Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 43
var kominn úr skyrtunni og far-
inn að löðra sig í framan. Hann
sagði: „Ætlarðu að gera það,
Hugo?“
„Já,“ sagði Hugo, steinhissa.
„Auðvitað."
„Þú ert heppinn. Þú hefur enn-
þá aðstöðu til að vera hreinn og
beinn.“ Hann leit niður fyrir
sig, eins og til að sannfæra sig
um að hann væri ekki sjálfur
í þvílíkri aðstöðu. „H'éðan af
verðurðu að gera það upp við
þig á hverjum degi allt lífið.“
Hann horfðist í augu við Hugo
í speglinum. Ég er tilfinninga-
samur eins og hver annar gamall
leikari, Hugo. Ég ætla að líta
eftir þér eins vel og ég get. Þú
ert nýfæddur í þennan heim og
ósjálfbjarga eins og ungbarn. Má
ég hjálpa þér?“
„Auðvitað,“ svaraði Hugo.
Hann kenndi í brjósti um
Samuel. Að tala um að vera
hreinn og beinn í þessum nýjá
heimi, það var að Hugos dómi
alltof mikil léttúð gagnvart öllu
raunsæi. Hann hugleiddi hvort
Samuel hefði nokkurntíma leik-
ið Pólóníus.
Það var barið að dyrum.
Samuel lét það ekki trufla sig
í fræðslunni. „Spillingin er fljót-
virkust allra sjúkdóma,“ sagði
hann, ,og hræðilega sársauka-
laus til að byrja með. Kom inn!“
Jasper kom inn. Hann tók utan
um Hugo. „Jæja, vinurinn, hvert
er svo endanlegt svar þitt?“
„Hann ætlar að gera það,“
sagði Samuel. „Og við hjálpum
honum eins og við getum.“
Jasper tók lykil upp úr vasa
sínum og hélt honum upp að aug-
um Hugos. „Skúrinn," sagði
hann. „Þetta er minn. Ég lána
þér hann meðan á þessu stend-
ur. Lily bíður þar eftir þér með
ritvél og kaffi. Af stað vinurinn.“
„Og Chalmers?" spurði Sam-
uel.
„Það verður séð um hann. Það
er búið að ganga frá þeirri hlið
málsins. Ég talaði við Rappé. Það
tókst að koma vitinu fyrir hann.
Chalmers fær einn fjórða úr einu
prósenti."
Samuel hugsaði sig um andar-
tak. „Það er sanngjarnt," sagði
hann svo.
„Hann kemur aldrei til með að
vanta þak yfir höfuðið," sagði
Jasper.
Hugo lagði frá sér glasið og
dró tjöldin frá glugganum. Nótt-
in var að hefjast upp frá trján-
um í garðinum. Samuel þurrk-
aði sér um hendurnar; hann kom
út úr baðherberginu og lagði
handlegginn utan um Hugo. „Allt
í lagi,“ sagði hann, „nú ert þú
orðinn einn af okkur. Farðu nú
að vinna. Láttu sjá hvað þú get-
ur.“
„Ó, ég get það,“ sagði Hugo.
„Ég veit að þú getur það,“
sagði Jasper, „ég veit að þú get-
ur það.“
„Við sjáum til,“ sagði Samuel,
en virtist þó ekki heldur vera í
neinum vafa. Hann kannaðist við
sjláfan sig í Hugo, gat kallað
hann bróður sinn, þekkti hina
villimannlegu þrá, sem Hugo var
nú haldinn af er hann stóð við
dyrnar, skylmingamaður, sem
veit að ljónið er tannlaust og
lúsugt og verður því yfirunnið
með lítilsháttar leikni.
Jasper fylgdi Hugo til „skúrs-
ins“ og lauk upp útskornum, tvö-
földum dyrunum. „Allt þetta
mun ég gefa þér,“ sagði hann
brosandi og horfði á Hugo virða
fyrir sér hið íburðarmikla her-
bergi, skreytt gömlum leikhús-
minjum. Veggurinn fram að
garðinum var að mestu úr gleri;
Lily sat við borð. Jasper sagði:
„Hérna gengur þér allt í haginn.“
Hugo heyrði ekki hvað hann
sagði. Velkominn, sagði hann við
sjálfan sig.
Hann horfði út um gluggana
á borgina, sem breiddi úr sér
fyrir neðan; sviðsstjórinn hafði
skilið við ljósin logandi, og í
úðaregninu brunnu þau og flöktu
líkt og hátíðablys, eins og í her-
búðum.
Jasper sagði: „Hér er lykill-
inn, ég ætla að læsa ykkur inni.“
Hugo stakk lyklinum í vasa
sinn.
„Bless bless, krakkar,“ sagði
Jasper. „Ég sé ykkur á morgun.“
Hugo settist í einn hinna frægu
stóla er frægir arkitektar höfðu
teiknað; hann var gerður úr stál-
pípum og leðurreimum, dular-
full smíði þótt einföld væri í
dráttum. Þetta húsgagn minnti
hann á kínverska gestaþraut, eða
völundarhús. Sem snöggvast ef-
aðist hann um, að hann gæti
nokkurntíma staðið upp úr stóln-
um. Gerir ekkert til, sagði hann
við sjálfan sig, gerir ekkert til;
hérna vil ég vera; að lokum er
ég kominn.
„Á ég að ná í drykk eða eitt-
hvað annað?“ spurði Lily.
„Ekkert núna, þakka þér,“
svaraði Hugo. Hann tók upp
handritið með leikriti Chalmers
og fletti upp á fyrstu síðu. „Allt
í lagi,“ sagði hann. „Við skulum
þá byrja.“ ★
GÁFAÐIR OG GLEIÐ-
BROSANDI
Framhald af bls. 18.
komið vísindamönnum á óvart
með því, hve næmir þeir eru
og fljótir að læra. Einn höfr-
ungaþjálfa,rinn segir: Eftir aS
hafa sýslað með höfrunga, finnst
manni sjimpansar, hundar, hest-
ar og fílar jafn vitlausar skepn-
ur og mýs.
Kímnigáfa höfrunganna virðist
í góðu lagi, — enn eitt merkið
um þroskaða vitsuni. Höfrung-
arnir í dýragarði einum í Marine-
land hafa t.d. það sér til skemmt-
KÍNVERSKIR, HANDSAUMAÐIR PÚÐAR, MYNDOFNIR OG VÍROFNIR.
ENDURNÝJUM SÆNGUR OG KODDA - FLJÓT AFGREIÐSLA.
HÖFUM EINNIG EINKASÖLU Á REST-BEST KODDUM.
DÚN- 0 G FIÐURHREINSUNIN
VATNSSTÍG 3 (örfá skref frá Laugavegi) Sími 18740
Vinson - Vinson
Nylonskyrtur
Verið vel klæddir, gangið í VINSON,
Auðveld í þvotti — engin strauning.
VIKAN 41. tbl. —
mtÍHHH!