Vikan - 22.08.1963, Síða 4
Jyrir hauslið
fáum við mikið úrval af regnkápum, með og án
kuldafóðurs.
Einnig léttar úlpur með hettu.
Kápan hér á myndinni er úr vatnsþéttu poplin með kuldafóðri.
Tízkuverzlunin Guðrún
Rauðarárstíg 1 - Sími 15077.
Svar til Ellu.
Hvernig væri að segja vinkonu
þinni að segja honum að þú sért
hrifin af honum og viljir vera
með honum áfram, fyrst hann
sagði vinkonu þinni að hann
væri hrifinn af þér og langaði til
að vera með þér áfram?
Skrift og réttritun ...
Kæri Póstur.
Jeg les alltaf hreynt Vikuna í
hvert skifti og hún kjemur út.
Svo sabbna ég blaðinu og á
núna tvo árganga innbudna.
Mér finnst afskaplega gaman
af myndasögunum, sjerstaklega
Stínu og stjána.
Ég ættlaði ekert að biðja þig
um að leisa úr neynum vanda
fyrir mig, mér langaði bara til
að þakka þér fyyrir allt gamalt
og gott.
Vertu bless.
Sigga.
P.S. Hvernig er skriftin?
--------Skriftin er svona þolan-
leg, en réttritunin afleit.
Úrklippusafn ...
Pósturinn í Vikunni.
Hvers vegna tekur ekki Vikan
upp úrklippusafn eins og Fálk-
inn? Þetta er eitt það skemmti-
legasta sem við lesum. Hvernig
væri það, ha?
Tvær tuskur.
— — — Þótt hugmyndaþjófn-
aður sé stundaður í stórum stíl,
jafnt í blaðamennsku sem öðru,
þá verður að fara fínt í slíka
iðju. Hugmyndin er góð, en við
getum fjárakornið ekki verið
þekktir fyrir að stela henni frá
Fálkanum, heldur verðum að
bíta í það súra epli, að í þetta
sinn varð einhver fyrri til þess
að fá góða hugmynd. En það
kemur ekki oft fyrir.
Hálfflöskur ...
Kæri Póstur.
Getur þú gefið mér nokkra
skýringu á því, hvers vegna
„Ríkið“ getur ekki selt hálf-
flöskur með því brennivíni, sem
hér er framleitt? Bytta.
— — — Einfalt: Þetta eru ó-
sviknir bisnessmenn, sem þekkja
íslendinga og vita sem svo, að
ef íslending langar í flösku, þá
fær hann sér flösku, hvernig svo
sem hún er í laginu, og hann
hættir ekki fyrr en sú flaska er
tóm. Það væri ljótur bisness að
fara allt í einu að framleiða
hálfflöskur.
•
ítrekun ...
Vika mín.
Ég hef skrifað þér áður um
sama efni, en ég get enn ekki
orða bundizt.
Ég fór í bíó í gærkvöldi (Aust-
urbæjarbíó svo að ég hlífi nú
engum, þótt þetta bíó sé langt
frá því að vera eitt um þennan
ósóma) og sá þar mynd, sem
auglýst var ný ásamt öllu öðru
tilheyrandi auglýsingaskrumi. —
En ég er illa svikinn ef þessi
mynd hefur ekki verið a. m. k.
tíu ára. Ef kvikmyndahúsin ætla
að auglýsa allar myndir, tíu ára
og yngri, sem nýjar, væri
skemmitlegt að fá hjá þeim ein-
hverja skýringu á þeirri merk-
ingu, sem þau leggja í orðið
„nýr“.
Ég hef alltaf litið upp til
þeirra, sem þora að auglýsa vör-
ur sínar þannig, að neytendur
fái peninga sína aftur, ef varan
reynist öðruvísi en hún var
auglýst. Ef kvikmyndahúsin
hefðu þetta fyrirkomulag á, er
hætt við að ekki kæmi einn ein-
asti eyrir í kassann hjá þeim.
Að kríta smávegis og fegra
ögn það, sem á borð er borið, er
ekki nema eðlilegt, en þessir
kvikmyndahúsastjórar verða líka
að kunna sér hóf.
Með þökk fyrir birtinguna.
Bsi
Meter - metri ...
Kæri Póstur.
Getur þú skorið úr smá-
rifrildi?
Hvort er rétt að segja í nf. et.
meter eða metri? Tveir.
--------Það kvað vera rétt að
segja metri.
Réttlæti ... ?
Póstur minn.
Fyrir nokkuð löngu birtir þú
eina fyrirtaks grein um óáranið
í launamálum íslendinga og
bentir á ýmislegt, sem betur
mætti fara.
Það er nú svo með menn í
4
VIKAN 34. tbl.