Fréttablaðið - 09.10.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
Í dag er föstudagurinn 9. októb-
er 2009, 282. dagur ársins.
8.00 13.15 18.28
7.48 13.00 18.09
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Hvar er þín auglýsing?
35%
72%
Flestir muna víst hvar þeir voru þegar Geir Haarde flutti Guðs-
blessunarávarpið í fyrra. Ég sat í
hægindastól fyrir framan sjón-
varpið heima hjá mér, komin fjöru-
tíu vikur á leið, og fór eðlilega að
háskæla yfir því hvers konar
Ísland það væri sem myndi taka á
móti barninu mínu.
AÐALÁHYGGJUEFNIÐ var auð-
vitað framtíð dætra minna, bæði
fæddrar og ófæddrar. Yrði ein-
hver heilsugæsla? Menntun? Yrði
hægt að kaupa á þær almenni-
lega kuldaskó og gefa þeim hollan
mat að borða? Þetta og fjölmargt
annað leitaði á hugann. En mestar
áhyggjur hafði ég samt af því að
ekki yrðu til bananar.
EINS og þeir vita sem eiga ung
börn eru bananar algjör undir-
stöðufæðutegund. Þegar þetta
gerðist borðaði tveggja ára dótt-
ir mín minnst tvo banana á dag
og ég vissi sem er að frá sex mán-
aða aldri eru bananar afar góð og
æskileg fæða. Þeir eru hins vegar
innfluttir um langan veg og þar
sem ég sat í stólnum með kúluna út
í loftið og tárin lekandi niður kinn-
arnar sá ég fyrir mér að viðskipta-
þvinganir, einangrun og fátækt
myndu koma í veg fyrir allan inn-
flutning á þessari ofurfæðu allra
barna.
Á SVO til sama tíma sat maður á
skrifstofunni sinni og starði niður
í gólfið. Í fjórar klukkustund-
ir gerði hann ekkert annað en að
halda aftur af tárunum eftir að
hafa verið sakleysislega önnum
kafinn í mörg ár við að skipuleggja
og fara í laxveiðiferðir, halda rán-
dýrar risaveislur fyrir frægt og
ríkt fólk og syngja sæll en illa
um Dalílu í kátum hópi milljarða-
mæringa heimsins um borð í risa-
snekkju á Miðjarðarhafinu.
VIÐ sátum bæði og grétum, ég og
bankastjóri Kaupthing Singer &
Friedlander í London, þegar fjár-
málakerfið okkar hrundi. Ég grét
framtíð barnanna minna eftir að
við fjölskyldan vorum svipt æru
og auði af Samson án þess að hafa
nokkurn tíma einu sinni hummað
lagið um Dalílu. Hann grét snilli
sína, auð og vald. Hann syrgði
fallið heimsveldi, ég ávöxt.
ÁRI síðar er enn hægt að fá
banana á Íslandi. Ég er á fullu í
uppeldinu og bankastjórinn er
búinn að skrifa bók.
Bananar og tár