Vikan - 30.04.1964, Blaðsíða 32
.
VIK
ii
* _
4
'biipna i°
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú verður fyrir smávegis vonbrigðum í byrjun vik-
unnar, ef þú ert þannig stilltur og gerir þér of
miklar vonir, þrátt fyrir greinilega annmarka. Þú
þarft að vera mjög þolinmóður við ungan fjöl-
skyldumeðlim, láttu það ekki fara í skapið á þér.
©Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú hefur gerzt sekur um nokkurt kæruleysi, og ef
þú tekur ekki í taumana, veiztu. hvernig fer. Vertu
vel á verði gegn manni sem á í fjármálabraski,
hann hugsar sér þig sem næsta fórnardýr. Notaðu
frístundir þínar til músíkiðkana.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Það eru gerðar miklar kröfur til verka þinna og því
áríðandi að þú leggir þig fram við að vanda þig.
Þú hefur mikinn áhuga á máli sem stendur í nánu
sambandi við ferðalög. Þú hugsar of lítið um persónu
sem er þér nákomin, þú skalt bæta strax úr því.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Skólafélagi þinn, fer alveg geysilega í taugarnar á
þér, sökum uppskafningsháttar og monts. En þótt
þig langi mikið til skaltu hætta við áform þín í
sambandi við hann. Þú verður til þess að hjálpa
ókunnugum, sem er í vanda staddur.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Þú ert talsvert áhyggjufullur og þess vegna liggur
ekki sérlega vel á þér. Því miður á ýmislegt eftir
að ske áður en þú getur varpað öndinni léttar,
alveg eins og þig grunar, en þú hefur samt enga
ástæðu til að vera kvíðinn.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú tekur upp einhverja samvinnu við félaga þinn,
meira til gamans en gagns, og finnur greinilega til
" yfirburða þinna. Þú aðstoðar mann, sem þú um-
gengst mikið, við lausn á verkefni sem þú hefur
þjálfað mikið og ert vel að þér í.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú verður að taka fram fyrir hendurnar á ein-
hverjum til þess að hann geri ekki skyssu. Mann-
eskja sem þú hefur lítinn áhuga á, reynir að
klessa sig á þig. Þú átt skemmtilegan samfund með
félögum þínum, frá skólaárunum.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú hefur gert eitthvert asnastrik, og verið alltof
bráðlátur, þess vegna hefurðu ekki hlotið bezta
bitann. Taktu það ekki nærri þér en sýndu að þú
ert reynslunni ríkari. Þú lendir í smáveizlu, senni-
lega haldin í kveðjuskyni fyrir vini þína.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Kunningjar þínir hafa lagt árar í bát, og ergja þig
talsvert. Það þýðir ekkert fyrir þig að koma vitinu
fyrir þá, þú getur því miður ekkert gert án þess að
það væri kallað frekja. Um helgina ferðu 1 heim-
sókn þangað sem þú hefur aldrei komið áður.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Geysigóður árangur getur orðið af starfi þínu, svo
til án þess að þú leggir nokkuð á þig til þess. Þú
pr færð þann starfa að leiðbeina öðrum og tekst það
vcnum framar. Þú fæst við eitthvert verkefni sem
veitir þér mikla ánægju.
Vatnsberamerkið (21. janúar —■ 19. febrúar):
Undanfarin kvöld hefurðu dundað við nýtt áhuga-
mál þitt, og haft talsverðan hagnað af því (ekki
fjárhagslegan). Þú hefur miklar mætur á persónu
sem einnig þykir mjög vænt um þig, þú skalt
ekkert vera að halda aftur af tilfinningum þínum.
Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Það lítur út fyrir að þú gerir einhvern skandal
N*- heima hjá þér„ en af því að allir þekkja þig þar
þá verður ekki tekið hart á þér, en svona lagað
geturðu ekki leyft þér. Þú skalt rifja upp gömul
kynni, sem þú hefur vanrækt alltof mikið.
m
22 — VIKAN 18. tbl.