Vikan - 09.06.1960, Qupperneq 7
Hver verður
J'
^yU iu. czkÁ'tííd'x?SZ ll/JzU/ivkfc'}
Hér er Hólmfríður við störf f Út-
vegsbankanum og hamrar á vél sem
gerir — ja, guð má vita hvað.
Hún var nýbúin að baka, þegar við
komum og hér er hún að hella upp
á könnuna. Er hún kannske ekki
húsmóðurleg?
— Það er rómantískt úti við Við-
eyjarsund á vorin og þægileg af-
slöppun að labba þar um á lygnu
kvöldi eftir erfiðan dag í bankanum.
— Ég er enginn píanisti, sagði
Hólmfríður, — leik mér bara stund-
um við að spila með einum fingri.
Hins vegar get ég spilað á grammó-
fón ef þið viljið. —
HólmfriSur Egilsdóttir er sú
fyrsta í röðinni af fimm þokka-
gyðjum, sem Vikan ætlar að kynna
fyrir lesendum. Já, meira en kynna,
það stendur til að efna til atkvæða-
greiðslu meðal lesenda um það, hver
fegurst sé og sú sem vinnur mun
hljóta verðlaun.
Hólmfriður Egilsdóttir sagði, að
sér væri alveg sama, þótt hún væri
fyrst i röðinni, þegar við töluðum
við hana niðri i Útvegsbanka og
það lýsir ekki svo litilli hugprýði.
Hún treystir þvi — og það gerum
við líka — að hún hafi jafngóða
möguleika í lokin, því væntanlega
hafa lesendur allar myndirnar fyr-
ir framan sig, þegar þeir kveða upp
úrskurðinn. Hólmfriður var ekki
alveg viss í fyrstu, hvort hún ætti
að slá til, en móðir hennar sagði
henni, að hún yrði ábyggilega
hreykin af því að sýna barnabörn-
um sínum myndina á forsíðu Vik-
unnar og j)á var Hólmfríður ekki
í vafa lengur.
Við heimsóttum Hólmfriði á heim-
ili hennar við Skaftahlíð og áttum
við hana örstutt viðtal. Hún kvaðst
fædd og uppalin í Reykjavik og vera
18 ára um þessar mundir. Voðalegt,
sagði hún, hvað tíminn er fljótur
að líða. Það hlýtur að vera gaman
að lifa.
— Þú hefur auðvitað gengið á
gagnfræðaskóla eða ef til vill aðra
skóla.
— Ég lauk prófi frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1957. Þá fékk ég
styrk frá American Field Service og
var í Bandaríkjunum í eitt ár.
Framhald á bls. 31.
Þegar faðir hennar er í siglingu,
hefur hún skrifstofuna hans til af-
nota og þar er svo gott næði til
þess að líta í bók.
Tíminn er alltof
fljótur að líða
segir
Hólmfríður Egilsdóttir
sem er fyrst í röðinni af
fimm stúlkum sem keppa
um titilinn
Sumarstúlka Vikunnar 1960