Vikan


Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 35

Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 35
lýst sem „stóra lamaða manninum", „loðna manninum", „kokkálnum mikla frá Languedoc".... Hann endaði kvæði sitt með þessari vísu: Greifafrúin glöð í sinni, galdramannsins hvarfi fegin. Hórkonunnar valdi veginn, i von um að hann sæti inni. Angelique hélt að hún myndi roðna, en hún varð þvert á móti náföl. — Ö, þetta skelfilega rennusteinsskáld, hrópaði hún og kastaði snepl- inum í skítinn. —■ Svo sannarlega er vatnið í rennusteininum of hreint fyrir hann! — Uss, Madame. Takið ekki upp í yður, mótmælti Desgrez. — Mon- sieur Clopot, viljið þér taka þennan óþverra^ upp aftur og setja hann aftur i töskuna. — Ég veit ekki, af hverju þeir setja ekki þennan fjandans skáldgep- U i fangelsi, í staðinn fyrir að setja þangað heiðarlegt fólk, hélt Ange- lique áfram og skalf af reiði: — Annars er mér sagt, að svona drullu- sokkar séu settir í Bastilluna eins og þeir njóti einhverrar virðingar. Hversvegna eru þeir ekki settir í Chatellet eins og venjulegir, ótíndir glæpamenn ? — Það er ekki auðvelt að handsama þessa menn. Þeir eru hálustu kvikindi á þessari jörð. Þeir eru allsstaðar og hvergi. Claude Le Petite hefur verið næstum hengdur tíu sinnum, en honum hefur alltaf tekizt að komast undan, og hann kemur alltaf aftur og skýtur örvum sínum, þegar sizt er von á. Hann er auga Parísarborgar. Hann sér allt, veit allt, en enginn sér hann. Ég hef aldrei séð hann sjálfur, en ég býst við að eyrun á honum hljóti að vera á stærð við baðker, því hann veit allar hneykslissögur borgarinnar. 1 rauninni ætti hann að vera njósnari á fullum launum, í stað þess að vera hundelt niðskáld. — Það ætti að hengja hann i eitt skipti fyrir öll! — Okkar kæra og ómögulega lögregla hefur spæjara meðal óþrifa- lýðsins, en þeir munu aldrei ná í litla skáldið í Pont-Neuf, ef við komum ekki til sögunnar, ég og hundurinn minn. — Gerið það! Ég bið yður þess! hrópaði Angelique og þreif í Desgrez með báðum höndum. — Ég vil, að Sorbonne færi mér hann í kjaftinum, dauðan eða lifandi! — Ég myndi heldur fara með hann til Mazarin, því hann er svo sannarlega verri óvinur kardinálans en yðar. — Hvernig stendur á því, að öðrum eins lygara líðst að gefa út svona snepla? — Þvi miður! Aðalstyrkur Claude Le Petite liggur í þeirri staðreynd, að hann lýgur aldrei og gerir sjaldan mistök. Angelique opnaði munninn til að mótmæla, en mundi svo eftir de Vardes markgreifa og þagnaði, en innra með henni ólgaði reiðin og skömmin. 41. KAFLI — Hafið þér heyrt talað um munk, sem heitir Conan Bécher og nunnu, sem áður en hún lagði nunnuheitið hét Carmencita de Mérecort? spurði hann. — Hvort ég hef heyrt talað um þau! sagði Angelique áköf. — Þessi munkur, Bécher, er snarvitlaus gullgerðarmaður, sem sór að hann skyldi rífa leyndarmálið um vizkusteininn út úr höndunum á manninum min- um. Hvað Carmencitu de Mérecort við kemur, þá var hún einu sinni ástmey Joffreys og getur ekki fyrirgefið honum, að hún fékk ekki að vera það áfram. En hversvegna spyrjið þér um það? — Það er eitthvað þvaður um særingar, sem þetta fólk hefur átt að verða fyrir. Þessi gögn hafa núna nýlega verið lögð fram og eru sögð vera mjög veigamikil. — Hafið þér ekki lesið þau? — Ég hef ekki lesið neitt af öllum þessum pappírum og skýrslum sem hefur verið safnað saman. — En úr því að réttarhöldin eiga að fara fram í málinu hljótið þér sem verjandi sakbornings að hafa rétt til að fara í gegnum málsskjölin? — Því miður. Mér hefur verið sagt mörgum sinnum að eiginmanni yðar verði neitað um að hafa verjanda. En nú sem stendur vinn ég að því öllum árum að fá skriflega yfirlýsingu varðandi þessa neitun. — Þetta er ekki hægt! — Nei, alls ekki. Réttarvenjurnar segja að ekki sé hægt að neita sakborningi um lögfræðiaðstoð, nema hann sé sakaður um glæp af verstu gerð. Það er erfitt að halda því fram í sambandi við þetta mál. Svo með því að verða mér úti um skriflega yfirlýsingu um neitunina, get ég sýnt fram á að réttarhöldin séu ólögleg og það gefur mér mjög sterka aðstöðu. Ég býst við, að á þann hátt geti ég neytt þá til að nefna mig sem verjanda. Þegar Desgrez kom tveim dögum seinna var hann ánægjulegur í fasi og hjarta Angelique tók stökk af vongleði. — Bragðið hefur heppnazt! hrópaði hann. — Aðalforseti dómsmála- ráðuneytisins, Séguier, var rétt í þessu að skipa mig verjanda fyrir Monsieur de Peyrac, sem ákærður er fyrir galdra. Samt sem áður lang- ar mig til að benda yður á Það, Madame, að þér getið ennþá valið yður frægari lögfræðing til að fjalla um mál eiginmanns yðar. Angelique var að horfa út um gluggann. Musterissvæðið var næstum autt og virtist sofa undir snjófeldinum. Matjame Scarron gekk framhjá í ræfiislegu kápunni sinni, á leið til messu í kapellu ábótans. Fyrir framan húsið var Sorbonne að elta skottið á sjálfum sér, meðan hann beið eftir húsbónda sínum. Angelique leit útundan sér á lögfræðinginn. — Ég get ekki ímyndað mér hæfari mann, til að taka að sér þetta mál, sagði hún. — Þér fullnægið öllum þeim skilyrðum, sem ég hef sett, og þegar mágur minn mælti með yður við mig, sagði hann: — Hann er einhver snjallasti lögfræðingur, sem ég þekki, og það sem meira er, hann verður yður ekki dýr. — Ég þakka yður kærlega, Madame, fyrir það góða álit sem þér haf- ið á mér, sagði Desgrez og virtist alls ekki óánægður. Unga konan teiknaði annars hugar á móðugar gluggarúðurnar. Þegar ég kem aftur heim til Toulouse með Joffrey, hugsaði hún, ætli ég muni þá eftir Desgrez? Jú, ég mun áreiðanlega stundum muna eftir því, þegar við fórum saman í baðhúslð! Allt i einu snerist hún á hæli, eins og hún hefði fengið rafmagnshögg. Ég held það sé byröl \ aö vera rlkur, Markús. Rlka félklö hefur ekkert til aö veröa -—i (■------hrifiö ^ af■ Hlustaðu á mlg, Bva. Fyrirgeföu, þetta var ekki mein- ingln i Srii ÍMA CHIC VIKAN 41. thl. — gg

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.