Vikan


Vikan - 30.11.1961, Side 7

Vikan - 30.11.1961, Side 7
Hvaða öryggisráCstafanir hafa veriö geröar tíl þess aö koma í veg fyrir, að mistök geti hrint af staö styrjöld, sem gereyði álfur og lönd? Er okkur tryggð sú vörn gegn þeim, sem við eigum heimtingu á? Hefur eitthvað verið gert tíl að auka öryggi okkar? Er þarna um að rœða minnkandi hættu, eða eykst hún jafnt og þétt? Að undanfömu hef ég borið þessar spumingar fram í Hvíta húsinu og í hermálaráðuneyt- inu, lagt hana fyrir áhrifamestu vísindamenn okkar á þessu sviði og áhafnir kafbáta okkar, sem sigla mánuðum saman neðansjávar, þaktir hinum svokallaða „Sherwood-skógi“, það er grænum skotpípum hlöðnum Polarisflugskeytum. Ég hef borið þessar sömu spurningar fram í stjómklefum Atlas-eldflaugaskotstöðvanna í Wyomin!g, þar sem liðsforingjar með skamm- byssu við beltí standa við „rásstillana" sem hrint geta af stað heimsstyrjöld — fyrir mis- skilning eða samkvæmt ákvörðun — og í foringjaskrifstofum skotstöðvanna, þar sem aðrir skammbyssuvopnaðir menn hafast við, þeir sem skipað geta svo fyrir, að þrýst skuli á stillana. Mönnum við mælaborðin í stjórnklefum sprengjuflugvélanna, áhöfnum kafbátanna og þeim, sem hafast við í hinum sóttkveikjusneyddu, gluggalausu vistarverum, sem til þess eru gerðar að verða skotgrafir í hinum ópersónulegu styrjaldarátökum milli heimsálfanna, ef til kemur, kann að virðast sem slíkar spurningar séu langsóttar. Hið stöðuga álag á þó rætur sínar að rekja til orsaka, sem breytzt geta á einu vetfangi. Hin sífellda „viðbúnaðs“-þjálfun getur orðið annað raunhæfara en þjálfun, fyrirvaralaust. 1 aðalstöðvunum er komið fyrir sérstökum klukkum, sem taka að telja mínúturnar frá upphafi „E“-stundar — „E“-ið á að merkja „execution", þ.e. framkvæmd — sem hefst á því andartaki, þegar „rásmerkið“ að kjarnorkuatlögu Ðandaríkjanna verður gefið. Starfs- mennimir í aðalstöðvunum hafa lítinn tima til að gefa gaum þessum klukkum. Athygli þeirra er fyrirfram bundin hinum flóknu eftirlitstækj um, mælaborðunum með öllum sínum rofum og marglitu, síleiftrandi ljósum á fölgrænum eða daufgráum borðflötum, sem ekki virðast að neinu leyti frábrugðin því, sem tíðkast í friðsamlegu iðjuveri. Þeir hafa litla þekkingu á þessum margbrotnu vélum nema tæknilega. Styrjöld fyrir misskilning eða mistök er svo við- kvæmt mál, að þeim sem yrðu þó einmitt mest við það riðnir beinlínis, er ekki kennt meir en Varnarkerfið á að vera komið í gang, jafnvel áður en flugskeyti væri komið alla leið yfir hafið og mennirnir í aðalstöðvunum eru æfð- ir upp aftur og aftur í viðbragðsflýti. En hvað gerist, ef einhver tæki þá ákvörðun, að berja sjálfur á Rúss- um? TIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.