Vikan - 05.12.1963, Blaðsíða 5
---------Það er ekki satt, bréí-
in eru ekki nema þrjú, og ég á
þau öll; það er ómögulegt annnað
en þekkja þau á þessari undur-
samlegu rithönd. Hún á sér eng-
an líka í öllum heiminum. —
Jæja, var það ekki þetta, sem
þú vildir?
Árgangur 1958 ...
Getur þú frætt mig um það,
hvort VIKAN muni fáanlég öll
fx-á upphafi — 25 árgangar — og
ef svo er, hva'ð mundi liún kosta
öll.
Grúskari.
Reyfarakaup . . .
Kæri Póstur!
Ég er nýorðinn 18 ára. Ég er
búinn að vinna í rúm tvö ár og
búinn að safna mér rúmum 15.000
krónum, og kalla ég það gott.
Núna um daginn gafst mér kost-
ur að kaupa notaðan bíl á að-
eins 14.000 krónur, semsagt reyf-
arakaup.
En pabbi ætlaði alveg að tryll-
ast, þegar ég sagði honum þetta,
svo að ég þori varla að kaupa
kerruna.
Finnst þér karlinn hafa nokk-
urn rétt til að hegða sér svona?
Bílus.
--------Vissulega hefur hann
faðir þinn mikið fyrir sér í þessu
máli, og ég veit, að hann er ekki
á móti þessum kaupum af ein-
tómum rótarskap.
Það vill nú einu sinni þannig
til, að bílar, sem kosta ekki
meira en þetta, eru afskaplega
dýrir í rekstri, og hætt er við,
að þú myndir litlu safna næstu
ár-in, ef þú legðir í þessi kaup.
Karl faðir þinn veit hvað hann
syngur. Bíddu svolítið enn.
Ekkert gos . . .
Kæri Póstur!
Ég var einn af þeim ösnum,
sem lét plata sig í að kaupa sér
flugfar til að horfa á gosið við
Vestmannaeyjar. Ég borgaði
heilar fimm hundruð krónur,
hvorki meira né minna, en þeg-
ar til kom, sást ekkert fyrir gufu
og mekki.
Finnst þér ekki, að farþegarn-
ir ættu að fá eitthvað af pen-
ingunum sínum til baka. Þetta
var óttalegt svindl.
Reiður.
--------Við hverju bjóstu? Það
var einmitt gufan og mökkur-
inn, sem allir fóru til að sjá. Það
hefði verði látið púður í því að
fara og sjá enga gufu og engan
mökk: semsagt ekkert gos. Það
er með þig eins og suma: þeir
sjá ekki skóginn fyrir trjám.
---------j>ví miður þá er mál-
um svo komið hjá VIKUNNI, að
fyrirtækið sjálft á ekki einu
sinni alla árgangana „komplet“.
Þeir hafa að vísu verið til þ^r
til nýlega, innbundnir og í góðu
standi, en einhver hefur hrein-
lega stolið einum árganginum,
árinu 1958, og hann eigum við
því ekki til, en viljum gjarnan
kaupa — og borga vel fyrir.
Annars er mikið til af gömlum
blöðum, en til þess að fá góðar
upplýsingar um það, þá hal’ðu
samband við Blaðadreifingu,
Laugaveg 133, sími 36720.
Stígvél . . .
Kæra Vika!
Ég er 14 ára og stór eftir aldri.
Mig langar svo ægilega að eign-
ast svona há stígvéli eins og eru
í tízku núna. En mamma segir
mér að láta ekki eins og kjáni.
Hún segir, að þessi stígvéli séu
bara stundarfyrirbrigði, og ég
verði hundleið á þeim undir eins.
En mér finnst þessi stígvéli svo
ægilega smart og frumleg.
Finnst þér ekki að mamma
ætti að leyfa mér að kaupa
svona stígvéli?
Ein 14 ára.
— Mér finnst al.’t orðið
benda til þess, að það sé að
verða frumlegt að ganga EKKI
í svona stígvélum. Það er önnur
hver stelpa í þessu.
Svo heitir það STÍGVÉL, en
ekki stígvéli.
AÐ MARGGEFNU TILEFNI vil
ég taka það fram, að þessi dálkar
Póstsins eru ekki neinir auglýs-
ingadálkar. Það er ósjaldan, að
Póstinum berast auglýsingar í
bréfformi, en ég vil taka það
fram til að spara lesendum blek
og pappír að fyrirhöfn, að Póst-
urinn tekur ekki á móti auglýs-
ingum. Ef þið þurfið að auglýsa,
skuluð þið tala við auglýsinga-
stjóra Vikunnar.
HIN NÝTÍZKU LEGA FRAM LEIÐSLA
Á SNYRTIVÖRU M
og hin árangursríkasta fæst með
því aS nota lífræn krem, sem lagfæra
galla húSarinnar.
LA CRÉME
Bto-GaJba£y4
OG
BiO'Lacta
Lífga upp og yngja
Mcö samhliöa notkiui þeirra:
verður: styrkara, mýkra, yngra,
hörundið: liflegra og bjartara.
niettir og bólur hverfa
Að lokum: CRÉME BIO-CATALYS og BIO-LACTA
lækna eitranir og truflanir, sem fæðan getur valdið.
BIO-LACTA: Nýlega hefur verið hafin framleiðsla á BIO-LACTA
í túbum og á það við allar húðgerðir, hvort heidur er um að
ræða þurra, venjulega, blanúaða eða feita húð.