Vikan - 08.06.1961, Side 9
.
(
mm-mm
;
S:SsSs!;;S;S;;:;Sí;::;
iiippii
íSíííiííííS^ííífSí
1111
ilfli
mmimsmi
:
SI
:
: : ..
mmm
Stundum kemur það fyrir að maður og kona geta
ekki verið hamingjusöm samtímis. Annað verður
að þjást, hafði hann sagt, en Ulla kærði sig ekki
um það hlutverk
DGJALDAÞESS
verið hann sjálfur frá upphafi, heiBarlegur i staB-
inn fyrir að vera með þetta fals. Kannski mundi
hún hafa elskað hann, þó að hún vissi, hvernig
hann væri.
Hún mundi greinilega, hvernig þetta byrjaði
allt saman — og Það aðeins nokkrum mánuðum
eftir brúðkaupið. Herbert hafði komið seint heim
frá skrifstofunni, — yfirvinna og mikilvæg samtöl
við áríðandi viðskiptavini. Á fundi hjá einhverjum
lögfræðingi hafði hann hitt gamlan vin, sem hann
hafði ekki séð í mörg ár o.s.frv. Vinurinn var
alveg dásamlegur maður, i rauninni einhver bezti
maður, sem hann þekkti, vel gefinn, samvizkusam-
ur, skynsamur, ríkur og aðgætinn í peningamálum.
Já, Herbert vissi svo sem, hvernig hann átti að
snúa sig út úr hlutunum, þegar hann sat fyrir
framan arininn í slopp og hélt í hönd hennar. —
Eftir fundinn fengum við okkur einn litinn saman,
hélt hann áfram, — og ég sagði honum auðvitað,
að ég væri giftur þér og hamingjusamasti maður
á jörðinni. Hann varð ánægður, því að hann hef-
ur þekkt mig svo lengi og veit, hve ég hef alltaf
verið einmana og hve erfitt ég á með að um-
gangast annað fólk. Ég sagði honum einnig frá
peningunum þínum og frá hlutabréfunum, sem
þú átt í verksmiðjunni, og þegar hann heyrði, að
gróðinn af þeim væri aðeins 5%, varð hann mjög
hneykslaður. Hann er yfirmaður eins stærsta
byggingarfélags í landinu, og hann sagði, að það
næði ekki nokkurri átt að fá svona litið fyrir pen-
ingana. Hann gæti séð um, að við græddum að
minnsta kosti 12 til 14% á þeim. En ég sagði hon-
um, að ég ætlaði að tala um þetta við þig. Held-
urðu ekki, að það væri góð hugmynd að selja
eitthvað af hlutabréfunum og koma þeim fyrir I
nýbyggingunum hans, þú skilur . . .
Þú skilur, þú skilur, — það hafði alltaf kveðið
við hjá honum. En Ulla hafði ekkert skilið, hún
hafði aðeins treyst honum i stað þess að skilja
hann, og henni hafði þótt vænt um hann, og smátt
og smátt hafði hún leyft honum að fara með
peningana sína eins og hann vildi. Hann fékk
leyfi til að selja og kaupa, og það leit út fyrir, að
allt gengi vel, og gamli vinurinn hans leit út fyrir
að vera eins slunginn og hann hafði talið. Og
auglýsingafyrirtæki Herberts gekk iika vel eftir
öllum sólarmerkjum að dæma. Henni fannst Her-
bert slíta sér út á vinnu. Hann vann oft fram á
miðjar nætur og kom þreyttur og slappur heim,
en alltaf tók Ulla á móti honum. Hún beið eftir
honum með mat og eld á arninum. Hún grunaði
hann aldrei um neitt.
KKI heldur, þegar hún fékk fyrsta bréfið. —
Gerið þér yður ljóst, að maðurinn yðar er
svikari ? stóð þar með prentstöfum, — að hann
hefur svikið út úr yður átján hundruð þúsund krón-
ur og að hann hefur frillu, sem kostar yður hundr-
að þúsund á ári?
Ulla hafði orðið alveg miður sín yfir svo lág-
kúrulegum ásökunum af óþekktum bréfritara.
Hún hafði ekki getað fengið sig til að nefna bréf-
ið á nafn við hann. Einhver afbrýðisamur þorp-
ari, kannski keppinautur Herberts, hlaut að hafa
skrifað Þetta. Hún reif bréfið í sundur og píndi
sjálfa sig til að hugsa ekki um Þetta.
Jafnvel eftir að næsta bréf kom, en það var ná-
kvæmlega mánuði síðar og einmitt daginn, sem að
Herbert seldi síðustu hlutabréf hennar fyrir ein-
hverja mjög fína pappíra, neitaði hún að trúa þvi,
að nokkurt sannleikskorn gæti verið I þessu. Ó-
kunni bréfritarinn sagði meðal annars, að Her-
bert hefði sjálfur aldrei unnið fyrir einum ein-
asta eyri, og þeir peningar, sem hann segðist hafa
keypt ný hlutabréf fyrir, hefðu farið í frillur og
vafasöm viðskipti.
Eftir þriðja bréfið varð Ulla að tala við ein-
hvtrn. Hún fór til Vibeku, beztu vinkonu sinnar,
og trúði henni fyrir öllu sarhan. Það var í fyrsta
skipti, sem Ulla minntist á samband sitt við Her-
bert við einhvern óviðkomandi. Hún las bréfið
upphátt fyrir vinkonu sina. Það fletti ofan af
óheiðarleika Herberts i stóru og smáu. Þegar hún
Framhald á bls. 34.
VIKAM 9