Vikan


Vikan - 05.12.1963, Page 68

Vikan - 05.12.1963, Page 68
★. TAKA Á MÓTI ÚTSENDINGUM * 23“ MYNDALAMPI. BÆÐI Á AMERÍSKU OG ★ STÓR HLJÓMGÓÐUR HÁTALARI. EVRÓPSKU KERFI. ★ TEAK-SKÁPUR. 0. Johnson & Kaabcr. raltækjadeild. Sætúni 8. fívth Heimilistæki sf., Halnarstrætt 1. Reykjavík Radíóvlrkinn. Skólavörðustig 10. Reyklavík Verzlun Valdimars Long. Halnarlirði Radíóvinnustofan, Vallaroölu 17, Keílavík Haraldur Böðvarsson A Co.. Akranesi öllu. Þegar þau voru setst sneri Faith sér að Simon og sagði, áð á þessum stað finndist sér for- tíðin koma á móti manni. — Mér finnst að ég hafi átt heima hérna, einhverntíma fyrir löngu. Ég er viss um að hérna er mikið af ekta dúkum, og gljá- andi kopar og látún hvar sem litið er. Clare og Simon litu hvort á annað. — Þetta er alveg laukrétt hjá þér, sagði Simon og bætti svo við: — Var þetta aðeins ágisk- un hjá þér, Faith? — Nei, ekki var það nú. Clare og Simon héldu niðri 1 sér andanum. — Áttu við það að . . . Eftir- væntingin í rödd læknisins leyndi sér ekki. —■ Mér fannst ég sjá eitthvað, sem glitraði eins og glampi, þeg- ar við komum hérna inn, sagði Faith. — Heldurðu að það sé takandi mark á því? Að það sé einhver von? — Maður má aldrei missa von- ina, sagði hann. — Simon hefur alltaf haldið að ég fengi sjónina aftur, sagði Faith lágt — eins og hún væri að tala við sjálfa sig. — Ég veit það og trúi því líka sjálf. Simon sagði, líkast og í að- vörunartón: — En það getur ver- ið hættulegt, ef það eru tálvon- ir, Faith . . . Hún hló, einkennilegum beiskjuhlátri. En eru tálvon- irnar samt ekki skárri en engar vonir? Clare furðaði á þessum orð- um. í sjúkrahúsinu hafði henni alltaf fundizt Faith taka mót- læti sínu með miklu sálarþreki, og aldrei æðrast. Nú grunaði Clare að Faith væri að skiljast hve ömurleg örlög hún ætti í vændum, og vorkennndi henni innilega. Hver gat í rauninni vit- að eða gert sér von um að skilja hvað bærðist í brjósti ungrar stúiku, sem á æskuárunum lenti í slysi er rændi hana sjóninni? Fólk misskildi sjálfsagt oft af- stöðu blinda fólksins til tilver- unnar. Lét blekkjast af undra- verðri viðleitni þess á því að bjarga sér sjálft, og hvernig það gat þjálfað sjötta skilningarvit- ið. — Við verðum að berjast fyr- ir því að vonir okkar bregðist ekki, sagði Simon með áherzlu. — Áttu við að þú ætlir að skera augun einu sinni enn? spurði Faith óróleg. — Við verðum að vera þolin- móð enn um stund, sagði hann lágt. — Ég vil að Margeton skoði þig, áður en við tölum endan- lega ákvörðun. — Ég verð að játa að ég er farin að verða óþolinmóð, sagði Faith. — Það er ekki beinlínis blindan sjálf, sem fer í taugarn- ar á mér, en mig langar svo mik- ið til að sjá þig, Simon — og allt hitt fólkið líka. Clare varð litið upp í þessum svifum og horfði í augu Simonar. En henni fannst hann vilja forð- ast að horfa í augun á henni. Hún skalf þegar hún sá hve svipur hans var kuldalegur. Það var kuldi, sem hún gat alls ekki átt- að sig á. Hún reyndi að hugsa skynsamlega. Hafði hún ímyndað sér einhverja fásinnu? Hann hafði enga ástæðu til að gera henni hærra undir höfði en öðr- um. Það gat varla heitið að þau þekktust. En henni fannst þessi skýring ófullnægjandi og henni leið illa. Kannske hefði hún átt að hugsa sig betur um áður en hún þáði heimboð Faith. Meðan hún var að velta þessu fyrir sér kom hún auga á mann, sem stóð í borðsalsdyrunum og leit kring- um sig-. Þegar hann kom auga á hana kinkaði hann kolli og gekk rakleitt að borðinu til þeirra. — Er það sem mér sýnist, að þú sért þarna, Clare? sagði hann glaðlega. —- Ert það þú, Ralph? Að hugsa sér að maður skyldi hitta þig hérna! Simon stóð upp og Clare kynnti þá. Hún sagði hon- um að þau Ralph væru gamlir kunningjar, og að hann væri sérfræðingur í ljóslækningum. — Það er nú af, sagði Mason læknir í léttum tón. — Það er þó nokkur tími síðan ég hætti við Ijóslækningarnar, en nú hef ég annað á prjónunum. Ég hef erft dálitla fjárupphæð eftir gamla frænku mína, og er að hugsa um að stofna einskonar ellihæli. En það er nú önnur saga, sagði hann og brosti. Það var eitthvað spennandi við Ralph Mason, eitthvað dul- arfullt í látbragði hans, sem lað- aði kvenfólkið að honum. Hann var hár vexti og vel að sér ger, virtist vera opinskár og hrein- skilinn, en það var eitthvað í augum hans, sem vakti grun um, að hann liti sínum augum á til- veruna. Hann hafði fengizt við sitt af hverju, en vantaði þolin- mæðina og fékkst aldrei lengi við það sama í einu. Hann var fullmenntaður læknir, en hafði aldrei fengizt við almennnar lækningar, vegna þess að hann hafði ekkert gaman af því. Um tíma hafði hann fengizt við radiumlækningar, en hætt við þær líka. Yfirleitt forðaðist hann allt, sem krafðist reglubundins starfs, og hann sagði stundum að hann hefði kampavínsvenjur, en tekjur sem ekki nægðu fyrir meiru en saft og vatni. Clare og hann höfðu sézt öðru hverju saman síðustu árin. Þau höfðu duflað saman í sakleysi og lát- ið hvort annað fara út í veður og vind. Hann virtist verða hrif- inn af að sjá hana aftur — ekki sízt þegar hún var með Simoni gg _ VIKAN 49. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.