Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 24
Róleg og dyggðum prýdd
eiginkona.
Framhald af hls. 21.
var ekki rétti tíminn til afS hlaupa á eftir fröken
Prentice og segja henni, að hún væri eina konan
í lífi hans. Hægt gekk hann aftur inn til sín,
settist í bezta stólinn sinn og reyndi að hugsa
skýrt.
Honum varð skyndilega ljóst, að hann hafði
ekki sagt orð við hana. Það fyrsta, sem hann varð
að gera á morgun, var að kynnast henni nánar.
Hann fór á fætur i grárri morgunskímunni,
læddist niður stigann og las á nafnspjaldið á
dyrunum hjá henni.
Sally, hugsaði hann í leiðslu. Það var miklu
fallegra nafn en t.d. Sophia eða Charlotta. . . .
Hann læddist varlega upp stigann aftur og
byrjaði eins og í draumi að steikja sér egg. En
allt i einu hrökk hann upp við högg frá hæðinni
fyrir neðan, hæðinni, sem Sally bjó á. Antony gaf
sér rétt tíma til að slökkva á suðuplötunni áður
en hann þaut niður stigann. Hann stanzaði fyrir
utan dyrnar hjá Sally. Það heyrðist ekkert hljóð
innan frá.
Hann ýtti varlega á dyrnar og fann að þær
voru ekki laestar og gekk inn. Þarna sat Sally á
miðju gólfi starði illilega á einhvern hlut, sem
minnti á körfu úti í einu horninu. Hún hafði aug-
sýnilega verið að reyna að festa þetta á rafmagns-
peruna í loftinu.
— Ég er búin að eyðileggja gamla skerminn,
sagði Sally hálfgrátandi, — og mér tekst ekki að
festa þann nýja á, sem ég keypti. Frú Mortimer
verður bálill.
— Leyfið mér að hjálpa yður, sagði Antony
fljótt. Hann hljóp til hennar og hjálpaði henni til
að standa á fætur. Síðan teygði hann sig upp og
festi nýja lampaskerminn, eins og hann hefði ekki
gert annað allt sitt líf.
— Kærar þakkir, sagði Sally. — Þetta var
afskaplega fallegt af yður.
>að var fyrst þegar hann var kominn upp ti)
sín, að honum varð ljóst, að hann hafði látið gull-
ið tækifæri ónotað. Hann hefði þó getað sagt eitt-
hvað.......
Antony var annars hugar á skrifstofunni daginn
eftir. Það var svo áberandi, að vinnufélagar hans
tóku eftir því, og einn þeirra, Tom Carrington
spurði hann hreinskilnislega: — Jæja, gamli
vinur, hvað heitir hún?
— Sally Prentice, svaraði Antony, án þess að
hugsa sig um.
Tom brosti gleitt. — Það held ég að heimurinn
sé að farast! Ég hélt ekki, að þú hefðir áhuga
á stúlkum. Eh allt kemur fyrir. Hvernig lítur
hún annars út?
Antony var að springa af löngun eftir að tala
um ástina sína og lýsti henni ýtarlega fyrir Tom
Carrington, sem hlustaði með meðaumkun.
Á leiðinni að neðanjarðarbrautinni gerði Antony
ótal ráðagerðir um hvernig hann ætti að fara að
því, að bjóða Sally út með sér. Það, sem með
þurfti voru peningar, dálítill þokki og að reyna
að vera skemmtilegur. Peningana átti hann þó. . .
Þegar nýr farþegahópur kom inn i lestina á
næstu stöð, var litilli grannri veru ýtt inn í hornið
og þröngvað upp að honum. Breið karlmannsöxl
þrýsti andliti hennar að brjósti hans og hann fann
hvernig hún barðist um til að losna. Hann leit
niður og hjarta hans tók kipp. Hún var með
grænan hatt í Þetta skipti en gullnu lokkarnir voru
þeir sömu. Hún leit upp og tók andköf.
— En — þetta er herra Blackstone, er það ekki ?
stamaði hún. — Kærar þakkir. Ég get ekki þolað
að . . . , sjáið, hvað ég hef gert!
Hún starði á ljósgrátt silkibindið hans og þegar
hann leit niður sá hann að Þar var greinilegt far
eftir varir hennar!
Þetta er hræðilegt. Sally var eldrauð. Þér náið
því aldrei burt. Þessi varalitur er alveg kossekta.
Antony brosti glaðlega. — Það er allt i lagi,
kallaði hann yfir hávaðann í lestinni. Mér finnst
það fallegt. Það gerir bindið svo sérkennilegt.
Augu Sally ljómuðu af kæti og hún skellihló.
Auðvitað urðu þau samferða heim úr lestinni.
Þegar hann skildi við Sally þaut hann í loftinu
upp stigann.
Meðan hann buslaði í baðinu söng hann hástöf-
um „Sól úti, sól inni,“ og trallaði inn á milli. Það
var einkennilegt hve allt var einfalt, aðeins þegar
byrjað var á því. Það var svo auðvelt að tala við
hana og skemmtilegt að vera með henni, að þetta
mundi allt verða mjög auðvelt. Byrjunin var góð
og hitt kom fyrr eða seinna.
Meðan hann var að binda á sig nýtt bindi, varð
honum lit.ið út um gluggan og þá sá hann hvar
Sally hljóp niður tröppurnar og inn í lágan rauð-
an bíl. Hár ljóshærður maður opnaði fyrir henni
bilhurðina.
— Mér finnst leiðinlegt, að hafa látið þig bíða
svona lengi, Alistair, heyrði Antony hana segja
— en ég gat ekki fundið rauðu skóna mina. Hef-
urðu á ævi þinni heyrt nokkuð eins asnalegt.
Antony sneri sér frá glugganum og kastaði sér
niður í stól.
Næstu daga flögraði Sally eins og fiðrildi um i
tilveru Antonys. Á hverjum morgni sagði hún:
Hallo, Blackestone, og á hverju kvöldi sagði hún
það sama. Hún brosti töfrandi til hans í hvert
sinn, en hún var alltaf að fara eitthvað.
Eftir hálfan mánuð hafði hann aðeins talað við
hana fjórum sinnum.
Antony var örvilnaður þegar Charlotta frænka
hans hringdi til hans siðdegis einn dag. Honum
létti merkilega við að heyra ákveðna rödd hennar.
Það voru leifar frá bernskunni, hugsaði hann dauf-
ur.
Charlotta frænka spurði hann hvernig honum
liði og gaf honum stutta skýrslu um líðan Sophiu
frænku. Síðan tilkynnti hún honum, að þær syst-
urnar ætluðu til London daginn eftir og hvaða
kvikmyndasýningu Þær langaði til að sjá hvert
og hvenær hann ætti að sækja þær og kvaddi
hann svo stuttlega.
Antony hitti frænkurnar eftir sýninguna. Hann
fór með þær heim í íbúðina til að gefa þeim te-
bolla áður en hann færi með þeim á stöðina og
óskaði sjálfum sér til hamingju með, hve snurðu-
laust þetta hafði gengið. En Charlotta frænka lét
hann ekki standa lengi í þeirri trú.
— Antony, sagði hún og settist i bezta stólinn
hans — þú hefur breyztzt Hvað hefur komið fyrir?
Hann starði orðlaus á hana.
— Reyndu ekki að skrökva neinu að mér, hélt
hún áfram. — Þér hefur hingað til ekki tekizt að
blekkja mig.
1 því var barið að dyrum og Antony fór fram
til að opna, þakklátur fyrir truflunina. Fyrir utan
stóð Sally, i ljósgrænum kjól.
— Það var indælt að þér skylduð vera heima,
sagði hún. — Allir aðrir i húsinu eru einhvers
staðar úti. Lítið á. Hún sneri bakinu að honum.
Rennilásinn hefur festst og ég get hvorki náð
honum upp né niður. Ég kemst ekki einu sinni
úr kjólnum, þannig að ég geti lagað hann. Getið
þér hjálpað mér ?
Antony stóð og starði á berar axlir hennar.
—- Æ, gerið það fyrir mig, sagði hún eyðilögð.
Eins og i móðu heyrði hann gjallandi rödd
Charlottu frænku innan úr stofunni. — Segðu
henni að koma inn Antony. Kannski getum við
hjálpað henni.
Sally snarsneri sér við og þaut inn í stofuna.
Frænkurnar heilsuðu henni án þess að sýna
nokkra undrun og Sally brosti töfrandi til þeirra,
og kraup niður hjá þeirri frænkunni, sem nær
sat..
— Ég heiti Sally Prehtice, sagði hún glaðlega.
-— Ég bý hér á fyrstu hæð. Þið hljótið að vera
frökenar Blackestone, frænkur Antonys. Frú Mor-
timer hefur sagt mér frá ykkur. Það var reglulega
heppilegt fyrir mig, að þið skylduð vera staddar
hér núna.
Charlotta frænka brosti vingjarnlega til hennar
og Sophia írænka leit imeð skilningi á frænda
sinn.
— Þetta er yndislegur kjóll, sem þér eruð í,
góða mín, sagði hún blíðlega.
Sally beygði sig, svo að Charlotta kæmist að
rennilásnum. — Þetta er eftirlætiskjóllinn minn.
Ég er aðeins í honum við sérstök tækifæri, en eins
og venjulega var ég að verða of sein og þá festist
rennilásinn auðvitað.
— Sitjið bara kyrr, sagði Charlotta frænka.
— Ég verð enga stund að Þessu.
Andartaki síðar sagði hún ánægð. — Jæja, nú
held ég að þetta sé í lagi. Sophía, vilt Þú halda
kjólnum saman að ofan, þá held ég lásnum saman
að neðan, og þá getur Anthony rennt lásnum upp.
Anthony gerði eins og honum var sagt. Það
var eins og hann hefði tíu þumalfingur, en lásinn
rann auðveldlega upp.
Sally stóð á fætur með yndisþokka og brosti
þakklát. — Þakka ykkur öllum kærlega fyrir,
sagði hún. — En ég verð að þjóta. Alistair getur
komið á hverri stundu og ég er ekki nærri til-
búin.
Þegar Anthony hafði lokað á eftir henni gekk
hann þunglega inn í stofuna aftur.
-— Ö. Anthony, sagði Sophía frænka æst, hún
er töfrandi. Og rnikið hefur hún fallegt hár.
— Reglulega lagleg og vel uppalin stúlka, sam-
sinnti Charlotta frænka allra náðarsamlegast.
Anthony starði orðlaus á þær. — Heyrðuð þið
ekki hvað fröken Prentice sagði? Hún ætlaði út
með Alistair.
— Ekkert gerir það til, sagði Charlotta frænka.
— Hún er ekki trúlofuð. Ég gáði að því, en hún
Framhald á bls. 35.
— Satt að segja hef ég aldrei borgað neitt inn
á bílinn. Þeir hafa ekki getað náð mér.
— Nú held ég að Pétur verði hrifinn, þegar
hann heyrir að við höfum skipt um kerti á
eigin spýtur.
— Nú er hún búin að tala í hálftíma, án þess
að taka eftir að ég klippti snúruna.
— Ég er bara að fara í skólann mamma, ekki
herþjónustuna.
24 VIKAN