Vikan


Vikan - 09.04.1964, Síða 25

Vikan - 09.04.1964, Síða 25
Það var fyrir 4—5 árum síð- an, að sjóliðsforingja ein- um heppnaðist að ná lif- andi apa við Afríku- strönd, og hafði hann heim með sér. Sjóliðsforinginn þurfti fljótlega að leggja frá landi aftur, og gaf hann þá vini sínum, ungum, auðugum og há- menntuðum manni, apann. Þetta atvik vakti ekki svo litla athygli, það kom nefnilega í ljós, að þetta var áður óþekkt afbrigði af chimpansa. Sjálfsagt eru ein- hverjir, sem muna allar þær mörgu myndir, sem birtust í dag- blöðunum, bæði af apanum og eiganda hans, og allar greinarn- ar, sem skrifaðar voru í blöð og tímarit, ásamt háværum kröfum um að eigandinn gæfi dýragarð- inum þessa merkilegu skepnu. Þeir hinir sömu minntust þess eflaust líka, að eigandinn harð- neitaði að verða við þessum kröf- um, en til þess að róa fólkið lét hann tilleiðast að arfleiða stofn- unina að apanum eftir sinn dag. Áhuginn fyrir apanum dofnaði þó fljótlega, eins og múg-áhugi ævinlega gerir, og þegar bursta- gerðarmaður í einu úthverfi borg- arinnar eignaðist stúlkubarn með alskegg, gleymdist hann gjör- samlega. Því betri rækt lagði eigandi hans við hann. Hann var auðug- ur maður, rúmlega þrítugur að aldri og hét Lampus. Faðir hans, sem hafði verið velþekktur kaup- sýslumaður, lézt þegar Lampus SMÁSAGA EFTIR SOYA var 24—25 ára, og móðir hans fylgdi manni sínum í gröfina skömmu seinna. Upp frá því hafði Lampus ver- ið áhyggjulaus milljónaeigandi. Einasta áhugamál hans var lest- ur og grúsk í bókum. Hann sat frá morgni til kvölds í stóra bóka- herberginu sínu og las allt hvað lesið verður. Og þar sem hann, gagnstætt mörgum öðrum lestr- arhestum hafði mjög heilbrigða dómgreind, var það varla of- mælt, sem vinir hans sögðu, að hann væri einhver skarpgáfað- asti, réttsýnasti og fróðasti mað- ur á öllu landinu. En Lampus var efasemdarmað- ur. Eftirlætissetning hans var: Það eina, sem maður veit með fullri vissu er að maður veit ekkert, og ekki einu sinni það er öruggt. — Og þar sem hann átti hvorki metnað eða sköpunarþrá, lifði hann mjög kyrrlátu og hlutlausu lífi. Aðeins í hópi nánustu vina á síðkvöldum kom það fyrir að hann miðlaði af vizku sinni. Apinn, sem hann skírði Ólsen, í höfuðið á sjóliðsforingjanum, varð til þess að gjörbreyta lífi hans. Hingað til hafði Lampus ekki borið aðrar tilfinningar til með- bræðra sinna en takmarkaða vin- áttu, en nú var eins og allar þær tilfinningar, sem blunduðu innra með honum, vöknuðu. Ástúð, um- hyggja, fórnfýsi, allt þetta fram- kallaði apinn Ólsen hjá honum. Til skýringar má geta þess að Lampus tilheyrði þeim ekki svo fámenna hóp manna, sem á auð- veldara með að þykja vænt um dýr en fólk, í öðru lagi var Ólsen sjaldgæft afbrigði af Anthropo- ithecus trodlodytes. Ólsen var vissulega mjög óvenjulegur. Ekki aðeins vegna þess að hann var líkari mönnum en apar eru yfirleitt, heldur hafði hann námsáhuga og náms- gáfur, sem margur maðurinn hefði mátt öfunda hann af. Á stuttum tíma lærði hann að ganga uppréttur á afturfótunum, slökkva og kveikja rafmagnsljós- ÞAÐ FÆRÐIST GRIMMDARLEGT GLOTT YFIR VARIR APANS, ÞEGAR HANN HANDLÉK SKOTVOPNIÐ. SVO KVADDI LAMPUS HANN MED HANDABANDI OG HÉLT í ÁTT TIL SKÖGARINS LÍKT OG HANN VÆRI LAUS ÚR HLEKKJUM. v_____________________________j ið, borða með hníf og gaffli og sitja hæversklega við matarborð- ið, þvo sér og greiða og nota snyrtiherbergið. Hér er lítið dæmi, sem sýn- ir hve fljótur Ólsen var að læra. Það var einn af fyrstu dögun- um, sem hann var hjá Lampusi. Lampus hafði brugðið sér frá andartak, og á meðan náði ap- inn í eintajk af Encyclopædia Britannica, og reif það í tætlur. Lampus varð auðvitað mjög reið- ur. Hann benti apanum á rifna bókina, sló til hans og sagði: Uss, skammastu þín. — Ólsen skildi undir eins að hann hafði gert rangt, hann roðnaði, greip báðum höndum fyrir and- litið og grét sáran. Upp frá því skemmdi hann aldrei eina ein- ustu bók. Þótt undarlegt megi virðast, reyndist erfiðast að venja apann af því að veiða flær í nærveru fólks. Lampus undraðist þetta mjög í fyrstu, en fljótlega fann hann skýringuna. Það var ein- faldlega sitthvað í hugmyndum apans um móral, sem var í al- gerri andstöðu við móral manns- ins. Alveg ómeðvitandi ályktaði apinn ,að annaðhvort má maður tína af sér flær hvenær sem manni sýndist, eða maður má aldrei gera það. Og þar sem það væri mjög heimskulegt að banna öpum eða fólki að tína af sér flær, eða klóra sér, er auðvitað sjálfsagt að gera það hvenær. sem manni sýnist. Ólsen var sérstæður, ekki að- eins hvað gáfur snerti, heldur einnig tilfinningalíf hans. Á skömmum tíma fékk hann svo mikla ást á húsbónda sínum, að sjaldgæft er að finna slíks dæmi meðal fólks. f hvert sinn, sem hann leit á Lampus, skein næst- um ójarðnesk ástúð úr brúnum augum hans, mörgum sinnum á dag greip hann um hendur Lampusar og strauk þær blíðlega. Ekki hafði hann dvalið nema fjórtán daga á heimilinu, þegar hann gat alls ekki sofnað fyrr en Lampus hafði klappað honum svolítið og breitt ofan á hann sængina. Fullkomin líkamleg heilbrigði var einn hinna mörgu kosta Ólsens. Það fór ekki fyrir hon- um eins og svo mörgum öðrum öpum, sem fluttir eru í kaldara loftslag og fá lungnabólgu eða berkla við breytinguna. Að vísu vanrækti Lampus heldur ekki að gera það sem í hans valdi stóð til að vernda heilsu apans. Dýra- fræðingur og dýralæknir rann- sökúðu hann mánaðajrlega, og fyrsíu tvö árin kom læknir kon- ungs daglega og hlustaði hann. Þegar Lampus hafði átt apann í hálft ár, fékk hann þá hug- mynd að kenna honum að tala. Flestir, sem einhverntíman hafði dottið í hug að gera slíka til- raun, höfðu fljótlega gefizt upp, og sagt við sjálfa sig að það gæti aldrei tekizt, en Lampus var þrár i skapi, hafði auk þess nægan tíma til að sinna talkennslunni, og síðast en ekki sízt hafði hann óbilandi trú á hæfileikum Ólsens. Svo hann ákvað að apinn skyldi læra að tala mannamál. Hann tók til óspilltra málanna af þeim ákafa, þrautseigju og metnaði, sem annars fyrirfinnst Framhald á bls. 46. VIKAN U. tM. — 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.