Vikan


Vikan - 24.10.1963, Blaðsíða 32

Vikan - 24.10.1963, Blaðsíða 32
J)arísar$nið - - J)arísariizka FRAML. AF VERKSMIÐJUNNI MAX H.F. -^fOMAS II 4 Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerklö (21. marz—20. apríl): Forskot sem þú færð veitir þér gullna möguleika til sigurs. Þú færð ýmis tækifæri til þess að sýna hvað í þér býr, en þú munt ekki sjá árangurinn að sinni. Maður sem þú hefur náið samstarf við opnor fyrir þér heim áhugamála sinna. Nautsmerkið (21. apríl—21. maí): Gott álit á þér út á við, gæti haft góð áhrif á róm- antíska möguleika þína. Þú bíður ósigur sem hef- ur ekki djúp áhrif á þig, en gæti reynzt þér lær- dómsríkur síðar. Vertu dálítið örlátur við þína nánustu, og þú munt ríkulega upp skera. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú stendur þig alveg prýðilega og eru yfirmenn þínir ánægðir með árangur verka þinna. Notfærðu þér hian hagstæðu aðstæður til að ráða bót á vandamálum sem hafa valdið þér erfiðleikum und- anfarið. Láttu engan vita um fyrirætlanir þínar. 7; ■ i- ^ r x w Á & y © Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þolinmæði þrautir vinnur allar, tækifæri þitt til að láta ljós þitt skína er enn ekki komið, en það kemur fyrr en varir ef þú hefur þetta hugfast. Ofurlítið ævintýri mun lífga upp á gráan hvers- dagsleikann. Taktu hlutina ekki of alvarlega. ©Ljónsmerkið (24. júlí—23. ágúst): Þessi vika verður nokkuð erfið fyrir þig á ýmsan hátt, þó máttu ekki láta aðra líða fyrir það. Reyndu að bera þetta sem mest einn, hugsaðu málin vadnlega og gerðu þitt bezta til að leysa vandann. Hagstætt væri að innheimta gamla skuld. Meyjarmerkið (24. ágúst—23. september): Þú verður fyrir dálitlum vonbrigðum með lausn vandamáls sem þú hefur lagt nokkuð hart að þér við að leysa. Þú færð tækifæri 1 vikunni sem eru nokkuð áhættusöm, þú verður að voga nokkru til þcss að þér nýtist það. Eyddu kvöldunum í rólegum félagsskap. Vogarmerkið (24. september—23. október): Þó að byrlega blási fyrir þér, þá gleymdu samt ekki að rækja skyldur þínar við bágstadda persónu, sem setur allt sitt traust á þig. Einkalíf þitt verður hamingjuríkt og blómstrandi, ef þú ert ekki með neina tortryggni. Reyndu að gera helgina eftirminnilega. Drekamerkið (24. október—23. nóvember); Það mun reynast þér nokkuð erfitt að samræma óskir þínar og skyldur. Nokkuð rót verður á til- finningalifinu. Þú færð eftirsóknarvert verkefni í hendur sem margir hafa verið um. Leggðu þig fram við að leysa sem bezt úr þessu einstæða tækifæri. Bogmannsmerkið (24. nóvember—21. desember): Þú ferð með sigur af hólmi í baráttu þinni fyrir ákveðnu máli. Gæfan brosir við þeim sem fæddir eru undir þessu merki, þó einkum þeim sem fædd- ir eru írá 14—20. júlí og munu þeim b.ióðast marg- háttuð tækifæri. Hamingjusamt og rólegt einkalíf. Geitarmerkið (22. desember—20. janúar): Þú verður þátttakandi í allvíðtækum gleðskap, 1 kynni þín af fólki þar munu hafa talsvert að segja upp á framtíðina. Það er nauðsynlegt fyrir þig að hugsa skýrt og skarplega og láta ekki hugaróra eða sjálfsblekkingar trufla þig. ®Vatnsberamerkið (21. janúar—19. fcbrúar): Varaðu þig á ágengum manni sem er á hnotskóg eftir vissri eign þinni. Þér heppnast því miður ekki að vera ráðgjafi eins og þú hefur hugsað þér, þú skalt því geyma hæfileikana þar til síðar. Vertu hress og kátur, það hefur ótrúlega mikið að segja. ©Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz): Áríðandi og aðkallandi mál, sem hafa dregizt á langinn, krefjast nú skjótrar afgreiðslu. Þú verð- ur venju fremur áhyggjulaus og nýtur lífsins bet- ur og meira en undanfarið. Grunsemdir sækja að þér, en bíddu eftir frekari sönnunum. 02 — VIKAN 43. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.