegn sterku liði FH,“ sagði
Gunnar Magnússon, þjálfari HK
sem teflir fram mikið breyttu liði
frá síðustu leiktíð. „Við vorum
lengi í gang en við komum til
baka og mér hefði fundist það
ansi skítt ef við hefðum ekki
fengið stig úr þessum leik.“
FH-ingar voru niðurlútir eftir
leik og jarðarfararstemning í
klefanum. „Við stefnum hátt og
menn eru eðlilega svekktir með
að missa stig sem við vorum nán-
ast komnir með,“ sagði Ólafur
Guðmundsson FH-ingur. - hbg
Jafntefli í Digranesi:
Vilhelm tryggði
HK-ingum stig
HANDBOLTI Hlynur Morthens
þreytti frumraun sína með Val í
N1-deild karla í gær og átti sann-
kallaðan stjörnuleik í markinu.
Alls varði hann 26 skot í leiknum
þegar Valur vann sigur á Akur-
eyri á heimavelli, 23-19. Hlut-
fallsmarkvarsla Hlyns var 58
prósent.
Leikurinn var í járnum lengi
vel enda aldrei meira en tveggja
marka munur á liðunum þar til
Valur skoraði þrjú mörk á síðustu
þremur mínútunum. Hlynur lok-
aði nánast markinu á lokakafla
leiksins en gestirnir skoruðu
aðeins eitt mark á síðustu þrettán
mínútum leiksins.
„Hann Bubbi [Hlynur] dró ein-
faldlega úr okkur tennurnar með
sinni markvörslu. Skotin okkar
urðu lélegri eftir því sem leið
á leikinn enda varði hann nán-
ast allt sem kom á markið. Hann
bara vann okkur einn og óstudd-
ur,“ sagði Rúnar Sigtryggsson,
þjálfari Akureyrar.
Ernir Hrafn Arnarsson skoraði
sjö mörk fyrir Val og Arnór
Þór Gunnarsson sex. Árni Þór
Sigtryggs son var markahæstur í
liði Akureyrar með átta mörk. - esá
Valur vann Akureyri:
Hlynur fór á
kostum hjá Val
BARÁTTA FH-ingurinn Jón Heiðar Gunn-
arsson í baráttu við varnarmenn HK í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁTTA MÖRK Árni Þór Sigtryggsson skor-
aði átta mörk úr samtals 20 skotum fyrir
Akureyri í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN