Vikan - 05.12.1963, Page 35
Hér er hlýlegur og heimilislegur sauma-
krókur fyrir húsmóöurina. Það
var gaman að fá þessa gömlu, hvít-
máluðu ruggustólsgerð á markaðinn
aftur. Hann er frá Kristjáni
Siggeirssyni, kostar kr 3.100 og
fæst í fleiri litum og einnig úr ómáluðu
brenni. Saumaborðið er úr tekki og
tvær hirzlur í því, sem eru á
lömum og opnast út. Það er frá Hús-
gagnaverzlun Austurbæjar og kostar
kr. 1.575. Frá sömu verzlun
er einnig lampinn. Hannn er danskur,
vafinn með snæri, módelgripur
og kostar kr. 1.280. — Málverkið
er eftir Kjartan Guðjónsson. Módel:
Margrét Schram.
Við gerðum tvær lausnir á stofunni, eina
með stóru sófasetti og aðra ineð
fyrirferðarlitlu og léttu sófasetti.
Það sést hér á myndinni. Sófinn er
p.lveg af sömu gerð og stólarnir
og bak hans eins og þeirra. Efnið er létt
tekkgrind, lausir svamppúðar
og yfirdekkt með brúnu kambgarns-
áklæði frá Últíma. Settið, tveir
stólar og sófinn kosta kr. 16.350 og
fást hjá Húsbúnaði á Laugavegi.
Sófaborðið er ílangt og létt
eins og stólarnir. Það er frá Húsgagna-
verzlun Austurbæjar á Skólavörðu-
stíg og kostar kr. 2.650. Keramikvasinn
í glugga er eftir Ragnar
Kjartansson í Glit. Málverk eftir
Kjartan Guðjónsson og Hörð Ágústsson.