Vikan - 08.06.1961, Page 20
Sportjakki úr íslenzku tveed
Kamgarnsföt frá Gefjun.
Verksmiðjur Sambandsins á Akureyri
íiafa sent á markaðinn hverja úrvaisvöruna
i fætur annarri og átt mikinn þátt í því
sð reka slíðruorð af íslenzkum iðnaði. Fata-
verksmiðja Gefjunar framleiðir jöfnum
liöndum úr útlendum og innlendum fata-
sfnum. Verksmiðjan hefur nú flutt í nýtt
húsnæði við Snorrabraut og hefur þar mikiu
betri aðstöðu en i Kirkjustræti, þar sem
verksmiðjan var áður. Verzlunarstjórinn,
Sigtryggur Hallgrímsson, kvaðst mjög von-
góður um framtíð íslenzks fataiðnaðar og
við höfum ekki ástæðu til annars en að
taka undir með honum. Við hittum einnig
að máli Jón Inga Rósantsson, yfirklæðskera
hjá Gefjun og spurðum hann þeirrar spurn-
ingar, hvort hann teldi útlit á karlmanna-
fatnaði hér vera frábrugðið þvi sem hann
hefði séð í nágrannalöndum okkar. Hann
svaraði:
— Það hefur verið svolítið frábrugðið
og því miður hefur það verið vegna þess,
að við höfum verið heldur á eftir í fata-
iðnaðinum. En nú nálgumst við þá óðfluga.
— Ég sé þarna ýmsar gerðir af þykkum
tveedefnum. Er þetta enskt eða ítalskt?
— Nei, reyndar ekki, þetta er íslenzkt
sfni, — ofið fyrir norðan. Yfirgnæfandi
meirihluti af þessum efnum er frá verk-
smiðjunni á Akureyri.
— Hefur ekki terrylene rutt sér mikið
til rúms?
— Jú, það hefur mikla kosti og er notað
i vaxandi mæli. Við höfum hér allmargar
gerðir terrylene-efna og þau eru ofin á
Akureyri undir ströngu eftirliti ensku
terrylene-verksmiðjanna.
— Við höfum nýlega talað við klæðskera,
sem sagðist taka ameríska fataframleiðslu
helzt til fyrirmyndar. Hvað gerið þið hér í
þeim efnum?
—• Ég held mér sé óhætt að segja, að við
höllumst meir að evrópskri tízku. Annars
eru það að nokkru leyti kröfur viðskipta-
vinanna á hverjum tíma, sem skapa tízk-
una. Upp á síðkastið hafa menn viljað létt
föt og axlastopp og annað sem þyngir fötin
hefur verið tekið burtu. Fyrir sumarið
framleiðum við alltaf mikið af stökum jökk-
um og buxum og i þessa jakka notum við
að nokkru leyti tveed, sem ofið er úr ís-
lenzkri ull.
GEFJUN
fólU hcfur fengið
auUin 09 betri
sUiloinQ á fótum
Með FEVON þvottaefninu
veröur þvotturinn hvítur
og ilmandi - Reynið FEVON
— Ég veit að ég hef blandað það nóg — ég
er að leita að hringnum mínum.
20 VIKAN