Vikan


Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 7

Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 7
Efri myndin var tekin heima á Siglufirði, árið áður en Rikki lagði upp í ævintýrin. Neðri myndin var tekin i haust. Á ÞESSUM ÁRUM VAR ÉG AÐEINS EINU SINNI RÆND- UR. ÞAÐ YAR í ALEXAND RÍU í EGYPTALANDI. ÉG KOM ÞAR INN Á BAR OG SÁ GULLFALLEGA STÚLKU, OG FÓR ALLUR AÐ IÐA. ÉG GAF HENNI AUGA, OG HÚN GAF MÉR UNDIR FÓTINN MEÐ AU GN ARÁÐINU. SYO FÓR HÚN ÚT, OG ÉG í HUMÁTT- INA Á EFTIR. SVONA GENG- UM VIÐ NOKKURN SPÖL, SVO HVARF HÚN INN í HÚSASUND. ÞEGAR ÉG KOMST SVO LANGT, AÐ ÉG SÆI INN í SUNDIÐ, SÁ ÉG HURÐ LOK- AST. ÉG FÓR ÞANGAÐ, EN UM LEIÐ OG ÉG KOM INN FYRIR ÞRÖSKULDINN, FÉKK ÉG HÖGG Á HAUSINN. heimslystum i helgan stein — Þið eigið að tala við hann Rikka prins, sagöi maður, sem kom inn á ritstjórnarskrif- stofur Vikunnar einu sinni í haust. — Hann hefur farið um allan heim og kann frá ýmsu c-o segja, og hann segir skemmtilega frá. Hann á nú heima í Höfnunum og allir þekkja hann unciir nafninu Prinsinn. Orð þessa manns, ásamt öðru fleira, urðu til þess, að frostbitran morgun settumst við inn í ljósgráan Volkswagen frá Bílaleigunni Fal o^ ókum af stað út á Suðurnes. Þegar í Hafnirnar kom, vikum við okkur að einum innfæddum, og spurðum hvort hann kannaðist við Rikka prins. Rikka prins, svaraði maðurinn og brosti í kampinn. —■ Þið munuð eiga við hann Rikka í Nýlendu, en ekki hef ég nú heyrt hánn kaliaöan prins áður. Það er gula húsið þarna, þetta með svarta þakinu. En ég er ekki viss um, að hann sé heima. Þið skuluð þá koma við í búðinni á móti kirkjunni, ég hugsa að stúlk- an þar viti um hann. Það fór eftir. Rikki var ekki heima í Nýlendu. I-íins vegar fræddi stúlkan í búðinni á móti kirkjunni okkur um, að hann myndi líklega vera staddur í laglegu húsi með grænu þaki við veginn inn í Hafnirnar, húsi sem nefnist Brautarhóll. Jú, frúin í Brautarhóli brást kunnuglega við, er við spurðum eftir Ríkharði Ásgeirssyni. — Rikki, kallaði hún inn í húsið, — það er verið að spyrja um þig. ALLX LYGILEGT. Ég hafði ímyndað mér, að Rikki væri ofan við miðjan aldur, gráhærður eða jafnvel sköll- óttur, með ör í mörkuðu andlitinu. Ég mun því hafa verið annað en gáfulegur í framan, þegar íram ganginn snaraðist ungur, liðlegur maður, með mikið dökkt, liðað hár, laglegt anolit (ef karlmaður getur dæmt um hvort annar karlmaður sé laglegur), brúna og hraust- lega húð og ofurlítið yfirskegg. Rikki tók er- indinu vel, og innan skamms sátum við í vist- ler ri stofu frú Ástu Þórarinsdóttur í Brautar- hóli og Rikki byrjaði: — Ég veit þið trúið því ekki, strákar, en þegar maður hugsar um þessi ár eftir á, finnst manni þetta allt svo lygilegt, að það sé fjar- stæða, að maður hafi lent í þessu. Þetta, er annars ekkert efni fyrir blaðaviðtal, strákar, þetta var aldrei neitt, maður var bara á sjón- um, og þegar maður fór í land var það ekki nema á einhverja búluna og svo aftur í skipið, þegar ekki var meiri peningur til. — Jæja, þetta byrjaði allt með því, að við fórum tveir saman, ég og hann Siggi heitinn halti, sem seinna varð bílstjóri í Reykjavík, á kanadískt skip í konvoj til Rússlands. Þá var maður 15 ára, og þetta var hreinn barna- skapur, það komust fæst skipin fram af þessurn skipalestum, þetta var árið 1942. Þetta þótti svo mikið óðs manns æði, að þegar við komum um borð vorum við spurðir að því, hvað við hefðum gert af okkur, hvers vegna við hlypum svona svo að segja út í opinn dauðann. Og eng- inn trúði okkur, þegar við sögðumst ekkert hafa gert. En þetta fór allt vel. Svo komumst við til Panama og fengum pappíra þar, og svo (J VIKAN Sh skrásetti eftir frásögn Ríkharðs Ásgeirssonar, Siglfirðings, sem sigldi um flest heimsins höf í fimm ár sam- fleytt, átti gleðihús á Colombia- ströndinni og stundaði vopnasmygl í Ameríku, en er nú meðhjálpari og safnaðarfulltrúi í Höfnunum. Teikning: SNORRI SVEINN. var maður þetta á einum dallinum eða öðrum, eftir því sem bezt blés. MISSTI AF SKIPINU. Á þessum árum voru margir íslenzkir strák- ar á amerískum skipum. Einu sinni kom ég af tilviljun inn á bar í New York, klukkan tvö um nótt. Þá voru þar fimm íslendingar. Einn þeirra var á norsku skipi, sem átti að fara þá um nóttina, en hinir strákarnir vildu ekki sleppa honum, því hann átti einhvern pening eftir pg gaf að drekka. Hann vildi ekki missa af skipinu. Hvaða vitleysa, sögðu hinir. Þú getur fengið nóga vinnu hér, miklu betur borg- aða. Og þeir nefndu alls konar tölur, máli sínu til sönnunar. Nú, ég á öll fötin mín um borð. Þeir héldu, að það væri lítið vandamál. Þeir skyldu redda því. Hvar á ég að sofa? spurði hann. Þú getur sofið hjá mér, svaraði einn eins og skot. Nú, svo missir vinurinn af skipinu, og þar kemur að hann segir við þann, sem bauð honum að sofa: Eigum við nú ekki að fara heim? Jú, jú, svarar hinn. Hvar áttu annars heima? Ja — ég sef hjá honum NN — (annar úr hópnum). Hvar á hann heima? Ja — hann á heima á sænsku sjómannaheimili, og ég verð alltaf að smygla mér inn til hans svo lítið beri á. Þetta var nú sá, sem húsnæðið bauð. Jæja, ég hafði tvö herbergi úti í Brooklyn, og það varð úr að ég tók drenginn með mér — hann var reyndar nafni minn. Og það var svo sem ekki mikla vinnu að fá um þetta leyti, en við fórum til skipamiðlara, sem hét Harris — stórundarlegur maður. Hann kunni ég veit ekki hvað mörg tungumál, og gat talað við fimm—sex í einu, svaraði þeim alltaf á jafn mörgum tungumálum og fipaðist aldrei. Þegar við komum var hann að tala spönsku í sím- ann, og í miðri setningu skaut hann á okkur: What can I do for you? Sorry, gentlemen, no ship. Og jafnframt bunaði spænskan út úr hon- um. Að lokum komst nafni minn á skip fyrir hans milligöngu, og einnig ég. En hann útveg- aði fyrst og fremst skiprúm fyrir þá, sem enga pappíra höfðu. Þegar ég komst í pláss, rétti ég skipsmönnunum vegabréfið mitt. Do you have a passport? spurðu þeir undrandi. Svo dró ég fram siglingapappírana mína. Þá duttu af þeim andlitin: Do you have all those papers? And a passport to? And you come from Harris? Það lá við að þeir færu að bera virðingu fyrir mér. ROTAÐUR I ALEXANDRIU. Ég komst alltaf vel af. Ég lærði fljótt að forðast slagsmál, vasaþjófa og svoleiðis ævin- týramenn. Á þessum árum var ég aðeins einu sinni rændur. Það var í Alexandíu í Egypta- landi. Ég kom þar inn á bar og sá gullfallega stúlku, og hún gaf mér undir fótinn með augna- ráðinu. Svo fór hún út, og ég í humáttina á eftir. Svona gengum við nokkurn spöl, svo hvarf hún inn í húsasund. Þegar ég komst svo langt að ég sæi inn í það, sá ég hurð lokast, Ég fór þangað, og um leið og ég kom inn fyrir þröskuldinn fékk ég högg á hausinn. Ég rotaðist ekki, en dasaðist og datt. Það var ekki mikið af mér að taka, var bara í þröngum buxum og skyrtu, en veskið yar þrifið og svo hlaupið burt. Við þessu var ekkert að gera, annað en að bera sig vel. Annars passaði ég mig að vera ekki fyrir, þegar slagsmál voru annars vegar. Það gerði líka sitt, að ég má ekki sól sjá, þá verð ég ekki aðeins brúnn, heldur svartur upp úr og niður úr, eins og negri. Það var einu sinni í Texas, að Norðmaður tók mig fyrir negra, og veðjaði 10 dollurum. En ég var þó alltaf í stuttbuxum, og ég sýndi honum í hvítu röndina þar. Hon- um varð svo mikið um, að hann fór úr barn- um, sem við vorum á, en ég varð svo hreykinn, að ég gaf öllum viðstöddum einn umgang! Verstir voru Gyðingarnir. Ég fór héðan hleypidómalaus í kynþáttamálum, sem von var, því hér hafði ég engu kynnzt nema venju- legum hvítum mönnum. En fyrst þegar ég kom til New York tók á móti mér Gyðingaprang- ari og hætti ekki, fyrr en hann var búinn að reita af mér hvert einasta sent. Og draslið, drottinn minn, það hefði engum heilvita manni dottið í hug að hirða einu sinni, þótt hann hefði verið draugfullur. Eftir þetta passaði ég mig á þeim — nema einu sinni. Það var líka í New York. JAKKINN OG HRINGURINN. Þá var ég á gangi á götu, þegar bíll renndi upp að mér og bílstjórinn benti mér að koma. Hann sagðist vera sendill hjá stóru fyrirtæki, og auðkýfingur á hóteli, sem hann nefndi, hefði pantað fjóra jakka ■—■ þið munið, rauða flauels- jakka með öðru vísi ermum, æpandi skræpótta, Framhald á bls. 54. VIK4N 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.