Vikan - 09.06.1960, Page 34
Og hvatti hann til þátttöku. Er Jón
Vildi koma sér hjá slíku, þar sem
þetta væri glæpur, kvaðst Sigurður
það eigi vita. ,,En þó svo væri,“ sagði
hann, „sem mér er til efs, þá hefur
margur guðsmaður, sem nú er á
himnum, áður verði glæpamaður, en
iðrazt síðan og fengið fyrirgefningu."
Þá lét Sigurður svo um mælt, er
Jón kvað sér efagjarnt í trúarefnum,
„að maður yrði annaðhvort að sleppa
allri trú og öllum boðorðum ellegar
halda sér við það, sem maður hefði
lært, og mundu flestir, er það gerðu,
eiga undir því að syndga meira eða
minna upp á náðina; mundi þá eigi
betra að liggja í smásyndum alla ævi,
heldur en þó maður drýgði einu sinni
glæp, sem nokkuð væri í varið, og
betraði sig svo vel á eftir“. Þannig
fékk hann eytt efasemdum Jóns í bili
og talið hann á þátttöku í ráninu, en
Jón sagði Hafliða bróður sinúm frá
Þessu, sem kvaðst Þá mundu verða
með, og skyldi eitt yfir þá báðá bræð-
ur ganga; lét Sigurður sér það vel
lika, því að hann vissi Hafliða örugg-
an liðsmann. Þannig lagði Sigurður
Gottsvinsson á ráðin og hafði síðar
forystu um framkvæmdirnar. Það
lýsir og nokkuð harðneskju hans, að
þegar þeir félagar iögðu upp í ráns-
förina, sýndi hann þeim hnif mikinn
og beittan, er hann kvað geta komið
að notum ef með þyrfti, og að hann
vildi einnig að þeir kveiktu í kotinu,
þegar þeir hefðu komizt yfir pen-
ingana, brenna fólkið bundið þar
inni, svo öruggt væri að ekki kæmist
upp glæpur þeirra. Annað er og það,
að þegar Sigurður komst að þvi, að
Jón Geirmundsson grét fyrir réttin-
um, er þeir voru yfirheyrðir fyrsta
sinni og áður en nokkur þeirra var
handtekinn, kom hann að máli við
Jón Kolbeinsson og vildi fá hann í
lið með sér að myrða Jón Geirmunds-
son, sem eflaust mundi meðganga
áður en langt um liði og koma þar
með upp um þá félaga alla; hét hann
Jóni Kolbeinssyni hluta Jóns hins af
þýfinu, ef hann gæti komizt að, hvar
hann hefði fólgið það, en Jón Kol-
beinsson aftók með öllu að veita
honum nokkurt lið og kvað þegar
nóg að gert. Til marks er það um
greind Sigurðar og hæfileika til að
tala aðra á sitt mál, að þegar hann
var í járnum í Hjálmholti, tókst hon-
um að tala svo um fyrir sjálfri sýslu-
mannsfrúnni, að hún þóttist viss um
sakleysi hans, bað mann sinn mjög
um að vægja honum og vann það á,
að hann var eigi svo hart haldinn
sem ella mundi. En áður hafði hann
legið í járnum um hríð á Hærings-
stöðum; sýndi hann þá bónda hníf
allbiturlegan, er hann bar á sér, og
sagði um leið: „Hægt hefði mér ver-
ið að reka sýslumanninn í gegn með
þessum, er hann var að leggja á mig
járnin, hefði ég viljað.“
Eftir að Sigurður hafði meðgengið,
eins og áður er getið, kom brátt í ljós
við frekari yfirheyrslur, að hann og
Gottsvin faðir hans mundu sekir um
ýmsa stuldi, sem ekki höfðu enn á þá
sannazt, þótt lengi hefði grunur á
þeim hvílt. Var iGottsvin gamli tekinn
höndum, og svo fór að hann játaði
á sig margan þjófnað, en ekki kemur
það þessari frásögn við, nema hvað
Sigurður fékkst aldrei til að með-
kenna, að hann hefði stolið frá séra
Oddi, þótt Gottsvin faðir hans hefði
fullyrt það, og er það þótti sannast,
að Sigurður hefði haft ótrúlega mikil
peningaráð skömmu eftir að þjófnað-
ur sá var framinn, kvaðst hann hafa
fundið þá úti í Vestmannaeyjum í sjó-
reknu stígvéli. Margt fleira kom á
daginn, er þótti sanna að Sigurður
hefði stolið frá séra Oddi, en hann
játaði eigi að heldur, og varð hann
eigi fyrir þann verknað dæmdur, —
enda nóg samt.
Fyrir héraðsdómi að Hróarsholti
hinn 21. janúar 1828 var Sigurður
Gottsvinsson dæmdur til að „hýðast
við staur, brennimarkast og erfiða
ævilangt í festingar þrældómi", auk
þess sem honum var gert að greiða
Hirti á Kambi og öðrum, sem hann
hafði játað á sig að hann hefði stol-
ið frá, ríflegar skaðabætur. Félagar
hans voru og dæmdir til refsingar og
skaðabóta, og hreyfði enginn þeirra
mótmælum utan Sigurður Gottsvins-
son og Jón Geirmundsson; þeir skutu
dómnum fyrir sitt leyti til landsyfir-
réttar. Var þá málinu skotið þangað
í heild, og breytti landsyfirréttur
dómnum nokkuð, til dæmis var úr
honum numið að Sigurður skyldi
brennimerkjast. Eftir héraðsdóminn
mun Sigurður hafa talið augljóst
hvað verða mundi. Hann hafði hagað
sér vel í gæzlunni á heimili sýslu-
manns, náð mikiili hylli hjá konu
sýslumanns, og sögur fara af því, að
gerzt hafi fósturdóttir þeirra hjóna
Sigurði helzt til eftirlát. Sigurður
mátti hins vegar við þvi búast að ekki
nyti hann þess atlætis lengi úr þessu;
strauk hann nú tvívegis, náðist í ann-
að skiptið mjög fljótlega, en í seinna
skiptið hélt hann inn á afrétt og mun
hafa hugsað sér að leggjast út eða
komast í slagtog við útilegumenn; þá
var komið haust og hefur Sigurði víst
ekki orðið sem bezt til fanga, því að
hann sneri sjálfviljugur heim að
Hjálmholti aftur, og lét sýslumaður
þessarar ferðar hans hvergi getið.
En nú þóttist hann ekki geta hald-
ið Sigurð Gottsvinsson lengur á sínu
heimili; kona sýslumanns bað honum
sífellt vægðar og eins eftir að hann
var sekur fundinn, en hún var mjög
heilsuveil, og vildi sýslumaður ekki
gera henni neitt gegn skapi; eins
mun margt hafa verið rætt um vin-
áttu þá, sem heimilisfólk taldi á milli
þeirra Sigurðar og fósturdóttur yfir-
valdsins. Það varð því úr, að sýslu-
maður kom Sigurði í óseyrarnes til
gæzlu, þar sem honum var gerður
rambyggður klefi með járnsleginni
hurð fyrir{ látinn liggja þar í járn-
um á fleti nætur og daga, en mat
smeygt inn til hans um rifu við
höfðalagið. Þó fékk hann að koma
út nokkra stund á hverjum degi. Þótti
honum daufleg vistin, en bar sig
karlmannlega að vanda; þó er sagt
að eitt sinn táraðist hann. Var hann
þá staddur úti og sá til ferða Lam-
bertsens kaupmanns á Eyrarbakka,
og reið hann gæðingi, sem Sigurður
átti áður og seldur hafði verið á
uppboði með öðrum eiftnum hinna
seku. Reið kaupmaður hestinum illa,
og það mátti Sigurður eigi sjá án þess
honum rynni það til rifja. Járnin
braut hann af sér hvað eftir annað
og sýndi bónda, en jafnan voru lögð
járn á hann aftur. Enn strauk hann,
mun hafa ætlað sér að komast austur
að E'yvindarmúla, leita ásjár hins
gamla húsbónda síns þar og biðja
hann leiðbeina sér til útilegumanna,
sem þá var almennt trúað að byggju
inn til jökla. Leitaði hann á náðir
gamals róðrarfélaga síns í leiðinni
þangað, en hann sveik Sigurð og kom
honum í hendur sýslumanni, og var
Sigurður enn fluttur í Óseyrarnes.
Þótti furðu gegna að hann skyldi
geta brotizt út úr klefanum, eins og
hann var ramger.
Þeir Kambsránsmenn voru fluttir
utan með póstskipinu vorið 1830. Þeg-
ar þeir voru fluttir til Reykjavík-
ur, var farið með þá Jón Geirmunds-
son og Kolbeinsson saman og sex
menn hafðir þeim til fylgdar, en Sig-
urður fluttur einn sér og fimm látnir
fylgja honum, og sannar þetta bezt
hve stórum harðari og hættulegri við-
skiptis Sigurður var álitinn þeim hin-
um. Þeir þremenningar voru og leidd-
ir út í bátinn, sem flytja átti þá til
skips, en Sigurður var borinn til
sjávar í járnum. E’r minnst varði,
sneri hann sig af gæzlumönnum sin-
um og stökk jafnfætis úr fjörunni upp
í bátinn, járnaður á höndum og fót-
um, og undruðust allir slíkan frækn-
leik.
Svo er sagt, að skipið hreppti veð-
ur stór í hafi; gekk þá eitthvað úr
lagi frammi á bugspjótinu, en skip-
stjóri taldi þýðingarlaust að freista
að senda þangað nokkurn skipverja,
því að hvort tveggja væri, að hann
kæmist þangað aldrei og skipið færist
þá og þegar hvort eð væri. Á Sig-
urður þá að hafa boðizt til að fara
þetta, verið látinn laus og komizt
klakklaust fram á bugspjótið, þar
sem honum tókst að lagfæra það er
með þurfti; hafi skipstjórinn talið
að hann hefði þar með borgið skip-
inu og heitið að biðja honum náðar
hjá kóngi. En því lét hann ekki af
því verða, að Sigurður sló einn af
skipsmönnum, er hann gerðist drukk-
inn í veizlu, sem skipstjóri hélt um
borð þegar skipið kom í höfn; á skip-
stjóri þá að hafa látið svo um mælt,
að það sæi hann, að ekki tjóaði að
biðja fyrir ógæfu Sigurðar. Sagt er
og, að Sigurður léti sér hvergi bregða,
þegar hann var hýddur, en segði böðl-
um sínum til storkunar, er því var
lokið, að sig klæjaði bakið; hafi yfir-
maðurinn þá reiðzt svo að hann lét
binda Sigurð aftur við staurinn og
hýða hann, unz holdið tægðist úr
bakinu, en hann brá sér ekki að held-
ur, og einnig er það sagt til merkis
um hreysti hans, að sár hans greru
svo íljótt, að undrum sætti.
Sannleiksgildi þessara sögusagna
skal þó látið liggja á milli hluta; hitt
er sannað mál, að Sigurður var slíkur
garpur að afli, fimi og dirfsku, að vel
hefði honum verið trúandi til að
vinna slikt afrek, hefði til þess kom-
ið; ekki er heldur óliklegt að þetta
hafi í rauninni gerzt; Sigurður hafi
boðizt til að klífa fram á bugspjótið
að öðrum frágengnum og tekizt að
lagfæra Það, sem úrskeiðis hafði
gengið, en ekki er þó líklegt að hann
hafi þar með borgið skipinu; högun
Þcer
ur, sern
húsmaeð-
reynt
hafa Ciozone
þvottaduí'
nota aldrei
annað.
Clozone inni-
heldur súrefnis-
korn sem
freyða dósam-
iega °g g)ora *
þvottinn
mjallahvítan
og bragg'e9‘
..W
Clozone heíir hlotió sér-
stök meðmœli sem gott
þvottaduft í þvottavélar.
Heildsölubirgöir:
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
34
VIKAN