Vikan


Vikan - 05.12.1963, Qupperneq 33

Vikan - 05.12.1963, Qupperneq 33
vera, eða livort liún hyrfi ekki bara hægt á brott. Tór runnu niður eftir vöngum liennar, og iuin vissi, að hún g'rét, en hún var jafnvel of þreytt til að geta þerrað tárin. En nú, þegar hún lieyrði raddirnar, kviknaði aft- ur von i lirjósti hennar. Einhver ókunnugur var i hús- inu, ef til vill einhver, sem mundi bjarga lienni. Hún heyrði karlmann hlæja. Ef hún gæti að- eins látið hann vita, livernig komið væri fyrir sér, og að hún þarfnaðist hjálpar! Hún varíf að gera það! Hún ixtrð að finna eitthvert ráð! Hún endurtók þetta livað eftir annað með sjálfri sér í þeirri von, að henni kæmi eitthvert ráð í hug. En hún fann bókstaflega til sárs- auka, þegar hún hugsaði. Hún dró djúpt andann, og reyndi að gieyma öllu nema þvi, að hún mætti ekki liætta baráttunni fyr- ir að forða sér úr húsinu. Hún mætti ekki sofna, því að þá kæmi dauðinn. Svo heyrðist örlítill skellur að neðan, eins og glas hefði dott- ið á gólfið, og þá glaðvaknaði hún aftur. Skellur. Hugmynd gerði sam- stundis vart við sig: Hún varð að gera hávaða, velta einhverju, tjera mikinn hávaða. Eldhúsið var næstum beint fyrir neðan ... Allt í einu mundi hún eftir morgunverðarbakkanum, sem Jane hafði verið með í hönd- unum, þegar hún rakst á hana við gluggann. Jane hafði látið bakkann á borðið, já, náttborð- ið. Það ætti að vera auðvelt að ná til lians. Ef Jane hafði ])á ekki tekið hann aftur . . . Blanche velti sér á liliðina og kom auga á bakkann. Hann var á sinum stað, en hann var svo Iangt undan, og hún gal nðeins náð til hans með fingur- gómunum. Máttleysið var mesti andstæðinguF hénnar, en með þvi að brjótast um af öllu afli, gat hún 1 >y 11 sér svo i rúminu, að henni tókst að seilast til bakkans. Hún var örmagna, þeg- ar hún náði loks um brúnina á honum, svo að hún varð að hvíla sig andartak, áður en hún lét aftur til skarar skríða. Svo dró hún djúpt andann, krækti fingrunum i brúnina á bakkan- um og reyndi að velta sér á bakiði og draga bakkann að sér um leið. Eoks í þriðju atrennu íókst henni það, sem hún hafði ætlað sér. Þá rann bakkinn svo Jangt til á borðinu, að hann valt út af brúninni og datt á gólfið. Þegar leirmunir, silfur og glervarningur skall á gólfinu, varð af ógurlegur skruðningur, sem líktist þrumu inni í þröngu herberginu ... Nú var þessu lok- ið, og þögnin varð eins alger og áður. .Blanche velti sér á bakið, greip andann á lofti og lilustaði. .. hlustaði. .. Ég verð að fá peningana, sem þér lofuðiið mér. Og ég verð að fá þá i kvöldl Edwin hafði ætlað að segja þetta afdráttarlaust við Jane, en ])egar liann stóð frammi fyrir henni, féllust honum hendur. Það var erfiðara að gera fjár- kröfur til konu, en hann hafði gert ráð fyrir. Þar við bættist, að Jane var svo drukkin, að tiún var naumast fær um að ræða peningamál. En hann var samt ákveðinn í að neyða hana til að borga sér. Hún varð að gera það! Þessvegna afréð hann að verða um kyrrt og drekka með henni. Hann fengi þá á- reiðanlega tækifæri til að koma fyrirætlun sinni í framkvæmd fyrr eða siðar. Edwin glotti í skærri hirt- unni i eldhúsinu, um leið og hann fékk sér i þriðja skipti óblandað whisky — hafði aldrei drukkið svona mikið á ævi sinni áður. Þegar liann lét flöskuná frá sér, leit hann á Jane Hudson, sem sat andspænis honum og bullaði mikið, sem hann skildi nær ekkert í. Hún talaði um, að þau mundu koinast í bez-tu sjónvarpsþættina, það mundi verða leikur einn. Og þegar liann fór að finna á sér, tók hann und- ir þetta og sagði, að það væri svo sem auðvelt að fá ýmsa fræga skemmtikrafta til að koma fram, en þau mundu verða dýr- seldari en allir aðrir — hann og Baby Jane mundu ekki vilja starfa fyrir livern sem væri. Edwin var kominn i svo gott skap, að nokkur andartök liðu, áður en hann áttaði sig á þvi, að mikil breyting liafði orðið á skapi drykkjufélaga hans. Einu sinni þegar hann hafði lýst því, hversu eftirsótt þau mundu verða, og leit svo á Jane, varð hann undrandi af þvi, að hún horfði á hann döpur í bragði. „Nei,“ sagði hún, „nei.“ Augu liennar fylltust tárum, og það fauk í Ed, vegna ])ess að lnin virtist ætla að eyðileggja þessa skemmtun þeirra. „Þú mátt ekki hlæja að þessu . . .“ O, svona nú!“ sagði Edwin fýldur. „Þú sagðir, þú þarfnað- ist aðeins vinar — þá mundi allt verða í lagi jæja, hér er ég, ég er vinur þinn. Er þá ckki aílt i lagi? Hvað er þá að?“ En Jane hristi höfuðið aftur og tár blikuðu á augrn hennar, eins og titrandi gimsteinar. „Þú varst i svo helviti góð skapi rétt áð- an. Svona nú, hristu nú slenið af þér.“ „Mig langar til þess,“ svaraði Jane. „Mig langar svo til þess, Edwin. En ég get ekki orðið hamingjusöm núna . .. ekki nún ' ekki . . ." Hún leit á hann, og einkennilegur glampi sást í aug- um hennar gegnum tárin. „Ed- vin ...“ sagði hún svo, „get ég sagt þér dálítið —- án þess að þér finnist, að ég sé — ægileg? Ég á við ---------— “ Edwin bandaði frá sér með hendinni. „Vitanlega,“ sagði hann, eins og sá sem valdið liefur. „Þú getur sagt mér livað sem er hvenær sem þú vilt. Þú þarft ekki að halda neinu leyndu; segðu mér allt af létta.“ Jane virti hann fyrir sér. ,,Þú iofar þvi?“ „Lolar?“ „Að hætta ekki að vera vinur minn?“ „Já, vitanlega lofa ég þvi.“ Jane lagði hendurnar á borðið, og svo leit hún á hann með augum, sem virtust algerlega taus við áfengisáhrif. Hún sleikti á sér varirnar, til þess að undir- húa ræðu sína. Og á því andar- taki gerðist það. Þá heyrðist skruðningurinn. Það var eins og allt a'tlaði um koll að keyra fyrir ofan þau. Edwin stökk á fætur, og velti stólnum um leið. Andartak starði hann upp i loft- ið, en svo horfðist hann í augu við Jane. „Hver djöfullinn!“ hrópaði hann. „Hvað var þetta?“ Fimmtándi kafli. Jane hristi höfuðið, virtist ekkert skilja. „Hvað var þetta?“ Edwin stefndi i áttina að ganginum. „Hver er þarna uppi?“ „Enginn! Edwin! . ..“ Hún liljóp á eftir honum, og tók um liandlegginn á honum, en hann losaði um takið og liélt áfram. „Ég ætla að fara upp og athuga þetta.“ „Nei!“ Eftir andartaks hik liélt hún á eftir honum. „Nei! Edwin . . . Það er ekkert! . . .“ En hann lét ekki segjast við þetta heldur hélt áfram alveg að stiganum og upp hann. Svo beið hann eftir henni uppi og sagði lienni að kveikja. Hún þrjóskaðist við i fyrstu, en þorði síðan ekki annað en að hlýða. Þegar hún reyndi svo enn að telja hann á að fara ekki upp, sneri hann sér að lienni ógn- andi, og þá þorði hún ekki ann- að en að leysa frá skjóðunni. „Ilún ætlaði að reka mig ut — reka mig út úr húsinu . . .“ Hún fór um leið að gráta. „Ég — ég vissi ekki, hvað ég ætti að gera. Hún hatar mig! Hún heldur, að ég viti það ekki. Hún hefur alltaf hatað mig — frá þvi að við vorum börn.“ Hún þagnaði allt i einu og sagði svo: „Edwin . . .“ Hann kinkaði kolli i áttina upp á loft. „Systir þin?“ Hún virtist ætla að þrjóskast við að svara en sagði svo: „Já Blanche — hún er þarna uppi ... En það er allt í lagi...“ „Þarna inni?“ Nauðugur vilj- ugur varð Edwin að halda þess- um leik áfram, svo að hann gekk nú að lokaðri liurðinni. „En það er allt i lagi núna,“ sagði Jane. „Þú skilur þetta ekki. . .“ Edwin tók um húninn og gat ekki opnað. „Hurðin er læst,“ sagði hann og leit á Jane. „Þú hefur lokað hana inni, er það ekki?“ Jane kinkaði kolli. „Þú sagð- ist vera vinur minn ... Þú lof- aðir .. Edwin rétti fram höndina snögglega. „Hvar er lykillinn?" Jane liikaði og liörfaði skref. „Nei,“ sagði liún og liristi höf- uðið. „Nei!“ Edwin starði á liana og hon- um fannst allt í einu, að hún væri svo óskaplega lík Del. í reiðikasti þreif hann til henn- ar og liristi hana. „Fáðu mér hann!“ hrópaði liann. „Fáðu mér hann strax!“ Hún þorði ekki annað en að hlýða honum, fór inn í herberg- ið sitt, sótti lykilinn og fékk honum. „Gott og vel,“ sagði hann og gekk aftur að dyrunum. Þegar Blanche heyrði, að lykl- inum var stungið í skrána, reyndi hún að lyfta sér liærra i rúminu, svo að hún sæist bet- ur frá dyrunum. Hún hafði sigr- að! Hún liafði mikinn hjartslátt og andvarp leið frá brjósti henn- ar, þegar liurðinni var lokið upp og hún sá feitlaginn, há- vaxinn mann standa i dyragætt- inni. Hún varð að tala, hún varð að láta hann vita, hve mikilvægt það var fyrir liana, að hann liafði komið. „Guði sé lof!“ Rödd hennar var svo veik, að það var alls ekki vist, að hann hefði heyrt til liennar. „Guði sé lof, að þér eruð kominn .. .“ Tár fóru að renna niður vanga hennar, óstöðvandi, því að lienni létti svo. Maðurinn i dyragætt- inni slagaði örlítið, en hann gerði sig ekki líklegan til að ganga inn i herbergið. Hann stóð en svo þreyfaði liann eftir rof- anum og kvcikti. Birtan var svo skær, að Blanclie varð að loka augunum rétt sem snöggvast, en svo opnaði hún þau aftur og gerði á ný tilraun til að setjast upp í rúminu. „Takið mig — flytjið mig —- á brott liéðan ...“ stundi hún. „Gcrið það ... Gerið það!“ Svo beið hún, en hann gerði sig ekki líklegan, til að ganga inn i herbergið. Þegar hún virti hann fyrir sér, sá hún, að lion- um hafði orðið svo mikið um að sjá liana, að liann gat livorki hrært legg né lið. En svipurinn breyttist á andliti hans, undr- unin hvarf, og viðbjóður kom i staðinn. Hann hopaði aðeins á hæli, og um leið seildist hann eftir rofanum til að slökkva. Hann varð aftur að ásjónulausri skuggamynd. ,,Nei!“ hrópaði Blanche. „Nei!“ IJún reyndi að draga sig fram á rúmstokkinn. „Skiljið mig ekki eftir liér! Ekki...!“ Framhald á bls. 58 VIKAN 49. tbl. — gg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.