Vikan - 08.06.1961, Qupperneq 26
ttuþetta?
Allur er varinn góður. Því skaltu
vera hygginn og verða þér úti um
það, sem þig kann að vanta i útilegu
og ferðaútbúnaðinn þinn. Bezt er að
kaupa einn hlut i hverri viku. Þar
sem ílestir skólanemendur eru nú svo
til nýsloppnir frá náminu, þá er ekki
að efa að pyngja þeirra er nokkuð
létt. Og þá er að gera sér grein fyrir,
hvernig bezt er að verja aurunum
þegar gengið er i búðir. Það er vert
að vekja athygli á þvi, að vinnufatn-
aður er einmitt það sem hentar bezt
í alalr útilegur og er þá sjálfsagt að
miða við það þegar hann er keyptur,
að hann sé ekki fyrirferðameiri og
þyngri heldur en nauðsyn krefur. Af
þessu þrennu sem sýnt er á mynd-
inni, má nota allt við vinnu, og er
það þó einna heppilegasti klæðnað-
urinn til ferðalaga. Nankinsbuxurn-
ar kosta um 230.00 krónur, en það
er nú orðið svo mikið úrval af slík-
um buxum, að það er sjálfsagt að
athuga það eitthvað nánar. Peysan
er á því verði sem gerist núna um
klukkuprjónaðar ullarpeysur. Það
er að segja milli fimm og sex hundr-
uð krónur. Af vindjökkunum er það
að segja, að þar er verðið miklu
meira á reiki, en þessi sem við náðum
í kostar tæpar níu hundruð krónur.
En það er alltaf bezt að ganga í
nokkrar búðir og athuga hvernig
framboðið er.
—O—
Þessar tvennu töskur og innihald
þeirra eru að mörgu leyti nytsam-
legar og þó hentugastar í skyndi-
ferðir. Þær eru að visu nokkuð dýr-
ar, en það rýrir auðvitað ekki nota-
gildið. 1 stærri töskunni eru tvenn
hnífapör, tveir diskar, tveir bollar,
brúsi og box. Auk þess tveir staukar,
sem má nota undir hvað sem er.
Verðið er tæpar átta hundruð krón-
ur. í minni töskunni er einn brúsi,
bolli, hnifapör, brauðkassi, diskur og
staukur. Það kostar tæpar fjögur
hundruð krónur. Skulum við láta
staðar numið í þetta skipti, en vænt-
um að geta veitt einhverjar upplýs-
ingar um hitt og þetta I náinni
framtíð.
Þegar maður undirbýr þjálfun í
hlaupi, verður að gera greinarmun á
því, hvort stunda eigi hlaup á stuttum
eða löngum vegalengdum. Það gefur
augaleið, að allt aðrar kröfur eru
gerðar til getu manna í 100 metra
hlaupi, en i 10.000 metra hlaupi. Það
er að segja, að úthald þarf að vera
annað og meira á 10.000 metrunum
og snerpan er fyrir öllu á 100 metrun-
um. Þar sem varla er við því að búast
að unglingar stundi lengri hlaupin,
nema i æfingarskyni, þá skulum við
snúa okkur að t.d. 100 metrunum. Þar
hefur viðbragðshraðinn í byrjun
einna mesta þýðingu og byggja flestir
spretthlauparar á sem mestum við-
bragðshraða. Fyrst tekur maður sér
stöðu og er þá bezt að hafa búið smá
gróp fyrir fæturnar, sem spyrnt er í,
þegar tekið er á rás. Bilið milli gróp-
ana á að vera þannig, að tá aftari
fótar nemi við hæl fremri fótar. Það
er fljótgert að ganga úr skugga um
hvernig það er gert með þvi að reyna
stöðuna á gólfi. Heppilegt er að fjar-
lægð frá fremri fæti að höndum sé
um hálft annað fet og er algengast
nú að styðja sig á hnúanna og hand-
leggirnir hallast dálítið fram á við.
Þegar gefið er merki um að vera
tilbúin, er breytt um stellingu þannig
að fæturnir mynda rétt horn eða svo
til. Aftari fóturinn er dreginn hratt
framávið, en ekki of hátt, það væri
eingöngu ti lað eyðileggja árangur
annars í viðbragðinu. Varast skal að
reigja sig of mikið á hlaupunum,
skrokkurinn á að halla ögn framávið.
Einnig er vert að athuga að hreyfa
handleggina í nokkuð stórum sveifl-
um og aldrei uppfyrir höku. Sprett-
hlaup krefst mikils átaks á stuttum
tíma og þar er viðbragðshraði og
tækni mikils virði. Það er til litils að
rjúka af stað, allt hvað af tekur og
reyna á sig eins og hægt er. Það hef-
ur að líkindum aðeins það í för með
sér, að menn koma seinastir í mark.
Algengasti galli hjá byrjendum er of
mikil stifni um axlir og mjaðm-
ir, sem hindrar eðlilegar hreyfing-
ar. Þess vegna er gott að hafa
það hugfast, að maður verður að lofa
skrokknum að ná mestum hraða með
því að leggja áherzlu á eðlilegar
hreyfingar fótana og fá þannig mesta
spyrnu. Góður árangur í þessu, er
undir því sama kominn og í svo
mörgu öðru, að leggja fullkomna
rækt við smáatriðin. Og sá sem er
ekki vel æfður undir fyrstu tíu metr-
ana, hann hefur í raun réttri alls
ekki æft.
lcvilcniyndir
Gene Kelly hefur um árabil verið
einhver vinsælasti dansarinn, sem
sést hefur á hvita tjaldinu. Að vísu
Gene Kelly.
hefur hann ekki notið eins mikilla
vinsælda og Fred Astaire framan af,
en það er engum blöðum um það að
fletta, /að hann fór langt fram úr
Fred á seinasta áratug. Allar hans
myndir sem hafa komið hingað hafa
verið sóttar af kappi, enda er hann
sérlega skemmtilegur dansari og leik-
ari. Þó er líklegt að í þeirri mynd,
þar sem hann dansaði ekkert, hafi
hann orðið einna vinsælastur. En það
var þegar hann lék D'Artagnan í
myndinni „Skytturnar þrjár“, en sú
mynd var sýnd hér i langan tíma við
mikla aðsókn. Gene Kelly hefur auk
þess að leika í myndum, líka annast
leikstjórn og þá á þeim myndum, sem
hann lék í. Flest hlutverk hans hafa
verið af léttara taginu, en honum er
lagið að draga fram broslegar hlið-
ar á persónum sínum. Hann er tæp-
lega fimmtugur og ef miða má við
Astaire, sem er kominn yfir sextugt,
þá má búast við Því, að hann verði í
fullu fjöri næstu árin.
—O—
Fyrir skömmu var sýnd mynd hér
með austurríska leikaranum O. W.
Fischer í hlutverki læknis. Þau eru
orðin nokkuð mörg læknishlutverk
þessa leikara, en yfirleitt hefur hann
skilað þeim vel. Fischer er rúmlega
fjörutíu og fimm ára gamall og hef-
ur leikið í kvikmyndum í rúm tuttugu
ár. Áður en hann fór að leika í kvik-
myndum lék hann á leiksviðum víðs-
vegar um Austurríki og Þýzkaland.
Hann er þegar orðinn einn vinsælasti
kvikmyndaleikari Þjóðverja og er
kominn langt í því að komast framúr
Curd Júrgens í vinsældum. O. W.
Fischer er fæddur og uppalin í smá-
bæ nálægt Wien og var tekinn til
við heimspeginám áður en hann kom
nálægt leiklist. En kynning hans af
leiklistinni gerði það að verkum að
hann lagði heimspekina á hilluna og
gerðist leikari. Hann hefur yfirleitt
verið nokkuð sjálfstæður ef ekki sér-
vitur í mati sínu á hlutverkum og þess
vegna. hefur hann oftast nær sjálfur
staðið fyrir þeim kvikmyndum sem
hann hefur leikið í til þess að þurfa
ekki að fara eftir neinum öðrum en
sjálfum sér. Og hingað til hefur hon-
um tekist bæriiega á þann máta.
O.W. Fischer.
—O—
Frankie Avalon hefur eins og aðrir
rokksöngvarar séð framá það, að kvik-
myndir hafa sitt að segja í samkeppn-
inni. Þannig er ekki nóg með það, að
unglingar um allan heim heyri i þeim,
heldur fá þeir að sjá söngstjörnurnar
Alana og Frankie.
sinar. 1 kvikmynd sem hann lék í fyrir
nokkru, kom fram annar nýliði og var
það Alana Ladd, dóttir hins dáða
kvikmyndaleikara Alan Ladd. Það
verða að sjálfsögðu ekki nein háfleyg
hlutverk, sem Frankie mun fara með
í framtíðinni, þar sem hans vinna er
að skemmta fólki, en ekki að vekja
það til umhugsunar um eitt eða ann-
að. Ehda hefur hann skemmt fólki
það vel að hann er orðinn Elvis all-
hættulegur keppinautur. Undanfarin
þrjú ár hafa plötur hans selst í upp-
lögum, sem eru komin langt yfir tíu
milljónir og það er nú slatti.
26 VIKAN