Vikan - 09.06.1960, Síða 11
Hús og
húsbúnaður
Þessi sumarbústaður stendur í
Lapplandi og fer jafnvel við lands-
lagið þar og hann mundi gera hér,
enda er landslag mjög svipað þar
og á íslandi. Þessi sumarbústaður
er af einföldustu gerð, sem hús get-
ur af verið. Hann er eingöngu úr
timbri, setustofa með arni og
finnsku gufubaðsherbergi á neðra
gólfi, en svefnloft yfir hálfum gólf-
fletinum.
Nú eru síðustu forvöð að byrja á
SUMARBÚSTAÐNUM
Myndirnar tvær að neðan sýna svissneskan sumarbústað af óvenjulegri gerð.
Hann er byggður eins og pýramídi, en kvistir á tveimur hliðum. Hann stendur
á fjórum stólpum. Myndin til vinstri sýnir, hvernig innréttingunni er háttað.
Aðal-íveruherbergi í finnska sumarbústaðn-
um í Lapplandi, þarna er arinn og einföld, en
sterk húsgögn, — engin gluggatjöld. Þarna er
gömul dragkista, sem gegnir hlutverki sætis og
hirzlu.
Sumarbústaðurinn á myndinni að ofan er 30 fermetrar að flatarmáli, og það er oftast
nægilegt. Þar fyrir utan eru svalir. Hann er ekki hólfaður af; eldhús er í einu horninu
og rúm meðfram veggjum, en arinn í miðju.
Svefnherbergið í finnska sumar-
bústaðnum, sem sagt er frá hér að
ofan. Borðin á súðinni eru sköruð,
eins og tíðkast í baðstofum hér
á íslandi.