Vikan - 08.06.1961, Síða 28
23. Verðlaunakrossgáta
Vikunnar.
Vikan veitir eins og kunnugt er
verðlaun fyrir rétta ráðningu á kross-
gátunni. Alltaf berast margar lausnir.
Sá sem vinninginn hefur hlotið fær
verðlaunin, sem eru:
100 KRÓNUK.
Veittur er þriggja vikna frestur til
að skila alusnum. Skulu lausnir send-
ar í pósthólf 149, merkt „Krossgáta".
Margar iausnir bárust á 18. kross-
gátu Vikunnar og var dregið úr rétt-
um ráðningum.
FJÓLA JÓELSDÓTTiR,
Grindavik,
hlaut verðlaunin, 100 krónur og má
vitja þeirra á ritstjórnarskrifstofu
Vikunnar, Skipholti 33.
Nafn
Heimilisfang
Lausn á 18. krossgátu er hér að
neðan.
♦ ♦ « ♦ ií 1 L » C. U
H A S L á U ♦ A L L I
E !'. 1 L L » F L (í ♦ K
Sdb«/iFLlttll
T I L A H í' A h tí l V
A S . ♦ S h + T ♦ S 1 R
A T ♦ N Y l- UHSt
T 1< 0 1 N + M S 1 T 1
fALfNÖTlJfS
o rJ li L 1 L>»L<-SV
♦ 0 H A f U í' A » S 1
♦ S h 0 ♦ V 1 0 ♦ S k
K t 0 LG ATÖG A
E v h 1 R t U í C ft
I f G li A ♦ N U N K
T R A + * a 'J N G />
» E + F it L I L> U F<
ANGARfSAGA
W G U [I l' L l t A 'K
NIDfSLJORf
OfVEL + ÖfFA
fSOS-tASAliL'
RIÓAfSITRI
FYQ\Q.
WerJU
C PriUMixQlnN
Ungfrú Yndisfríð
Ungfrú Yndisfríð er komin á dagbókarald-
urinn, og á hverjum degi skrifar hún nokkr-
ar siður í dagbókina um atburði dagsins.
Hún hefur það fyrir venju að geyma dag-
bókina sína i Vikunni, en henni gengur
mjög illa að muna, hvar hún lét hana. Nú
skorar hún á ykkur að hjálpa sér og segja
sér blaðsíðutalið, þar sem dagbókin er. Ung-
frá Yndisfríð veitir verðlaun og dregur úr
réttum svörum fimm vikum eftir, að þetta
blað kemur út. Verðlaunin eru:
Carabella undirföt.
Dagbókin er á bls.........
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi fyrir nokkru að bróðir minn
væri nýgiftur, og mér fannst kona hans
fráskilin. Ég var aS óska honum til
liamingju, þegar ég tók eftir því að hann
var ekki meS hring, heldur gullarmband
og var þaS allt rispaS og ljótt. BaS ég hann
uin aS lofa mér aS sjá þaS. Inni i því stóS
bara stafurinn „Á“ og fannst mér aS þaS
væri fyrsti stafurinn í nafni konunnar hans.
Draumurinn var ekki lengri.
Með fyrirfram þöklc fyrir svarið.
N. N.
Svar til N. N.
Hringur er tákn ástarævintýris, armband
er yfirleitt fyrir gjöf frá nnnustanum og
gæti stafurinn verið bending til hver hún
er eða verður.Einnig gæti armbandið bent
til þess að ástamál hans séu eitthvað broguð
þar sem það var Ijótt og rispað.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi eina nóttina, að ég kæmi inn til
eins vinar míns en mér fannst öll ibúðin breytt
og það var búið að leigja eitt herbergið stelpu
og strák. Þegar ég gekk inn stoppaði ég í dyr-
unum í þessu herbergi og þar sá ég mynd af
stelpunni og stráknum, en þau stóðu í miðju
herberginu, en þegar stelpan leit við sá ég
að ég þekkti hana og kallaði nafn hennar upp,
en hún lét sem hún sæi mig ekki og anzaði
mér ekki, en strákurinn brosti til mín. Svo kom
vinur minn og bróðir bans til mín og ég spurði
hann hvort það væri búið að leigja og svaraði
hann mér með skæting og rak mig út. Viltu
svara mér fljótt þvi ég er svo forvitin.
Ein, sem dreymir á hverri nóttu.
Svar til Einnar ...
Það leynir sér ekki af þessum dranmi að
þú lendir f ástarerfiðleikum á næstunni. Pilt-
urinn og stúlkan f herberginu eru hér tákn
um ástarævintýri, en vinur þinn í draumn'-
um er tákn um þann aðila, sem þfi ert f
tygjum við. Þannig máttu búast við ein-
hverjum meiri háttar árekstrum milli ykk-
ar og jafnvel skilnaði. En svona fer það nú
svo oft hjá okkur, en við verðnm bara að
reyna aftur.
Til draumráðningamanns Vikunnar.
Mig dreymdi fyrir stuttu að barnsfaðir minn
kom til min dökkklæddur í svörtum jakka og
segir við mig, nú kemur þú með mér. Tekur
hann undir handlegg minn og leiðir mig út. Svo
gengur hann með mig út í einhverja vatnsmýri.
Hendir sér þar niður í vatnið, sem nær yfir
hann næstum allan og hlær um leið og ætlar
að draga mig með sér niður i vatnið, en ég
verð svo ofsalega óttaslegin og ríf mig lausa,
stekk i burtu og upp háan stiga, en efsta þrepið
fannst mér svo erfitt að komast yfir að ég hélt
ég mundi detta niður allan stigann aftur og
vaknaði ég upp við að mér fannst ég alls ekki
komast upp efsta þrepið, en ég sá allan tím-
ann í draumnum að maðurinn lá kyrr í vatn-
inu. Fyrir hverju heldur þú að draumurinn sé.
Beztu kveðjur. iSvava.
Svar til Svövu.
Að leggjast í samskonar vatn og mundi
vera í mýrlendi mundi vera tákn um veik-
indi. Þannig mundi ráðning draumsins verða
sú að barnsfaðir þinn kæmi til þfn í heim-
sókn og væri haldinn einhverjum smitbær-
um sjúkdóm, en sakir líkamshreysti þinnar
tekst þér að sporna við sýkingunni og
sleppa undan öllum áföllum af hendi veik-
innar.
Nafn
Heimilisfang
Simi .........
Siðast er dregið var úr réttum lausnum,
hlaut verðlaunin:
EMILÍA AÐALSTEINSDÓTTIR,
Hrappsstaðir, Dölum.
2-S