Vikan - 08.06.1961, Qupperneq 22
Læknirinn segir:
FYRSTl SKREFIIV
Börnin kveikja auðvitað metnað í brjósti
foreldra sinna. — Pétur minr var farinn að
ganga, þegar liann var x mánaða gamall, segir
stolt móðir.
Við settum x í stað þess að nota einhverja
ákveðna tölu. Lesandinn getur sjálfur valið
sér hæfilega tölu. Hér á eftir verður rætt
um það, livenær eðlilegt sé, að börn fari að
ganga.
Hæfileikar barna til þess að grípa um eða
teygja sig eftir litlum trébútum eru sýndir
á þessari mynd:
Þegar barn er átta vikna gamalt, getur
það gripið utan um stöng og haldið fast um
liana. . Stolti foreldranna er fullnægt, þegar
þeir finna, live fast iitli anginn grípur um
fingur þeirra.
— Er hann ekki sterkur! Hann verður
áreiðanlega mikill kraftakarl, segir pabbi
grobbinn.
Allt frá því er inenn liöfðust við í trjám,
hafa þeir kunnað að gripa utan um ílanga
hluti. Það var mönnum nauðsynlegt að geta
haldið sér liangandi í trjánum, ellegar hefðu
þeir orðið blóðþyrsturn rándýrum að bráð.
Á okkar dögum skijitir þetta ekki eins
miklu. Hins vegar skiptir það talsvert miklu,
hvernig börn grípa um bolla.
Þeirri þróun er lýst á næstu mynd.
Ef til vill er ekki alls kostar rétt að nota
sérstök aldursskeið til skýringar, og það kann
að valda sumum foreldrum einhverjum von-
brigðum, ef barn þeirra er ekki jafnlangt kom-
ið á þróunarbrautinni og sýnt er á þessum
myndum.
Menn verða að gera sér Ijóst, að þróunin
er mishröð, og verður engin ályktun dregin
af hraða liennar varðandi gáfnafar barna.
Við getum ekki öll verið á undan tímanum,
en þótt furðulegt megi virðast, krefjast 80
af hundraði foreldra einmitt þessa.
Á þessum tcikningum má sjá, að börn þroska
með sér leikni og getu. Smám saman læra
börn að stjórna hreyfingum sinum og nota
hendur og fætur til ákveðinna hluta.
í fyrstu reyna börn að grípa um ákveðinn
hlut með þvi að lyfta handleggnum og færa
hann í áttina að hlntnum, því næst láta þau
höndina síga yfir hlutinn og taka um hann.
Smám saman verða þessar hreyfingar að
einni hreyfingu; barnið er búið að temja
hreyfingar sínar.
Menn verða að gcra sér grein fyrir mun-
inum á þróun barna og námi, — þ.e.a.s. því,
sem þeim er kennt i bernsku. Móðirin gegnir
hér afar mikilvægu hlutverki, þvi að óhugi
feðranna ó börnunum er fremur daufur, þar
til þeir geta leikið við börnin og talað við þau
Taugakerfið verður að þroskast, og sama
gildir um vöðva barnsins. Menn ættu ekki að
kenna börnum neitt, sem gæti orðið til þess,
a3 eðlilegur líkamsþroski þeirra skerðist.
Börn skiþa ekki hugtakið þrifni, þvi að
þrifni er ekki annað en fóstur siðmenningar-
innar. Allt of margar mæður hafa óþarfa-
áhyggjur af óþrifni barna sinna.
Auk þess sem það getur valdið sálartruflun
í barni, ef því er lcennd þrifni of snemma,
verða uppalendur að gera sér ljóst, að vöðva-
og taugakerfi barna eru alls ekki nægilega
þroskuð i frumbernsku til þess að geta liaft
hemil á þörmum og blöðru.
Þegar barn fer að ganga, þarf það að læra
að beita nýjum vöðvum í fyrsta sinn, og er
því eðlilegt, að það taki sinn tíma. Sama er
að segja um málið. Fullorðið fólk lærir ekki
erlenda tungu á einum degi, — er þá unnt að
l3Mítv (jyl 16-Hán.
ætlast til þess af börnum, sem kunna ekki
einu sinni að beita talfærum sínurn til neinnar
lilítar? Við skulum virða fyrir olckur barn,
sem er að byrja að ganga. Meðalaldur barns
(og fyllizt nú ekki örvæntingu, ef barnið yðar
er svolítið eldra), sem farið er að ganga
óstutt, er um 15 mánuðir. Það er þvi ekki
nokkur ástæða til þess að þvinga barn til
þess að ganga, þegar það er 10 eða 11 mánaða,
því að það er þá alls ekki nægilega þroskað
líkamlega til slíkra stórvirkja. Þegar þið heyr-
ið fólk gorta af því, að börn þess hafi farið að
ganga, áður en þau voru eins árs, skuluð þið
segja já og brosa blítt. En þið skuluð ekki
trúa þessum tröllasögum, — þótt reyndar ör-
fáar séu sannar.
Það er ótrúlega margt, sem Pétur litli þarf
að læra, óður en hann sleppir sér. Þetta kem-
ur á næstu mynd.
Þegar Pétur litli var mánaðargamall, gat hann
Framhald á bls. 41.
Það liefur verið tiltölulega liljótt um
Luis Dominguin, síðan liann kvæntist
Lúsíu Bose. Stöku sinnum liefur hann
að vísu tekið þátt i nautaötum, en ann-
ars liefur hann að mestu leyti baldið
kyrru fyrir í liinni nafntoguðu höll
sinni, Villa Paz. En lnin er um það bil
ellefu mílna vegalengd frá Madrid, við
veginn, er liggur til Valencíu. Þar ó hann
stóreflisjörð og stundar nautarækt.
En hann metur það mikils að hafa
gesti hjá sér, þegar önnum vikunnar er
lokið. í skrauthýsi hans eru þrjátíu
gestaherbergi, en auk þess hefur hann
sex þjóna og fullkominn veiðiútbúnað
til reiðu, ef einhvern kynni að langa til
að fara á veiðar i nágrenninu. Það er
nefnilega hreinasta paradís fyrir veiði-
menn, þetta land, sem Dominguin hefur
eignazt þarna, og heyrzt liefur, að gestum
hans sé heimilt að skjóta svo mikið af
fuglum sem þeir vilja. Ifins vegar eru
þau tvö hundruð naut, sem þarna er að
finna, heilagar skepnur í lians augum.
Sjálf verður Lúsía að láta sér lynda,
að nautin séu efst á blaði hjá Dominguin,
þar næst veiðiskapurinn og svo komi
liún sem þriðja í röðinni.
Hjónaband þeirra er þá ágætt, og
Dominguin er ákaflega upp ineð sér af
Miguel, syni þeirra, sem er tveggja ára
gamall. — Bara, að maðurinn minn fihni
ekki upp á því að berjast við nautin
á leikvellinum að staðaldri ó nýjan leik,
þá er ég ánægð, segir Lúsía.
Nú eiga þau lijónin að leika saman
í kvikmynd um nautabana, sem nefnist
Rándýrið. En Dominguin tekur engin
laun fyrir þátttöku sína. Hann leikur
bara af þvi að hann langar til að sýna
kvikmyndahússgestum heimsins nauta-
bana að starfi.
Og til þess mun sennilega enginn vera
betur fallinn en þessi spengilegi Spán-
verji, sem er meðal beztu nautabana ver-
aldar og auk þess kvennagull með af-
brigðum, áður en hann kynntist Lúsíu
sinni.
Alla spænska stráka dreymir aðeins
um að verða eitt, þegar þeir eru orðnir
stórir: — nautabanar. Fyrir kvikmynda-
stjörnum og knattspyrnulietjum liafa þeir
aftur á móti engan smekk. Þeirra Rík-
arðar, Vilhjálmar og Valbirnir heita
Manólete, Júnan Belmante — eða Luis
Miguel Dominguin.
Og það eru ekki karlmenn einir, sem
dá liina dökkhærðu nautabana, íturvaxna,
Louis Miguel Dominguin í nautaati
22 VIKAN