Vikan - 08.06.1961, Page 16
Það var Jerry, sem stakk upp á því að þau fengju sér einn lítinn.
„Líttu bara á hvernig hún hreyfir sig,“ sagði Jerry. „Þær hljóta
að hafa einhvern sérstakan innbyggðan mótor.
Kvikmyndasagra ¥iknnnar
ENGINN ER
FULLKOMINN
Efnisyfirlit: Þetta gerðist á tímum sprúttsala,
knæpulífs og bófabardaga í Chicago. Joe og
Jerry eru atvinnulausir hljómlistarmenn, sem
verða óviljandi vitni að því að Spats Colombo
og félagar hans myrða nokkra menn. Þeim
tekst með naumindum að flýja. En Þar sem
þeir gera sér ljóst, að Spats muni ekki unna
sér hvíldar fyrr en hahn hefur fundið þá og
drepið, þykjast þeir vera stúlkur og fá vinnu
með Sweet Sue og hljómsveit hennar, en þar
spila eingöngu stúlkur. Hljómsveitin er á leið
til Miami og á að spila þar um tima.
Fyrir unga og hrausta Bandarikjamenn eins og
Joe og .Terry var þetta afleit klípa. En þar sem
þeir höfðu tekið þá ákvörðun að breytast í stúlk-
ur til að forðast Spats Colombo, áttu þeir enga
aðra kosti.
Þó að það hefði hvarflað að þeim að hætta við
allt saman, hefðu æpandi fyrirsagnir blaðanna
fljótleg aftrað þeim frá því. ,.Sjö myrtir í bíla-
geymslu í norðurhluta Chicago. Hætta á blóð-
ugum eftirleik" stóð þar stórum stöfum.
Bæði Jerry og Joe óttuðust að blóðugi eftirleik-
urinn mundi beinast að þeim og útkoma hans yrði
lík beirra liggjandi hlið við hlið I líkhúsinu.
En þegar þeir gengu eftlr járnbrautarpallinum
til að kynna sig fyrir Sweet Sue og hljómsveit-
inni. fannst þeim að þeir yrðu að borga frelsið
dýru verði.
Það var ekki það versta að vera með fölsk
brjóst, i þröngum pilsum, á háum hælum og með
hárkoliur. Nei, það erfiðasta var göngulagið.
Þá'komu þeir auga á Sugar, sem gekk eftir
brautarpallinum með litla havai-gítarinn sinn
undir hendinni — og sjálfstraust beirra hvarf eins
og dögg fyrir sólu. Þetta var allt til einskis —
beir voru ekki vaxnir eins og stúlkur. En aðal-
lega var nú Það, að meðan þeir horfðu á þessa
dásamlegu lióshærðu, kvenlegu opinberun, voru
tilfinningar þeirra engan veginn eins og stúlkna.
ÞEIR VORU TEKNIR GILDIR.
,.Littu bara á hvernig hún hreyfir sig,“ sagði
Jerry. „Þær hljóta að hafa einhvern sérstakan
innbyggðan mótor. Ég get fullvissað þig um, að
þær tilheyra alveg gjöróliku kyni." Það var eins
og þetta væru splunkuný sannindi, sem hefðu
aldrei hvarflað að honum fyrr.
Þetta gekk allt vel. Það reyndist ekki eins erf-
itt og þeir höfðu haldið, að yfirstiga fyrstu erfið-
leikana. Sweet Sue tók víngjarnlega á móti þeim,
þegar þeir kynntu sig sem kontrabassa- og saxo-
fónleikara frá Poliakoff ráðningastofunni.
Bienstock umboðsmaður hennar var ekki siður
hrifinn, sérstaklega eftir að Joe bætti þvi við
með skrækri röddu, að Þeir hefðu verið I þrjú ár
við Sheboyga-hljómlistarskólann.
„Það lítur út fyrir, að Poliakoff hafi tekizt að.
útvega okkur fínar dömur í þetta sinn,“ hvíslaði
hann að Sue.
,,Þú ættir að benda hinum stúlkunum á að
gæta framkomu sinnar," sagði hún.
Þegar þeir komu inn í sérvagninn, sem ætlaður
var fyrir Sweet Sue og stúlkurnar hennar, kom
kliðurinn af kvenröddum á móti þeim. Joe og
Jerry önduðu djúpt, löguðu lífstykkin og gengu
inn.
,,Hæ,“ sagði Jerry. „Ég er konstrabassaspilarinn
og þið skuluð kalla mig Daphne."
„Ég heiti Josefína og spila á saxofóninn,'1 skríkti
Joe.
Kveðjuhrópin glumdu úr öllum hornum klef-
ans. Svona mikið af kvenlegum yndisþokka var
Jerry næstum ofurefli. Joe átti fullt í fangi með
að róa hann.
„Þegar ég var strákur, Joe,“ sagði hann, þegar
þeir voru orðnir einir, „dreymdi mig stundum
að ég hefði lokazt inni í kökubúð yfir nóttina.
Allt í kringum mig var fullt af sælgæti."
„Hlustaðu nú á mig,“ tók Joe fram í fyrir Jerry
í þessari smjattandi frásögn hans. „Ekkert smjör
og engar kökur. Við verðum að hafa strangt
mataræði."
En hvorugur þeirra var sérlega hrifinn af þessu
sérstaka matarræði þegar þeir komu inn á snyrti-
herbergið til að laga annað brjóstið á Jerry, en
bað hafði sigið dálitið. Á einum vaskinum sat
Sugar hin rólegasta og vingsaði fallegum fótun-
um og saup stóran sopa úr áfengisflösku.
Henni svelgdist á, en náði sér fljótt og brosti
blíðlega. „Ég var dauðhrædd um að þetta væri
Sweet Sue. Þið segið engum frá þessu, er það?“
Jerry og Joe þvinguðu sig til að líta af fögrum
fótleggjum Sugar og samþykktu það.
„Ef það kemst enn einu sinni upp um mig,
verð ég rekin úr hljómsveitinni," sagði hún.
FREISTING.
,.Hæ, viljið þið svolítið? Þetta er bourbon. Ég
vil síður að þið haldið að ég sé ofdrykkjumann-
eskja. Ég get hætt hvenær sem ég vil. Það er
bara það, að ég vil það ekki ...
Það er sérstaklega þegar illa liggur á mér. All-
ar stúlkurnar drekka, en það kemst bara upp um
mig. Þannig hefur allt mitt líf verið. Það bezta
fellur aldrei í minn hlut.“
„Drottinn minn," andvarpaöi Jerry, þegar hún
hvarf út úr dyrunum. „Það væri ekki amalegt að
kynnast henni nánar."
Það kom lika i ljós, að freistingarnar ástóttu
Jerry.
Þegar Sugar missti óvart flösku á æfingu beint
fyrir framan fæturna á Sweet Sue, þá var það
Jerry, sem hljóp til og sagði, að hann ætti flösk-
una og bjargaði þannig Sugar frá brottrekstri,
Það kvöld skreið Sugar upp í efri kojuna til
hans. Hún var ósegjanlega þakklát. Þetta hafði
verið svo yndislegt af Daphne, að bjarga henni
frá reiði Sweet Sue.
Jerry, sem lá þarna í jómfrúlegum náttkjól,
umlaði vandræðalega. Þetta var mjög þröng efri
koja. Sugar var í svörtum blúndunærfötum. Æðis-
lega endurtók hann varnarorð Jerry í huganum:
„Ég er stúlka, ég er stúlka."
En þegar Sugar hjúfraði sig upp að honum I
kojunni, fannst honum, að því færi fjarri, að
hann væri stúlka. „Aumingja þú,“ hvislaði Sugar,
„þú titrar öll.“
Það var Jerry, sem stakk upp á því, að þau
fengju sér einn lítinn.
Einn drykkur gat komið ýmsu af stað — kannski
mundi það komast upp, að Daphne og Josephine
voru karlmenn — kannski mundi Spats ná þeim
— það væri ekki svo amalegur dauðdagi!
I neðri kojunni svaf Joe rólega, meðan Jerry
stal hálfri flösku af bourbon frá honum.
Það sem Jerry hafði hugsað sér, var innileg
samvera meö Sugar einni og sjá hverju fram
yndi. En áður en hann vissi af, var helmingur-
inn af stelpunum í hljómsveitinni kominn upp i
kojuna til að taka þátt í skemmtuninni.
Ein þeirra kom með vermouthflösku, önnur
með hitapoka til að nota sem hristara og sú þriðja
kom með kex og ost. Um allan svefnvagninn var
hvíslað, að það væri party uppi í efri koju nr. 7.
Með allar þessar fjörugu stúlkur ofan á sér og
allt í kringum sig, sá Jerry fram á að ekkert yrði
úr náinni samveru þeirra Sugar.
Æstur reyndi hann að koma þeim í burtu. „Það
má ekki borða kex i rúminu. Hypjið ykkur í
burtu stelpur og haldið ykkar eigin veizlur."
Það voru kirsiberin —- eða réttara sagt vöntun
á kirsiberjum, sem vöktu Joe. E'inhver vakti hann
með því að spyrja, hvort hann ætti nokkur
kirsiber.
HVAÐ GENGUR A?
Skyndilega glaðvaknaði hann. „Kirsiber! Hvað
gengur eiginlega á hérna?" öskraði hann.
Fram undan ótal náttfataklæddum fótum gægð-
ist rytjulegur Jerry. „Þetta er ekki mér að kenna,
ég bauð þeim ekki,“ sagði hann aumingjalega.
Þegar Sugar brá sér út I baðherbergið til að ná
í ís, elti Joe hana þangað íklæddur frúarlegum
náttkjólnum. „Sugar, þú kemur þér í vandræði."
„Ég er víst ekki sérlega greind," sagði hún
hlæjandi. „Ef ég hefði nokkra vitglóru, mundi ég
ekki vera hér í lestinni með þessari kvennahljóm-
Framhald á bls. 35.
HÆTTULEGUR LEIKUR.
16 VTHAN