Vikan - 05.12.1963, Page 57
un í þessu gosi, að fréttir af
því og myndir verða óðar úrelt-
ar. Kannski er eyjan og gígurinn
á þessum myndum hreinn hé-
gómi hjá því sem verður, þegar
blaðið kemur út. Engu að síð-
ur hefur VIKAN gert sitt betza
til þess að lesendur blaðsins fái
sem gleggstar hugmyndir um
þetta gos, með því að senda ljós-
myndara á staðinn. Kristján
Magnússon dvaldist í nokkra
klukutíma á báti í nánd við gos-
staðinn og fór stundum mjög
nærri eins og myndirnar sýna.
Síðar í þessum mánuði mun
VIKAN birta litmynd á forsíðu,
sem Kristján tók í þessari ferð.
J ÓL AB AKSTURINN
FRAMHALD AF BLS. 31.
Góð hnoðuð terta
500 gr. hveiti, 375 gr. smjör, 250
gr. sykur, 2 stk. egg, 2 tsk. lyfti-
duft, möndiudropar.
Alit hnoðað og flatt út í frek-
ar þunn lög. Sett á smurða plötu
og losað meðan kakan er volg
af plötunni, líka má hafa smjör-
pappír undir til þess að auðveld-
ara sé að ná henni af. Sveskju-
sulta er gott í þessa tertu, sem
svo er sneidd eins og formkaka.
Piparhnetur
2 egg, 2 hg. strausykur, 2 hg.
smjörlíki, 1Vi tsk. nýmöluð
kardimomma, V2 tsk. engifer, Vi
tsk. negull, 1 tsk. kanill, Vi tsk.
kryddpipar (helzt nýmalaður)
rifinn börkur af 1 sítrónu, 1 hg.
möndlur, 1 tsk. hjartarsalt, 4 hg.
hveiti.
Sykur og egg hrært saman og
hálfbrætt smjörlíkið sett í
Möndlurnar flysjaðar og brytjað-
ar og bætt í ásamt kryddinu.
Síðast er hveitið og hjartarsalt-
ið sett í og allt hnoðað saman.
Búnar til lengjur og skornar
kúlur, sem bakaðar eru í lítið
heitum ofni, þar til kúlurnar eru
vel þurrar.
Hnetukökur úr ísskáp
2 bollar hveiti, Vt tsk. salt, %
bolli smjörlíki, V2 bolli sykur, V2
tsk. möndludropar, 1 bolli hakk-
aðar heslihnetur.
Þessar kökur má geyma óbak-
aðar í ísskáp mjög lengi, en áður
en þær eru bakaðar verður deig-
ið að vera a.m.k. í sólarhring í
ísskáp, en þá eru þær sneiddar
mjög þunnt á plötuna. Þær eru
gerðar þannig: Smjörið er hrært
vel með sykrinum og droparnir
settir í, síðan er hveitinu og salt-
inu bætt í og síðast hnetunum.
Þær eru bakaðar í meðalheitum
ofni í 8—10 mín. Ef vill má setja
tvær og tvær saman með rifs-
berjahlaupi á milli og þekja þær
svo með glassúr og skreyta með
möndlum eða kirsiberjum.
Döðlu-hnetubrauð
lVi bolli hveiti, 5Vt tsk. lyfti-
duft, 1 Vi tsk. salt, V3 bolli sykur,
IV: bolli heilhveiti, Vz bolli hnet-
ur, % bolli döðlur, Vi bolli dökkt
sýróp, 1'á bolli mjólk, 2 matsk.
brætt smjör.
Hveiti, lyftiduft, salt og sykur,
hnetur og döðlur sett í skál og
b’.öndu af dökka sýrópinu, mjólk-
inni og bræddu smjörinu hellt
yfir og hrært í þar til það hefur
rétt samlagazt, en ekki meira.
Sett í ílangt, djúpt mót og bak-
að við meðalhita í 1—íVt klukku-
stund. Borðað með smjöri.
Kanilterta
Deigið: 125 gr. smjör, 100 gr.
sykur, 1 egg, 160 gr. hveiti, 1
matsk. kanill.
Smjörið hrært hvítt með sykr-
inum, eggið þeytt lausiega sam-
an og sett út í, síðan hveitið og
kanillinn. Smjörpappír klippaur
í botn á formi, helzt ferhyrndu
eða ílöngu formi, og deigið smurt
mjög þunnt á pappírinn. Þessi
skammtur ætti að nægja í 5—6
botna. Bakað við góðan hita og
látið kólna um stu ndá pappírn-
um, áður en hann er tekinn af.
Fyllingin: 100 gr. hjúpsúkkulaði,
V2 1. þeyttur rjómi, 100 gr. val-
hnetukjarnar, 3 matsk. sherry.
Súkkulaðið brætt í vatnsbaði
eða við lítinn hita og einn botn-
inn smurður með því, en hann
er svo notaður efst. Valhnetu-
kjarnarnir saxaðir smátt og þeim
og sherrýinu blandað í stífþeytt-
an rjómann. Sett á milli laganna
rétt áður en kakan er borin
fram.
Dundee-kaka
170 gr. smjörlíki, 375 gr. syk-
ur, 3 egg, 250 gr. hveiti, 250 gr.
hrísmjöl, 1 tsk. lyftiduft, 1 Vi dl.
mjólk, 65 gr. möndlur, 250 gr.
rúsínur, 125 gr. kúrennur, 125
gr. súkkat, 1 glas konjak.
Hrærið smjörið og sykurinn
þar til það er hvítt og létt og
bætið eggjunum í, einu í senn.
Setjið þurru efnin í ásamt mjólk-
inni, en konjakið síðast. Deigið
sett í stórt kökuform og bakað
í u.þ.b. 2 klukkutíma við 175
stiga hita. Kakan verður bezt, ef
hún er geymd í a.m.k. viku, áður
en hún er notuð.
VIKAN VELUR
HÚSGÖGN
FRAMHALI) AF BLS. 34.
sem Sveinn Kjarval hefur teikn-
að og síðan var framleitt í Ný-
virki h.f. En þar sem þetta
ákveðna borðstofusett var ekki
til á markaðnum þá daga, sem
undirbúningur myndatökunnar
fór fram, var ákveðið að taka
annað í staðinn, sem Sigvaldi
Thordarson, arkitekt, hefur
teiknað, en Helgi Einarsson fram-
leiðir.
Tvöfalt CUDO-einangrunargler gegn kulda
og hávaða.
TRAUSTS ER MERKIÐ SEM NÝTUR
CUDOGLER H. F.
SKÚLAGÖTU 26 — SÍMAR 12056, 20456.