Vikan


Vikan - 13.08.1964, Blaðsíða 8

Vikan - 13.08.1964, Blaðsíða 8
AGFA LITFILMAN, er sérstaklega skörp, með fullkomnum og gallalausum litum AGFA er merkið, sem þér þekkið og getið treyst AGFA CT 13 kvikmyndafilman er fullkomnasta litfilman sem á markaðnum er. Hún er plús/mínus eitt Blend og 10-16 din. O — VIKAN 33. tbl. Bílaprófun VIKUNNflR Ég var rétt í þessu að prófa ódýrasta 6 manna bílinn, sem nú er fáanlegur á þessu landi. Það er Peugeot 403. Það er ekki ýkja langt síðan þessir bílar sáust fyrst á götunum hér, en þeim fer fjölgandi. Og ekki er fjölbreytninni fyrir að fara í útliti þeirra, því þeir hafa verið óbreyttir í öllum aðalatriðum síðan 1955. Fransmönnum hætt- ir til að vera gjarnan dálítið á undan tímanum í sínum bílaiðnaði, og þeir breyta ekki sínum bílum, fyrr en eitthvað nýtt og betra hefur komið fram. Þetta á, því miður, ekki við um alla Fransmenn, en svona megnið af þeim. Að sjálfsögðu er ekki hægt að gera sér fullkomna grein fyrir bíl, þótt maður skjögti á honum í einn eða tvo klukkutíma. En eitt og annað kemur í ljós strax á þeim tíma, þannig að hægt er að gera sér sæmilega hugmynd um ytri gerð bílsins og aksturs- eiginleika, og þessar umsagnir mínar byggjast á því. En ef um- boðin vilja fá traustari og öruggari umsagnir, er þeim velkomið að skjóta bíl undir mig svo sem vikutíma eða hálfan mánuð hverj- um, því með þannig notkun í praxis getur maður betur gert sér grein fyrir farartækinu. Að ytra útliti er Peugeot 403 ekkert sérstakur. Harin er rétt þokkalegur, ekki ljótur og ekki fallegur. Hann er traustlegur að sjá, og sú tilfinning rýrist ekkert, þótt inn í sé setzt og ekið af stað. Og það er auðvelt að setjast inn í hann, hurðirnar opnast vel og greiðlega og sætin eru allþokkaleg. Að vísu hafði eigandi reynslubílsins eitthvað pillað við framsætið, svo það mátti ekki hærra vera fyrir mig, og gormarnir í bakinu létu til sín heyra annað slagið, en það er allsæmilega þægilegt að sitja í honum. Stjórntækin — stýri, gírstöng o.þ.h. eru dálítið innar en öku- maðurinn, en það gleymist á fyrstu hundrað metrunum. Skiptingin er á stýrinu og gírunum öðru vísi raðað, en maður á oftast að venjast á fjögra gíra bíl, en skiptingin er auðveld og lærist fljótt. Hann er samtilltur í alla gíra, fyrsti þó aðeins fyrir neðan 12 km hraða, en þar fyrir neðan er samstillingin rétt þokkaleg. Það er verst, að erfitt er að finna það eftir hraðamælinum, hvar 12 kílómetra mörkin eru. Annars er gaman að skiptingunni milli ann- ars og þriðja gírs; þar lætur maður aðeins gírstöngina ráða, nema hvað það þarf að ýta henni fram og aftur. Bíllinn hefur mjög breitt hraðabil í öllum gírum. Stýrið á skilið annan kapítula. Bíllinn er mjög þægilegur í stýr- inu, nákvæmur, léttur og skilar ekki miklu af veginum upp í hend- ur ökumannsins. Þó er stýrisútbúnaðurinn mjög einfaldur og áreið- anlega ódýr í viðhaldi. Stefnuljósarofi er á stýrisleggnum hægra meg- * in, og það er galli. Hann er eiginlega í felum milli stýrishjólsins og gírstangarinnar. Ég er því eindregið fylgjandi, að hafa stefnu-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.