Vikan - 05.12.1963, Síða 36
Þetta glæsilega sótasett er teiknað af íslenzkum húsgagnaarkitekt, Gunn ari Magnússyni. Sófinn er f jögurra sæta. Springpúðar í hökum og
setum, en grind úr peróba. Aftan á bökunum er flötur klæddur línóleum. Sófaborðið er samsett úr þrem litlum borðum sem hægt er að raða upp
á marga vegu. Þetta sófasett fæst í Skeifunni í Kjörgarði og kostar kr. 32.500. — Keramikskálarnar og vasarnir eru frá Glit h.f. Sjónvarps-
tækið: Sjá lýsingu til hægri. Hannyrðahirzlan cr frá Húsgagnaverzlun Ileykjavíkur, og kostar kr. 590, teikn. Sigurður Karlsson.
Módel á myndinni: Valgerður Hjaltested og Gestur Einarsson.
VIK A N
>
V.E LURiHÚSGÖGN
>
Borðstofuhúsgögn, sem Sig-
valdi Thordarson, arkitekt hef-
ur teiknað, en Helgi Ein-
arsson smíðað. Þetta glæsi-
lega borðstofusett fæst í Hí-
býlaprýði í Hallarmúla. Skáp-
urinn kostar kr 12.540, borð-
ið eitt 6.430 og stólarnir kr.
2.290 nema endastólarnir,
sem kosta kr. 2.475 stykkið.
Gluggatjöld eru frá Gluggum
h.f., hengilampinn frá Hús-
gagnaverzlun Austurbæjar, og
keramikvasi í brúnum lit
frá Glit.
A
Skrifstofa húsbóndans. Borðið er frá Skeifunni í Kjörgarði og kostar
kr. 7.500. Borðlampinn er frá Raflampagerðinni í Suðurgötu og
kostar kr. 850. Veiðimannastóllinn er úr segldúk, leðri og harðviði.
Hann fæst hjá Kristjáni Siggeirssyni og kostar kr. 1.175.
Pýra-hillur, frá Híbýlaprýði í Hallarmúla, sænskættað hillu-
sytem, sem ryður sér mjög til rúms. I»að getur staðið frjálst eins og
hér, eða við vegg. Pýrahillur eins og hér sjást, kosta kr. 7.274. Út-
varpstækið er LUXOR frá Vélar og Viðtæki á Laugavegi, 69,
cm á lengd, hæð 24 cm. Það er úr tekk og kostar kr. 8.300. — Tæk-
ið samsvarar 17 lampa styrkleika. Það er með lang-, mið-, stutt-
og ultrabylgju. Módel: Margrét Schram.