Vikan


Vikan - 05.09.1963, Blaðsíða 3

Vikan - 05.09.1963, Blaðsíða 3
íftgefandi Hihnir h. I. Ritstjóri: ) Gísli Sigurðsson (ábm.). Auglýslngastjóri: Jóna Sigurjónsdóttir. Bláðamenn: Guðmundur Karlsson og ■ . Sigurður Hreiðar. Úöitsteikning: . Snorri Friðriksson. £ ■ Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Simar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Laugavegi 133, simi 36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson. Verð i lausasölu kr. 20. Áskriftarverð er 250 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun Hilthir h. f. Mynda- mót: Rafgraf h- f. í NÆSTA BLAÐI KANNSKE HANN HJÁLPI OKKUR, SEM LÉT OKKUR TIL VERÐA. S.H. hcimsækir systurnar á Heiði á Síðu. LUNDAR OG LÚS. G.K. á lundaveið- um í Vestmannaeyjum. SEX MÍNÚTUR. Spennandi smásaga eftir Larry Hague í KJÖLFAR KÓLUMBUSAR. Afrek Kólumbusar endurtekið 450 árum síff- ar, og til þess notuS fleyta og tæki sem allra líkust því, sem gamli maðurinn hafði yfir að ráða. MÉR ER SAMA HVAR ÉG ER, HAFI ÉG NÓG AÐ GERA. R.L. ræðir við ?Ólaf Jónsson, bakara frá Nebraska. DÖGUNUM EYTT í EKKI NEITT. R.L. ræðir við Erling S. Einarsson, flugmann, sem í sumar leitaði að síld fyrir norðan. Framhaldssögurnar: TILHUGALÍF, eftir Kristmann Guðmundsson, og HVAÐ KOM FYRIR BABY JANE? Hús og húsbúnaður, Fólk á fömum vegi, Síðan síðast, krossgáta, stjörnu- spá og margt fleira. í ÞESSARI VIKII YAR INGÓLFUR ARNARSON GABBAÐUR TIL REYKJAVÍKUR? Jochum Eggertsson hefur fundið lykil að galdraritum, sem greina frá Krýsum í Krýsavík. Þeir voru hér fyrir þegar landnámsmenn komu og síðar skrifuðu þeir íslendingasögurnar. TILHUGALÍF. Kristmann Guðmundsson, rithöfundur, hefur skrifað nýja framhaldssögu fyrir Vikuna, og hefst hún í þessu blaði. Þetta er ástarsaga, spennandi í meira lagi. Hún gerist í Reykjavík og norður í landi. ÞAR ERU KONUR GRÝTTAR FYRIR LAUSLÆTI. Vesturlandabúum kemur margt undarlega fyrir í hegningarlögum Arabíu. Þar eru þjófar t. d. handhöggnir og konur grýttar fyrir lauslæti. Áður fyrr var þeim hent fyrir hákarla í Rauðahafið, en Feisal konungur var mannvinur og vildi heldur láta grýta konurnar. ERU ÍÞRÓTTASTJÖRNUR G ALL AGRIPIR ? Grein eftir sænskan prófessor, þar sem hann ræðir þá kenningu, að kunnum íþróttastjörnum snúist flcst í óhag, þegar frægð þeirra er gleymd. CnDCIÐ All ísland er ríkt af hraunum, og hvert hraun býr yfir Iwiivl ftl |f sinni sérstöku f egurð. Kannske hefur þó Grábrókar- hraun ríkasta fjölbreytni, þeirra hrauna, sem liggja í alfaraleið, með straumfagra Norðurá á aðra hönd en skógi vaxið umhverfi Hreðavatns og Grábrókar á hina. Forsíðumyndin okkar að þessu sinni er úr Grábrókarhrauni, þar sem þessi unga stúlka hefur kosið að njóta náttúrufegurð- arinnar. — Ljósmyndina tók Rafn Hafnfjörð. VIKAN 36. tbl. — g

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.