Vikan - 08.06.1961, Page 18
FÖT H.F.
Engin
T.d. eru þeir núna að koma á brezku
tízkunni, sem er íhaldssamari en aðr-
ar. Svo er þa<5, að núna nota þeir miklu
lóttari efni. Þeir eru með efni, sem
eru 8 til 12 únsur á feryard, en við
efni sem eru 14 til 18 únsur. Það má
orða afstöðu okkar þannig, að við
leitumst við að fyigja tízkunni, án þess
að fara út i nein ævintýri.
Föt h/f hefur nú starfað um 20
ára skeið og er það afsprengi Ander-
sen og Lauth, sem er smásöluverzlun
fyrirtækisins. Hjá fyrirtækinu starfar
lika Jón Þórisson klæðskeri og benti
hann á, að þetta væri mjög ungur
iðnaður hér á landi, sem fyrst hefði
farið að vaxa fiskur um hrygg á
seinustu árum. Bættur vélakostur og
æfðara fólk hefði verið undirstaðan
að þeim framförum, sem átt hafa sér
stað. Og sannast mála væri, að föt
framleidd hér, stæðu erlendum föt-
um ekki að baki i nýtingu efnis, né
frágangi öllum. Og viljum við taka
undir það.
t>
Föt úr skozku tveed (Thorneproof)
frá Föt h.f.
Sportjakkinn á fyrstu sfðu er frá Föt
h.f. og er úr handofnu Harris tveed.
Björn
Fyrst förum við í fataverksmiðjuna
Föt h.f., sem er stór aðili i tilbúnum
fatnaði. Við ræðum þar við Björn
Guðmundsson yfirklæðskera. Björn
hefur stundað nám í Bandarikjunum
og hefu greinilega hrifizt af gangi
þessara mála þar.
— Hvaðan fáið þið ykkar hugmynd-
ir, og að hverjum hallizt þið helzt i
tfzkunni?
. — Við fáum þær alls staðar að. Við
höilum okkur kannski frekar að Banda-
ríkjamönnum í því, að þar er minni
sveifla í tízkunni. Þetta á við fjölda-
framleiðslu. Auðvitað hafa Bandarikja-
menn áhrif á Evrópumenn og öfugt.
tízkuævintýri
Brenndir litir — Vönduð efni
Brenndir litir og vönduð efni.
Hjá Andrési hittum við fyrir Þórarin
Andrésson. Hann segir:
— Hneppingin er ofarlega með jirem
tölum. Það er mest um það hér hjá okk-
ur, þó er í blöðum áberandi mikið af ein-
hnepptum fötum á tvær tölur. Svo hefur
það farið I vöxt að menn vilja fá vönduð
efni, leggja mikið upp úr þvi. Við höfum
fengið efni frá Bretlandi, sem eru bæði
góð og ódýr. Af innlendum efnum höfum
við verið með mest frá Gefjun og fram-
leiða þeir sérstök mynztur fyrir okkur.
Við höfUtil að tlndanförnu saumað mikið,
aðallega úr enslulnl efnmn, eftir máli.
Hvað viðvikilr litilm þá eru það þessi
svokölluðu brenndu litir, það cr viss glóð
I þeim. Þeir erti inikið notaðir á niegin-
landinu og Bretar búa þetta til, lió þeir
noti það litið sjálfir.
Andrés Andrésson klæðskeri hefur nú
starfrækt fatafyrirtæki um fimmtiu ár.
Og er nákvæmlega vika siðan að fyrír-
tækið átti fimmtiu ára afmæli. Það var
nefnilega 1. júnf 1911. scm Andrés settí
á stofn klæðskerastofu og klæðaverzlun.
Hafði hann þá þrennt hjá sér. Einn svéin
eina stúlku og einn lærling. En þá strax
um haustið var tólf manns hjá honum
og þannig bættist 1 hópinn, þangað til að
mest störfuðu hjá honum um hundrað
manns. Andrés flutti í húsnæði, sem hann
er enn i 1919—20, en það hús átti hann
sjálfur og var það fullbyggt sjö árum
seinna. Andrés segir miklar breytingar
hafa átt sér s.tað um verktækni alla og
frágang bara seinustu tvo áratungina.
Þannig væri það ekki með nokkru móti
seljanlegt í dag, það sem þótti bærileg
vara fyrir stríð og átti hann þar við frá-
gang allan og útlit á fatnaði. Þannig hefði
það ekki verið fyrir en í seinni heims-
styrjöldinni að fengin voru tæki, sem í
raun og veru áttu við fjöldaframleiðslu á
fatnaði.
Þórarinn
1B VIKAN.