Vikan - 13.08.1964, Side 32
Ferðaþjónusta hjá SUGU
w '&r&' &
V&r m
SAGA selur flugfarseðla um all-
an heim með Flugfélagi íslands,
Loftleiðum, Pan American svo
og öllum öðrum flugfélögum.
SAGA er aðalumboðsmaður á
fslandi fyrir dönsku ríkisjórn-
brautirnar.
SAGA hefur aðalumboð fyrir
ferðaskrifstofur allra norrænu
rikisjórnbrautanna (Danmörk,
Finnland, Noregur og Svíþjóð.
SAGA heufr söluumboð fyrir
Greyhound langferðabilana
bandarísku.
SAGA hefur ennfremur nýlega
fengið söluumboð fyrir banda-
ríska langferðabílafyrirtækið
Continental Trailways.
SAGA er aðalumboðsmaður fyrir
Europa Bus — langferðabílasam-
tök Evrópu.
SAGA selur skipafarseðla um
allan heim.
Kynnið ykkur hinar hagkvæmu IT (ein-
staklings)- ferðír til f|öimargra landa.
Ferðaskpifstofan
Ingólfsstræti gegnt Gamla bíói — Símar 17600 og 17560.
*
II
4
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Til þess að tryggja betra samkomulag ættirðu að
láta að vilja ákveðinnar persónu. Ef þú reynir að
íosa þig við ótímabærar skuldir geturðu verið nokk-
uð öruggur og rólegur um framtíðina. Leggðu metn-
að þinn í að leysa verkefni þín vel af hendi.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú setur allar vonir þínar í samband við samfund,
sem á sér stað í vikunni. Þú getur náð glæsilegum
árangri, en þú verður að leggja þig fram til þess.
Gleddu þá, sem þér eru kærir, með einhverju
smávegis, sem minnir þá á, að þú manst eftir þeim.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú hefur unnið mikið að málum þínum. Eftir því
sem kostur er á, skaltu viða að þér fróðleik, sem
gæti auðveldað þér framkvæmdir. Vertu sem mest
samvistum við ástvini þína og njóttu þess að vera
til. Heillatölur eru 4 og 9.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Eins og stendur eru stjörnurnar ekki í sem æski-
legastri stöðu. Þess vegna skaltu hafast lítið að,
og taka ekki neinar stórákvarðanir. Samvera með
félögum þínum veitir þér ekki neina sérstaka
ánægju, en þér mun áreiðanlega ekki leiðast.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Láttu ekki ákafa tilfinninga þinna ráða gerðum þín-
um. Þú verður að öllum líkindum að ráða fram úr
spurningu, sem varðar talsvert framtíð þína. Láttu
ímyndunaraflið skemmta þér, þegar þér leiðist.
Reyndu að hressa þig upp frá þessu hversdagslega.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Þú finnur þrótt þinn vaxa, er þú sérð góðan árang-
ur verka þinna. Það er full ástæða til að gleðjast
yfir getu þinni, en þú skalt varast ofmetnaðinn. Það
er gott út af fyrir sig, að hafa sjálfstraust en hóg-
værð og lítillæti er kannske enn dýrmætara.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Taktu sjálfan þig ekki svona hátíðlega. Þú nærð
aldrei takmarki þínu, ef þú hefur stöðugt áhyggjur
af hugsanagangi annarra.. Gefðu meiri gaum starfs-
félaga þínum, sem hefur reynt að ná sambandi
við þig undanfarið. Skemmtu þér eins og völ er á.
Drekamcrkið (24. október — 22. nóvember):
Áhyggjur þínar verða roknar út í veður og vind,
áður en þig varir. Snúðu þér af öllum kröftum
að því sem þú hefur mestan áhuga á. Þú kynnist
manni, sem hefur mjög ólík sjónarmið, en eigi
að síður tekst með ykkur allgóð vinátta.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Allt, sem lýtur að verzlun og viðskiptum, blómstr-
j3| ar nú í hönudm þínum. Jafnvel vafasömustu við-
skipti virðast snúast þér í hag. Þú skalt leggja
niður tómstundastörf þín í bili, vegna annarra að-
kallandi verkefna. Eyddu frítímanum til útiveru.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú hefur gert áætlun, sem er mjög sjaldgæft að
gera. Þú þarft samt engu að kvíða, og þó að árang-
Sqggpr urinn sé ennþá langt undan, geturðu glaðzt með
sjálfum þér. Treystu ekki of mikið á stuðning
kunningjanna í vissu málefni.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú gætir tekið til athugunar með góðum árangri
nafnorðið nýtni og þýðingu þess. Þér er mikið
vandamál á höndum sakir bónar ættingja þíns,
dragðu dálítið að svara en vertu við öllu búinn.
Gerðu ekki fleiri en orðið er þátttakendur í leyndarmáli þínu.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Persóna, sem þú hefur ekki átt samskipti við árum
saman, kemur þér nú á óvart með nærveru sinni.
Þú verður fyrir einhverjum óþægindum af völdum
eldri persónu, sem þú átt nokkuð undir. Það blæs
byrlega fyrir þér á sviði tilfinninganna.
m
g2 — VIKAN 33. tbl.