Vikan


Vikan - 05.09.1963, Side 41

Vikan - 05.09.1963, Side 41
NÁTTKJÓLAR OG UNDIRFATNAÐUR íþróttaraönnum ? — Það væri athyglisvert við- fangsefni. Enn forvitnilegra væri þó að geta fylgzt með ferli þeirra íþróttamannaefna, sem nú vekja mestar vonir, og sjá hvern- ig þeim vegnar. Hassan frá Tanganyka Framhald af bls. 14. legt að þvi leyti að það er frá- brugðið þvi tilgangskeríi, sem er bundið amstri dægranna, sand- inum, sem rennur um greipar okkar. Þetta hygg ég vera muni meginstoð okkar i trúnni, og hvar annarsstaðar myndum við finna aðra slíka? í ógnþrungnum heimi getur livergi að finna aðra eins líkn og trúna. Þetta mál þarfnast allmikillar umhugsunar. Nú er það elcki ætlun mín að skrifa trúmála- hugvekju, né lieldur að boða Múhameðstrú. Ég trúi ekki á á- róðurinn sem slíkan. En hinu trúi ég að hver maður sé í raun- inni trúboði á sinn hátt. Er hann kemur auga á það, sem rangt er þá ber honum að berj- ast fyrir jiví rétta. Þegar liann sér brest á hann að bæta hann. Það er meira en timabært orðið að djúp hugsun komi i stað grunnhyggjunnar. t>að myndi gleðja mig ef þessi grein mín gæti vakið þótt ekki væri nema fáa menn til umliugsunar. Þótt undarlegt megi teljast þá finnst mér ég nákominn islenzku þjóð- inni; einlivern veginn ber ég jafn mikla umliyggju fyrir ykk- ur og fyrir minni eigin þjóð. Og það skal tekið fram, að mér þykir mjög vænt um þjóð mína. íslendingar eru góðgjarnir, hjálpsamir, gestrisnir, einlægir, heiðarlegir, lítillátir — sem er höfuðdyggð einnar þjóðar — og loks eru jjeir óbrotnir í lifn- aðarháttum sinum. En þrátt fyrir þetta þykist ég sjá í lifnaðarliáttum íslend- inga nokkurt merki um skort á markmiði eða tilgangi, Vissu- lega er mér ljóst að þeir eiga sér fleiri hugðarefni en þau að vinna, drekka og sofa, en samt þykist ég hafa orðið var við skort á æðra markmiði. Ég vona að j)ið fyrirgefið mér hreinskilnina, því hreinskilnin er meðal jieirra eðlisjiátta Is- lendinga, sem ég dái: Við getum ekki lokað augunum fyrir um- heiminum. Maðurinn er fæddur til ábyrgðar í heiminum, og það er skylda hans að bera sína ábyrgð þegar liann kemst til vits og ára. Það er ekki nóg að hugsa fyrir deginum í dag eða morgundeginum og jafnvel ekki fyrir næsta degi. Við verð- um að hugsa langt fram í tim- ann og iiegða okkur eftir þvi. Þessi skortur á tilgangi eða æðra markmiði hygg ég að stafi fyrst og fremst af trúleysi. Trú- in er þýðingarmikil því hún er fyrst og fremst til þess fallin að bæta mannlífið, ekki aðeins á andlega sviðinu heldur einnig á þvi tímanlega. Að minnsta kosti er þetta grundvöllur Isl- ams — Múhameðstrúarinnar, sem ég aðhyllist með gleði. Fólkið er fyrst og fremst gott, en jiað þýðir hreint ekki að j)vi sé ckki ábótavant. Og min skoðun er sú, að ef íslendingar taka sig á, muni ekki líða á löngu áður en þeir skara fram úr öll- um þjóðum veraldar. íslendingar eru duglegir, og um fram allt þá eru þeir söng- elskasta þjóð, sem ég liefi fyrir liitt. íslenzki söngurinn minnir kannski einna helzt á söng Walesbúa, en þeir eru þjóð söngs og tóna. Mér hefur verið sagt að ís- lendingar séu frjálslyndir í ásta- máliim, en um sannleiksgildi þess getur enginn sagt nema af eigin raun. Á þetta hefi ég sjálf- ur hvorki reynt né heldur kæri ég mig um það. En þó hefi ég séð nóg til þess að geta ætlað að þessi dómur sé sannur. Um þetta get ég sagt það eitt að ég er óvanur sliku lífi og að ég hefi enga löngun til að venjast þvi heldur. Maðurinn er undar- leg vera. Hann girnist margt, og þegar honum hlotnast það, sem hugur hans girnist, fyrirhafnar- lítið, þá vanmetur hann það. Ég minntist á það fyrr i þessari grein að frjálslyndið gæti leitt til virðingarleysis. Þetta á einn- ig við i kynferðismálum. Þess- háttar frjálslyndi í kynferðis- er einnig órökrænt og lciðir af sér mjög laus fjölskyldubönd. En hér er um stórmál að ræða, sem gæti leitt mann út i siða- predikun, og lijá henni vildi ég sneiða í svipinn. Þess vil ég óska öðru frcmur, að þeir íslendingar, sem ferð- ast til útlanda tækju sig til er þeir koma heim og kenndu löndum sínum betri lifnaðar- liætti, — ekki með að fá þá til að falla frá þjóðháttum sinum, heldur með því einu að full- komna þá, þvi sú þjóð, sem tapar sérkennum sínum tapar öllu. Og einmitt þetta ætti að vera megintilgangurinn með ferðalögum, að nema það sem gott er af öðrum þjóðum, skilja það sem miður fer eftir og auðga síðan þjóðlíf sitt með nýjum háttum og prúðum. Þeirra erinda ferðast menn tæpast að gagni til „vestrænna landa“ svo sem Bretlands, þar sem tilgangsleysið hefur einnig haldið innreið sína í mannlífið. Það er orðið tímabært fyrir íslendinga , að ferðast til hinna nálægari Austurlanda, landanna fyrir botni Miðjarðarhafs og til Asíu og Afríku, þar sem fólkið berst fyrir tilveru sinni og lifið hefur tilgang, til þess að læra það að tilgangurinn með lífinu VIKAN 36. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.