Vikan


Vikan - 09.04.1964, Blaðsíða 36

Vikan - 09.04.1964, Blaðsíða 36
 trt Lancaster Juvenil Skin er notaÖ sem dagkrem fyrir viökvæma húö sem hætt er viö ofnæmi. Þetta krem styrkir húÖ- ina og gerir hana eöli- lega. Tilhneigingin til 'ofnæmis minnkar og hverfur og brátt fær húö- in á sig blæ æsku og heil- brigöis. ÚTSÖLUSTAÐIR. — REYKJAVÍK: Tíbrá, Gjafa- og snyrtivörubúðin, Orion, Holts-Apótek, Tjarnarhárgreiðslustofan. — AKUREYRI: Vezlunin Drífa. 1 HS Hafið hugfast að hárið er prýði konunn- ar ef það er vel lagt og snyrtilegt. Látið því okkur annast hárgreiðsluna og pant- ið tíma í síma 14662. TJARNARSTOFAN - Tjarnargötu 10 - Sími 14662 HS ið í sambandi við Dreyfus á nokkur hátt. Þó var frumritið ekki þarna í umslaginu, heldur „lausleg þýðing“ du Patys á því. í þeirri þýðingu var símskeytið þannig: „D handtekinn. Varúðar- ráðstafanir gerðar. Leynifulltrú- inn varaður við“. 6. Minnisblað, þar sem skrifuð voru orð þau, sem spænski her- málaráðunauturinn átti að hafa látið falla: „Það er einn úlfur, og kannski tveir í sauðahjörð- inni“. Og loks var þarna eins konar álitsgerð, þar sem sagt var, að allt gæti þetta komið heim við Dreyfus. Vald og virðing þeirra, sem að sendingu þessara plagga stóðu, vó svo upp á móti því að allar sannanir skorti. Þessi stutta álitsgerð var nefnilega undirrit- uð af sjálfum hermálaráðherran- um, Mercier hershöfðingja. ENDANLEGUR DÓMSÚRSKURÐUR: BROTTREKSTUR OG ÚTLEGÐ. Dómararnir voru allir á einu máli. Dreyfus var sekur fundinn um landráð, og dæmdur að þola ærulausan brottrekstur úr hern- um, útlegð af Frakklandi og lifa það, sem eftir væri ævinnar á framandi stað þar sem höfð væru á honum ströng varðhöld. Seinna þennan dag var Dreyf- usi tilkynntur dómsúrskurðurinn. Hann var leiddur úr klefa sín- um og fjölmennur hervörður fylgdi honum inn í auðan dóm- salinn. Hervörðurinn brá vopn- um, ljós voru kveikt á kertum og réttarritarinn las upp dóms- orðin. Dreyfus stóð í réttstöðu. Hann hlustaði gaumgæfilega, snerist síðan snarlega á hæl að her- mannasið og hélt aftur til klefa síns. „Örvænting mín var tak- markalaus“, skrifaði hann seinna. „Ég var örþreyttur eftir að hafa orðið að þola alla þessa grimmd og ranglæti. Það var eingöngu hugsunin um konu og börn, sem kom í veg fyrir að ég bindi skjótan endi á þjáningar mín- ar . . .“ Umslagið, með hinum örlaga- ríku plöggum, hafði verið sent um hæl til hermálaráðherrans eftir lesturinn. Hann gaf þegar skipun um að allt það, sem hann hafði sjálfur skrifað, skyldi eyði- lagt, en bauð Sandherr ofursta að leggja hin plöggin aftur hvert á sinn stað. Hér eftir átti ekki að vera um neitt sérstakt Dreyf- usar-umslag að ræða. En það þurfti ekki allt að segja Sandherr ofursta; hann þóttist vita að þannig hyggðist Mercier hermálaráðherra útmá öll merki um þá aðild, sem hann, persónu- lega, átti að réttarmorðinu. Þeim Sandherr ofursta og Henry majór, var hins vegar báðum mjög í mun að koma ábyrgðinni að sem mestu leyti yfir á hermálaráð- herrann og du Paty majór. Þess vegna merktu þeir nýtt Dreyfus- armáls-umslag, sem þeir stimpl- uðu með orðinu „Leyndarskjöl“, og í það umslag lögðu þeir svo það, sem Mercier hermálaráð- herra hafði skrifað, ásamt ævi- ferilsskýrslu þeirri, sem du Paty samdi, ásamt frumritinu af sim- skeyti Panizzardi hins ítalska. ÆRUSVIPTING OG BROTTREKSTUR. Að morgni þess 5. janúar 1895, streymdi múgur manns út að heræfingasvæði herforingjaskól- ans, þar sem svipt skyldi Dreyfus tign og æru. Það var augljóst að stundar- æsing hafði gripið múginn, og hrópin: „Drepið Gyðinginn!" kváðu hvarvetna við bak við hermennina, sem stóðu í marg- faldri röð umhverfis hið auða svæði, þar sem athöfnin átti fram að fara, og héldu múgnum frá. Sérhvert herfylki í París hafði sent þangað flokk hermanna, til að vera viðstaddan, gunnfánar blöktu og herlúðrar voru þeytt- ir. Þá gall við skipun, og litlum dyrum á vegg var hrundið upp. Tröllstór liðþjálfi úr lýðveldis- hernum kom fyrstur út, en á eft- ir honum fjórir hermenn með brugðin sverð, en Dreyfus höfuðs- maður gekk í miðið. Þeir gengu fram á mitt svæðið þar sem Darr- as hershöfðingi sat á gunnfáki sínum og beið komu þeirra. Klukkan sló níu. Darras hers- höfðingi hauð að brugðið skyldi vopnum og dró sjálfur sverð úr skeiðum. Þögn sló á mannfjöld- ann á bak við hervörðinn, og rödd hershöfðingjans virtist hljómvana úti á víðavangnum, þegar hann mælti: „Alfreð Dreyf- us, þér eruð þess ekki verður að bera vopn. Því sviptum við yður allri tign og æru í nafni frönsku þjóðarinnar". Hingað til hafði Dreyfus stað- ið í varðstöðu. Nú rétti hann úr sér. „Hermenn!" hrópaði hann. „Það er saklaus maður, sem hér er sviptur tign og saklaus mað- ur, sem sviiptur er æru. Lifi Frakkland! Lifi lýðveldisherinn!“ Rödd hans var jafnvel enn hljóm- lausari þarna en rödd hershöfð- ingjans, en þó mátti múgurinn greina orð hans, og svaraði marg- röduðu hrópi: „Drepið Gyðing- inn . . .“ Liðþjálfinn tröllstóri gekk nú hröðum skrefum að Dreyfusi og reif axlarskúfana, einkennis- hnappana og rauðu leggingarnar af einkennisbúningi hans. Loks þreif hann sverð hans, lyfti hnénu og braut það í tvennt. Athöfnin hélt áfram. Dreyfus var leiddur fram hjá öllum her- flokkunum, sem stóðu í fullum einkennisskrúða undir fánum. Hann gekk föstum skrefum og teinréttur eins og foringi við liðs- könnun. Áhrifin voru óhugnan- leg. Einkennisbúningurinn hans virtist svo fátæklegur og hvers- gg — VIKAN 15. tl)l.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.