Vikan - 09.06.1960, Side 10
*
Rósír scm ilmn
09 robkar fró Bessnstoðum
Um stórstreymi flæðir sjór inn i kjallara í Mið-
bænum. Sumir dæla þá án afláts til þess að forða
verðmætum frá skemmdum, en einstaka kjallari er
látinn afskiptalaus og hálffyllist af sjó um háflæði.
Einn slikur er við hliðina á gamla kirkjugarðinum
í Aðalstræti eða nánar tiltekið við hliðina á inn-
heimtu landssímans. Hann er nálega allur neðan jarð-
ar, og síðastliðinn aldarfjórðung hefur sjórinn síazt
upp um óþétt gólfið, og enginn hefur hirt um að
dæla honum burt.
Nú hafa þau undur og stórmerki gerzt, að i kjall-
aranum, þar sem draugar gátu ekki einu sinni hafzt
við, er komið menningarfyrirtæki. Vilhjálmur skáld
frá Skáholti hefur hafið staðinn til vegs og virðingar
og stofnsett þar verzlun, sem ber nafnið Blóma- og
listmunakjallarinn.
Viihjálm frá Skáholti þarf ekki að kynna fyrir
lesendum Vikunnar. Hann hefur raunar stundað
kaupmennsku áður: selt blóm á strætum og gatna-
mótum, en nú flytur hann inn með blómaverzlunina
og bætir við listmunum, — eins og nafnið sýnir.
Það er gengið niður tröppur, sem skáldið hefur
málað og skreytt. Hurðin er að vísu gisin, — en nógu
góð, segir hann, og allur kjallarinn blasir við, þegar
hún er opnuð. í horninu næst dyrunum er dæla. Sjálf-
sögð öryggisráðstöfun, segir Vilhjálmur, — annars
Vilhjálmur þarf ekki að kvarta um einmanaleik. Kjallarinn
er oft fullur af fólki, sem kemur til þess að kaupa blóm eða lista-
verk. Þarna geta menn tyllt sér niður á sófa. Kjallarinn er öðr-
um þræði eins og heimili. Á neðri myndinni situr skáldið og hvílir
sig eftir annríkisdag. En hann er mjög ánægður með fyrirtækið
og árangurinn af erfiðinu.
mundi allt fara í kaf um háflæðið. Hann byrjaði á þvi að dæla
út sjónum og hreinsa út ruslið og skranið, sem þar hafði safnazt
fyrir. Síðan þétti hann gólfið og málaði kjallarann innan. Þarna
hafði einhvern tíma verið miðstöð — og er þar enn. Vilhjálmur
hefur einungis fegrað hana með umgerð úr bambusstöngum og
blómum.
Þarna kennir margra og ólíkra grasa. Gamall kirkjubekkur
er þar til þess að tylla sér á, tveir rokkar frá Bessastöðum, brenni-
vinskútur, gamall og virðulegur embættismannsstóll, sem gegnir
því hlutverki að vera eins konar hásæti skáldsins i þessari
Paradís.
— Þetta tilheyrir Aðalstræti, er ekki svo?
— Aðalstræti 9. Húsið er líklega um 40 ára gamalt. Þórður
úrsmiður byggði húsið á sínum tima, en kjallarinn reyndist ó-
nothæfur.
— Hér eru málverk á öllum veggjum, er þetta til sölu eða ein-
ungis til yndis og ánægju hér?
— Þetta er allt til sölu. Ég tek málverk af málurum og sel
þau í umboðssölu. Já, þetta er yfirleitt allt saman í umboðssölu.
Þarna eru málverk eftir Kjarval, Engilberts, Sigurð Sigurðsson,
Jón Þorleifsson, Hafstein Austmann, Veturliða, Jóhannes Geir,
Sigfús Halldórsson, Gisla Sigurðsson, Svein Björnsson, Steinþór
Framhald á bls. 26.