Vikan - 09.06.1960, Qupperneq 24
& '
&
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Einmitt núna get-
ur þú tekið að þér verkefnið, sem þú treystir þér
ekki til að ráða fram úr i síðustu viku, enda þótt
það krefjist talsverðrar líkamlegrar áreynslu. Vertu
ekki allt of óþolinmóður, þótt ekki gangi allt sem
skyldi í fyrstu, því að þetta eru aðeins byrjunarörðugleikar.
Það virðast ætla að skiptast á skin og skúrir i vikunni.
Nautsmerkið (21. apr.—21. maí): Þú skalt ekki
reyna að komast til botns i þessu viðkvæma máli
fyrr en í næstu viku. Þú mátt búast við Því að þaría
að berjast með kjafti og klóm, til þess að verja
málstað þinn, og til Þess þarf talsverða þrautseigju.
Þessi vika virðist annars hentug til viðskipta, og ef þú þarft
að eyða miklum peningum, bendir allt til Þess að það verði
ekki i einskisnýta hluti, þótt öðrum kunni aö virðast svo.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú skalt ekki
gefa nein loforð, sem binda þig um of í vikunni, þvi
að þótt þú sért allur af vilja gerður, er hætt við
að þú getir ekki uppfyllt þau loforð sakir anna
á vinnustað. Komdu vel fram við þennan mann,
þótt þú sért á móti honum, það gæti stuðlað að velgengni
þinni.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú verður að
vera samningsliprari við félaga þina. Það gætir allt
of mikillar tortryggni af þinni hálfu í garð þeirra,
sem þér er fyllilega óhætt að treysta. Láttu ekki
smámuni taka frá þér allar frístundir, annars getur
lífið orðið þér leitt eftir helgina. Ef þú sýnir starfsvilja, getur
það orðið til þess að fjárhagur þinn batnar til mikilla muna.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág): Stjörnurnar lofa
mikilli hamingju, og þá helzt í hópi nánustu félaga
þinna. Þessi nýi félagi þinn er ekki eins tryggur
og þú heldur, þess vegna skaltu ekki reiða þig á
hann um of. Ef þú ferð að öllu eins og fyrirrenn-
ari þinn varðandi þetta nýja verkefni, er hætt við að illa fari,
reyndu þess vegna að finna nýjar leiðir.
Meyjarmerkið (24. ág.—23. sept.): Ef til vill eru
framtíðaráætlanir þínar byggðar á röngum forsend-
um. Þú skalt reyna að kanna þér málið betur.
Nokkrir dagar vikunnar verða sannkallaðir ham-
ingjudagar, en hætt er við að það fylli þig leiða þá
daga, sem hversdagslegir eru. Þetta má ekki verða: þú verður
að meta það sem hamingjan býður þér og vera þess minnugur
að hún kemur ekki af sjálfu sér. Þú verður að leita hennar.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Ef leitað er til
þin í máli, sem þarf skjótrar úrlausnar, verður þú
að muna, að þótt það sé naumast hagstætt fyrir þig,
verður þú að láta réttlætistilfinningu þína ráða.
Endalok þessa máls verða — ef Þú hagar þér skyn-
samlega — þér mjög hliðholl .Þótt undarlegt megi virðast,
verður riírildi við einn félaga þinn aðeins til þess að binda
ykkur fastari vináttuböndum síðar meir.
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Það má ná þessu
takmarki, sem þú stefnir að á marga vegu, en allra
sízt. með of snöggum aðgerðum. Það færi miður, eí
þú næðir ekki þessu marki, einungis sakir óþolin-
mæði. Þú verður að vera kunningja þínum þakk-
látur fyrir þetta sem hann hefur gert fyrir þig. Þótt hann
ætlist ekki til neins, þætti honum samt vænt um að sjá þakk-
lætisvott af þinni hálfu. Heillatala 5. Heillalitur hvítt.
Bogmuðurinn (23. nóv.—21. des.): Þetta vandamál,
sem hefur valdið þér áhyggjum undanfarið, er alls
ekki til þess að gera sér grillur út af, og skaltu bægja
því frá þér hið fyrsta. Vikan virðist ætla að verða
skemmtileg, þú skalt aðeins varast að verða ekki
afbrýðisamur út af smámunum. Vikan verður giftu fólki til
mikilla heilla, og líkur eru á þvi að þau fari í stutt ferðalag.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Taktu alls ekki
neina afstöðu í þessu vandamáli kunningja þinna,
ellegar getur illa farið. Hætt er viö að Þú gerir
ýmislegt vanhugsað i vikunni, en samt þykjast
stjörnurnar sjá, að ekki fari illa, og er Það ekki Þér
að þakka. Vikan verður mun rómantískari en fyrri vika, og
ungt fólk gæti bundizt ævilöngum vináttuböndum eftir helgina.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. feb.): Hætt er við,
að þú verðir allt of upptekinn af hugmynd, sem þú
missir áhuga á, áður en þú lýkur verkefninu. Um
leið er hætt við, að Þú komir ekki auga á gullvægt
tækifæri, sem þér býðst. Um eða eftir helgina rætist
1 ;’gömul ósk þín fyrir tilstilli eins kunningja þíns. Gömul kona
ÍTíkemur talsvert við sögu í vikunni, og þótt henni verði á ein-
LíBhver skyssa, mátt Þú ekki taka það illa upp.
Fiskamerkið (20. feb.—20. marz): Þú mátt ekki
slaka til, þótt þú hafir ekki eins mikið að gera á
vinnustað og áður. Nú er einmitt tíminn til Þess að
ráða fram úr Þessu, sem Þér vannst ekki tími til í
síðustu viku. Taktu ekki of mikið mark á Þessu
stefnumóti. Heillatala 8.
w
Á+JL A
VIKA1H
Útgefandi: VIKAN H.F.
fíitstjóri:
Gísll Sigurðsson (ábm.)
Auglýsingastjóri:
Ásbjörn Magnússon
Framkvæmdastjóri:
Hilmar A. Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholti 33.
Simar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, simi 15017
Verð í lausasölu kr. 15. Áskriftarverð er Premtun: Hilmir h.f.
200 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram Myndamót: Myndamót h.f.
Þið fáið Vikuna í hverri viku
í næsta blaði verður m. a.:
♦ 1. verðlaun í verðlaunakeppni VIKUKNAR:
Kóngur í einn dag. — 2 opnur með myndum af við-
burðaríkum degi.
♦ Jónas Jónsson frá Hriflu í aldarspegli.
♦ Sumarstúlka VIKUNNAR 1960. — Keppnin heldur
áfram og nú birtist SIGRÚN RAGNARS.
♦ Happdrættisíbúðir DAS.
♦ Sálarfræði — örlagaþrungnasta vísindagrein 20. ald-
ar — eftir Matthías Jónasson.
♦ í sama báti — sönn saga úr daglega lífinu.
Það var á prófi í barnaskóla úti á landi. Kennariun var að
reyna kunnáttuna í kristum fræðum og hafði samið nokkrar
spurningar úr biblíusögúnum. Börnin voru yfirleitt fljóf að svara
og fóru strax úl að því búnu, nema einn af drengjunum. Hann
sat, ákaflega þungt hugsi og kennarinn sá að hann velti fyrir sér
spurningu, sem hljóðaði þannig: „Nefnið dæmi um speki
Salómons“. Þegar tíminn var gersamlega útrunninn, kom dreng-
urinn loksins með prófblaðið. Kennarinn þóttist viss um að dreng-
urinn hefði loksins fundið eitthvert magnað dæmi um speki
Salómons og varð dálitið hvumsa við, þegar hann las svarið við
spurningunni sem drengurinn hafði á þessa leið: „Hann var ekk-
ert spekur“.
BARNAGAMAN
/ toppi
Asparinnar
Var ekki hættulegt að fara upp
i topp trésins? Þar voru greinarn-
ar mjög grannar. Knud Erik var
kominn á fremsta hlunn með að
hætta við allt saman. En þá mundi
hann eftir hvolpinum, beit á jaxl-
inn og hét þvi að láta ekki drekkja |
litla greyinu i kalkleirgröfinni.
Svo réðst Knud Erik til upp- |
göngu i öspina. Hann þreif i eina |
af neðstu greinunum og sveiflaði j
sér upp á haaa.
Þegar drengurinn var kominn j
dálitið upp eftir trénu hvildi hann jj
sig og kastaði mæðinni. Honum \
virtist hann kominn hátt upp, en
þó var langt, eftir upp i toppinn.
Hann llangaði til þess að fara nið-
ur aftur. En hugsuain OfB hvolp-
inn herti á honum.
Knud Erik hélt áfram. Greinarn-
ar greantust eftir þvi, sem ofar