Vikan - 04.04.1963, Page 37
VIKU
klúbburinn
Klúbbblað fyrir börn og unglinga. Ritstjóri: Jón Pálsson.
Keiluspil er mjög vinsælt, en það er ekki á allra færi að byggja
keilubraut í líkingu við þá er Lídó tók í notkun í vetur. Fyrr má nú
líka gagn gera.
„Tveir duglegir strákar“, 12 og 13 ára, á Vesturlandi biðja okkur
að birta teikningu af keilubraut — og það gerum við með mikilli
ánægju og vonum að „duglegir strákar" — og góðir smiðir, finnist
víðar en á Vestfjörðum.
Á 1. mynd sjáum við ofan á keilubrautina. A, er brautin, 30 cm breið
og 2—3 m löng, gerð úr gabon, eða fjölum með nokkrum okum undir.
B, eru hliðarfjalir, 8—10 cm breiðar. D, er blikkrenningur, endar hans
eru negldir — eða skrúfaðir utan á hliðarfjalirnar. C, eru stutt hliðar-
borð, utan á B-borðunum. Punktarnir tíu, sem mynda þríhyrning á
öðrum enda brautarinnar, tákna keilustæðin og jafnframt göt, sem
bora þarf í gegn um brautina (sjá 3. m.).
í fyrstu röðinni eru 4 göt, en milli allra gata í hverri röð eru 6 cm
Framhald á bls. 50.
Vilhjálmur Baldvinsson, er hiaut 1. verðlaun í teiknikeppni Menningarsjððs og
kennari hans Einar Heigason, teiknikennari.
G6ð samvinna,
góður árangur
í teiknisamkeppni, meðal barna og unglinga, sem Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs efndi til 1961, fóru leikar svo að Akureyringar sigruðu,
„stórglæsilega" eins og íþróttafréttaritarar orða það. Nemendur í barna-
skóla Akureyrar voru meðal 800 keppenda í 67 skólum, víðs vegar um
landið, og hlutu 30 verðlaun af 42, hrepptu öll efstu verðlaunasætin,
en keppt var í 7 flokkum. Viðfangsefnið var: Myndir við texta úr
íslenzkum þjóðsögum og fornbókmenntum.
1. verðlaun hlaut: Vilhjálmur Baldvinsson, fyrir vatnslitamyndina
„Þrym drap hann fyrstan". —- 2. verðl. hlutu: Halldór Matthíasson og
Guðný Jónsdóttir. — 3. verðl. hlutu: Helga K. Þórðardóttir og Bryn-
Framhald á bls. 50.
Það er að jafnaði mjög takmarkað, sem kemst fyrir í einum elðspýtnastokki.
Töframenn segja þó annað. Og hér sjáið þið einn þeirra, sem dregur langan
töfrasprota upp úr stokknum. Þetta bragð getur þú auðveldlega leikið cftir þeim
— ef þú tekur miðhlutann úr öðrum skúffugaflinum, stingur öðrum stafendanum
í gegn um stokkinn, en feiur hinn endann upp í erminni. Á teikningunni sérðu
greiniiega, í hverju galdurinn er fólginn. Ljósmyndin er af frægum töframannl,
cr sýnir þér aðferðina.
VIKAN 14. tbl.
37