Vikan - 08.06.1961, Síða 25
Reykholt í Borgarfirði.
DrengjabúSir Vilhjálms Einars-
sonar og Höskulds GoSa Karlssonar
vöktu talsverða athygli fyrir ári,
enda var sú starfsemi nýmæli hér
á landi. Þeir höfðu aðsetur í Hvera-
gerði, nánar tiltekið í Garðyrkju-
skóla íslands, og nutu ágætrar fyr-
irgreiðslu skólastjóra, Unnsteins
Stefánssonar. Höskuldur Goði hafði
verið með stutt námsskeið fyrir
drengi á vegum skáta í Keflavík, og
þeir Vilhjálmur höfðu oft rætt um
þá hugmynd að starfrækja drengja-
búðir, þar sem áherzla væri lögð
á iþróttir.
Þeir héldu tvö tíu daga náms-
skeið í Hveragerði, og sóttu 35
drengir hvort námsskeið. Það var
minnzt á fyrirætlun þeirra á
íþróttasíðum dagblaðanna, og þátt-
takendur komu víðs vegar að af
landinu. Kostnaður varð 500 krón-
ur á hvern dreng.
Dagskráin var þannig: Drengirn-
ir voru vaktir kl. 8, og ef veður
leyfði, voru þeir látnir fara í létta
morgunleikfimi á túninu. Að þvi
búnu var morgunmatur, og dreng-
irnir tóku til í herbergjunum. Síðan
voru knattleikir til kl. 11 og þá
íþróltu fræðsla með kvikmyndum og
skuggamyndum. Stundum voru um-
ræður, og var þá reynt að láta
drengina taka þátt í þeim. Eftir
léttan hádegisverð var hvíldartími,
og var þá ætlazt til, að þeir héldu
dagbók, síðan frjálsar iþróttir til
kl. 3. Frá þeim tíma voru dreng-
irnir frjálsir að gera hvað, sem þeir
vildu, í samráði við Vilhjálm og
Höskuld, fram að miðdegisverði,
sem var kl. 5. Þar á eftir var hvild-
artími og síðan farið i sund kl. 7.
Hálfníu fengu þeir hressingu, og á
hverju kvöldi var kvöldvaka og
uppistaðan í þeim íslenzkar og út-
lendar fræðslukvikmyndir. Stundum
var sungið og farið í leiki. Hátta-
timi var kl. hálfellefu.
Nú er íþróttasamband íslands
orðið aðili að þessúm málum, en
þeir Höskuldur og Vilhjálmur munu
hafa alla umsjón með höndum.
Námsskeiðin eru þegar byrjuð fyrir
fimm dögum, og varð lleykholt í
Borgarfirði fyrir valinu að þessu
sinni. Héraðsskólanum er lokið, og
staðurinn algerlega til ráðstöfunar
Framhald á bls. 31.
<1 Vilhjálmur og Höskuldur Goði ásamt drengja-
flokk í fjallgöngu.
í drengjabúðunum er lögð áherzla á alls konar [>
íþróttir. Hér er einn í langstökki.
Námsskeiðinu er lokið, og drengirnir búa:
heimferðar.
<] Undirbúningur að knattþraut.
Drengjabúðír í Reykholti
VIKAN 25