Vikan - 05.12.1963, Blaðsíða 64
Stretchbuxur
ÞUNNAR
0 G
ÞYKKAR
ÁHERRA
OG DÖMUR
★
Vattúlpur
★
Skíðahúfur
★
Rúllukragar^ J
HEILD S ÖLUBIRGÐIR:
reykjavTk
SKÚLAGÖTU 57 — SlMI 15005
hefir ekki illt af að fá svolítið
af hreinu lofti heldur.
— Áreiðanlega ekki, sagði
Clare. — Annars er ég miklu
betri núna, þó ég sé fjúkandi
reið ennþá.
— Ég hugsa að deijdarsystirin
fái ekki tækifæri til að kvelja
þig framar, sagði Keneth Morg-
ate og hló —- Yfirhjúkrunarkon-
an er alls ekki blíð þessa stund-
ina, og hún leysir VafalaUst úr
þessu ....
Keneth beið niðri meðan Clare
fékk sér steypu og fór í fallegan
franskan bómullarkjól.
— Þú ert ekki lengi að því
sem lítið er, sagði hann er hún
var komin inn í bílinn aftur. —
Ljómandi ertu falleg núna,
sagði hann svo, og horfði að-
dáunaraugum á hana.
— Mér líður að minnsta kosti
vel núna, svaraði hún. — Það er
kannski tilhugsunin um fríið,
sem veldur því ....
Þau óku út að litlu veitinga-
húsi við þjóðveginn, sem bæði
þekktu vel. Þau pöntuðu mat-
inn og fengu sér svo kokkteil út
í garðinum.
— Hvert hefurðu hugsað þér
að fara í fríinu? spurði hann.
Clare hafði alltaf fundist
Keneth vera maður, sem hægt
væri að treysta. Hann var alltaf
fús til að hjálpa, þegar þörf var
á, og hún mat vináttu hans mik-
ils. Hana mun hafa grunað að
hann vildi helst dálítið meira en
vináttuna eina, og lét það liggja
milli hluta. Henni fannst aðdávin
hans vera fullmikið áberandi, og
svaraði hálfvegis hikandi:
Ungfrú Hamden að að biðja
mig að koma með sér til Com-
well. Foreldrar hennar eiga stór-
hýsi skamt frá Falmouth.
-— Og þú ert þá að hugsa um
að taka boðinu? sagði hann óró-
legur.
— Já, en . . . Hún þagnaði.
— Ég hafði vonað að þú
mundir koma heim til fjöl-
skyldu minnar með mér. Við
eigum heima skamrnt frá Ascot
.... Nei, hlustaðu nú á mig,
Clare. Þú hlýtur að hafa skilið
hvernig mér er innanbrjósts
. . . . að ég elska þig, Clare.
Gifstu mér, Clare, sagði hann
lágt og innilega.
Það var svolítill hrollur í
Clare, því að kvöldloftið var
svalt. Henni þótti verulega vænt
um Keneth, sagði hún við sjálfa
sig. En var það ást? Hún hafði
alltaf ímyndað sér ástina miklu
ákafari. Hvernig gat hún, svo
vel færi, haldið honum í hæfi-
legri fjarlægð — að minnsta
kosti þangað til hún væri orðin
viss um sínar eigin tilfinningar?
Nú hélt hann að hún væri að
hugsa um framtíðarhorfur hans
flýtti sér að segja:
— Ég enda spítalavistina í lok
þessa mánaðar og þá geng ég í
félag við þrjá aðra lækna í
Sunningdale. Ég ætla að eign-
ast hús fyrir sjálfan mig, og þó
að tekjurnar verði ekki miklar
fyrst í stað, ætti framtíðin að
geta orðið björt. Ég gæti látið
þig fá.......
—- Æ, Keneth, það er ekki
þetta, sem ég að að hugsa um . .
— Er það svo að skilja . . .
að kærir þig ekkert um mig?
— Jú, Keneth, mér þykir
vænt um þig, það veiztu. En ég
er hrædd um að ég elski þig
ekki á sama hátt og þú . . .
Hann tók fram í, ákafur: —
Ég hætti samt á það. Ef þú vilt
giftast mér!
En ég get ekki gert það —
sjálfs þín vegna . . .
Hún þagnaði allt í einu, því
að maður nam staðar hjá þeim.
Hár maður og prúðmannlegur
og svo heillandi að Clare fannst
hún ósjálfrátt dragast að hon-
um. Augu þeirra mættust sem
snöggvast en svo leit hún und-
an.
— Þarna er þá Simon kom-
inn? sagði Keneth hissa. Svo
kynnti hann þau og hélt áfram:
— Hvað ert þú að gera hérna,
Simon?
Simon Denver reyndi að stilla
sig um að horfa of mikið á vang-
ann á Clare. Hann fann líka til
hinna ofsafengu áhrifa, sem
hann hafði orðið fyrir, og hon-
um veittist örðugt að tala eðli-
lega. Rödd hans var mjúk og
viðfeldin —- töfrandi, fannst
Clare.
— Ég er hér á snöggri ferð í
sjúkravitjun, sagði hann. — Ég
hefði gjaman vilja vera hérna í
nokkra daga, en . . . . Hann and-
varpaði. — Þeir eru of margir
sjúklingarnir, sem bíða mín
heima, því miður.
—■ Eruð þér lyflæknir? spurði
Clare.
— Nei, Símon er augnlæknir,
og talsverður galdramaður,
sagði Keneth.
Simon Denver! Allt í einu átt-
aði Clare sig á nafninu.
— Það voruð þér, sem skáruð
Faith Hamden, er ekki svo?
— Jú. Það var ég. Og ég var
einmitt að koma til hennar ný-
lega. Faith talar mikið um yður.
Mér skilst hún vera staðráðin í
að fá yður til þess að koma með
sér til Comwall.
Clare komst í einskonar upp-
nám. — Mér finnst mjög freist-
andi að taka boðinu, sagði hún.
— Ég ætla að aka henni heim,
sagði Denver. — Ég gegni lækn-
isstörfum í Falmouth.
— Einmitt það, sagði Clare.
Henni sárnaði að hún skyldi
ekki hafa neitt gáfulegra að
segja.
— Og það er feikinóg rúm í
bílnum mínum, ef þér vilduð
verða okkur samferða.
Clare muldraði eitthvað um,
að það væri vel boðið.
Keneth leit tortryggnislega á
Simon Denver, og spurði í
glensi hvort honum stæði far til
I NÆSTA
BLAÐI
Vegna mistaka í prentun er
listinn á bls. 3 um efni í næsta
blaði ekki réttur. Hann kemur
viku of fljótt. Við biðjum vel-
virðingar á þessum mistökum og
birtum hér réttan lista yfir það,
sem kemur í næsta blaði, en það
verður m.a. þetta:
Nýr miðbær í Reykjavík.
Tveir ungir arkitektar,
nýkomnir frá námi í
skipulag'sfræðum við
Tækniháskólann í Stutt-
gart, hafa gert tillögur
um nýtt skipulag miðbæj-
arins, þannig að hann
fullnægi þeim kröfum,
sem gera verður til mið-
borgar. VIKAN hefur
fengið leyfi til þess að
birta myndir af þessari
skipulagstillögu og viðtal
við þá félagana.
DAGBÓK AF MARÍU JÚLlU.
Niðurlag greinar Jónasar Guð-
mundssonar, stýrimanns, um jól
á sjó.
ÞEGAR KONAN RÆÐUR. Ný
smásaga eftir Guðnýju Sigurðar-
dóttur.
UNDIR FJÖGUR AUGA. Efni af
léttara taginu eftir Karlsson.
Jólasveinar einn og átta.
Nógu lengi hafa erlendar
helgimyndir sinnt störf-
um hér á landi sem jóla-
sveinar. Nú er komið mál
til, að við förum aftur að
sýna okkar gömlu, mann-
legu jólasveinum réttan
sóma. Við höfum ekkert
að gera við rauðklædda
hálfengla í þeirra stað.
Bessi Bjarnason og Sig-
urður Hreiðar gera sitt
bezta til þess að koma ís-
lenzku, hvinnsku jóla-
sveinunum aftur í sinn
fyrri sess.
VETRARTÍZKAN f VERZLUN-
UM BORGARINNAR. VIKAN
heldur áfram að ganga í verzlan-
ir og athuga vetrartízkuna.
Framhaldssögurnar, kvennaefni,
krossgáta, stjömuspá og ýmis-
legt fleira.
— VIXAN W. tM.